Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Samið Gunnar Björn Gunnarsson formaður Gunnarsstofnunar og Lilja
Alfreðsdóttir menntmálaráðherra undirrita samning um stuðning.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sem endranær verður í sumar
efnt til margvíslegra menningar-
viðburða í Gunnarshúsi á Skriðu-
klaustri í Fljótsdal. Aðalhlutverk
Gunnarsstofnunar er að kynna,
sýna og segja frá bókmenntaverk-
um og sagnaheimi Gunnars Gunn-
arssonar rithöfundar þar sem af
nægu er að taka. Á síðari árum
hefur hin mikla saga staðarins
leikið æ stærra hlutverk í starf-
seminni. Má þar nefna sýningu um
arfleifð og sögu klaustursins sem
starfrækt var á Skriðu um og eftir
aldamótin 1500. Heillegar rústir
þess sem hafa verið vel merktar
eftir fornleifauppgröft og gera
þær staðinn um margt einstakan.
„Skriðuklaustur er opið og lif-
andi menningarsetur,“ segir Skúli
Björn Gunnarsson, forstöðumaður
Gunnarsstofnunar. Hún var stofn-
sett árið 1997 en eiginleg starf-
semi hennar á Skriðuklaustri hófst
árið 2000 þegar menningarsetrið
var opnað í minningu þeirra hjóna.
Verk Gunnars víða lesin
Málavextir eru þeir að Gunnar
Gunnarsson og Franzisca kona
hans fluttu að Skriðuklaustri árið
1939, eftir að hafa átt sín bestu ár
í Danmörku þar sem Gunnar varð
bæði frægur og fjáður rithöf-
undur. Í Fljótsdalnum hugðist
Gunnar helga sig ritstörfum jafn-
hliða búrekstri, sem ekki gekk
upp þegar á reyndi. Eftir níu ára
skrykkjóttan búskap á Skriðu-
efnt til samkomu og dagskrár í
Gunnarshúsi við Dyngjuveg í til-
efni af því að þann dag voru liðin
130 ár frá fæðingu Gunnars Gunn-
arssonar. Við það tækifæri var
m.a. undirritaður nýr samningur á
milli Gunnarsstofnunar og
mennta- og menningarmálaráðu-
neytis sem tryggir stofnuninni um
50 millj. kr árlegt framlag á fjár-
lögum.
Við það tilefni var undirritaður
samningur Gunnarsstofnunar,
Kvikmyndasafns Íslands og Sin-
fóníuhljómsveitar Norðurlands um
aldarafmæli kvikmyndarinnar
Saga Borgarættarinnar sem gerð
var eftir skáldsögu Gunnars og
kvikmynduð á Íslandi. Í tilefni
aldarafmælis myndarinnar verður
lokið við stafræna endurgerð
hennar og Þórður Magnússon tón-
skáld hefur verið fenginn til að
semja tónlist við myndina. Kvik-
myndin verður síðan sýnd í Hofi á
Akureyri og Hörpu við undirleik
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands
á næsta ári þegar liðin er öld frá
frumsýningu.
Fjármagna Aðventu
Við sama tilefni var minnst á
tvö kvikmyndaverkefni tengd sög-
um Gunnars. Annars vegar er
Kvikmyndafélag Íslands að vinna
að fjármögnun kvikmyndar eftir
Aðventu sem Ottó Geir Borg hef-
ur skrifað handrit að.
Hins vegar var nýverið und-
irritaður samningur milli Páls
Grímssonar kvikmyndaframleið-
anda og erfingja skáldsins um
sjónvarpsþáttaröð sem byggist á
Svartfugli.
Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri er fjölsóttur staður Verk skáldsins í nýjum þýðingum og útgefin
í mörgum löndum Kvikmyndagerð í undirbúningi Merk arfleifð á sögustaðnum austur í Fljótsdal
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skriðuklaustur Það eru ekkert margir rithöfundar sem lifa sjálfa sig og
mikilvægt að laða að nýja lesendur,“ segir Skúli Björn Gunnarsson.
Opið og lifandi menningarsetur
klaustri gáfust þau hjónin upp og
ánöfnuðu þau ríkinu hús og jörð
til ævarandi eignar. Höfðu þau
meðal annars í huga að þar yrði
sett á laggirnar menningar-
starfsemi í einhverri mynd sem
gekk ekki eftir fyrr en áratugum
síðar, en í millitíðinni var á
Skriðuklaustri lengi rekin til-
raunastöð í landbúnaði.
Óhætt er segja að starfsemi
Gunnarsstofnunar hafi verið afl-
gjafi fyrir Austurland, enda er
staðurinn fjölsóttur. Þá eru skáld-
verk Gunnars Gunnarssonar bæði
seld og lesin víða um þessar
mundir, en höfundarréttur þeirra
er í höndum Gunnarsstofnunar.
Nýlega kom Svartfugl, sem er eitt
af hans þekktustu verkum, út í
nýrri þýðingu í Noregi og í
Aserbaídsjan og skáldsagan Að-
venta á spænsku, ítölsku, arab-
ísku, hollensku, færeysku, tékk-
nesku og norsku. Mætti þá tiltaka
fleiri nýjar útgáfur af verkum
Gunnars, sem aftur undirstika að
hann var á sínum bestu tímum í
fremstu röð evrópskra rithöfunda.
Skáld lifa í verkum sínum
„Þegar starfsemin hér hófst
voru valkostirnir í raun tveir,“
segir Skúli Björn Gunnarsson.
„Annar var sá að hér yrði skálda-
heimili, eins og þekkt eru erlendis,
með uppstilltu augnabliki fortíðar
af heimili skáldsins. Sannleikurinn
er þó sá að slíkar stofnanir þar
sem íverustaður látinna skálda er
í aðalhlutverki eiga alltaf undir
högg að sækja, því lesendahóp-
urinn er alltaf að minnka. Það eru
ekkert margir rithöfundar sem lifa
sjálfa sig og mikilvægt að laða að
nýja lesendur.
Því fórum við þá leið að gera
Skriðuklaustur að alhliða menn-
ingarsetri þar sem fólk fær við-
kynningu af mörgu og verður jafn-
framt margs fróðara um Gunnar
Gunnarsson. Sannleikurinn er sá
að skáld lifa í verkum sínum – en
ekki í einstökum byggingum.“
Þann 18. maí síðastliðinn var
„Rithöfundurinn Gunnar Gunnarsson lifir áfram í verk-
um sínum og arfleifð hans veitir innblástur og orku til
nýrrar listsköpunar,“ sagði Skúli Björn Gunnarsson.
„Auðvitað eru verkin eins misjöfn og þau eru mörg,
en í öllu tilliti er Svartfugl sígilt verk og sömuleiðis Að-
venta; ferðalag Fjalla-Bensa um öræfin og huga sinn á
erindi við alla, hvort sem lesið er á arabísku eða Norð-
urlandamálum. Ég gæti líka nefnt skáldsögur eins og
Fjallkirkjuna, sem lifir enn góðu lífi. Sjálfur taldi Gunnar
að Vikivaki yrði sú saga sín sem lengst myndi lifa og
væri lykilverk. Ég skal ekki segja; kannski er það lykilsaga sem við höfum
ekki enn fundið lykilinn að.“
Innblástur til listsköpunar
SKÁLDVERKIN LIFA
Gunnar
Gunnarsson
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Kaldunnið þorskalýsi
100% náttúruleg vara
Fæst í öllum betri apótekum og heilsubúðum