Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
fluttum og framandi jurtum verið
plantað í sárin.
„Náttúran er einstök og er fjöl-
breytni flóru og fánu engu lík. Eftir
að Madagaskar rak frá Indlandi og
Afríku hefur plöntu- og dýralíf
þróast í mikilli einangrun, í meira
en hundrað milljón ár. Það er því
fjölbreyttara og öðruvísi en á
nokkrum öðrum stað í heiminum,“
segir Vilmundur. Á Madagaskar
lifa um 5% plöntu- og dýrategunda
heimsins og 90% þeirra eru ein-
göngu til á þessari eyju.
Baobabtré einkenna flóruna á
ákveðnu svæði sem kallað er Bao-
bab-breiðstræti. Baobab-plantan
er eins og tré á hvolfi, þar sem ræt-
urnar snúa upp, en útlitið blekkir
og tekur grasafræðingurinn fram
að þessi einkennisjurt landsins sé í
raun ekki tré heldur þykkblöð-
ungar.
Lemúrar eru einkennisdýr
Madagaskar. Til eru um 50 teg-
undir af ýmsum stærðum og gerð-
um en lemúrar finnast hvergi ann-
ars staðar í heiminum. Vilmundur
nefnir einnig eina rándýrið á
Madagaskar, fosa sem er sérstök
kattartegund og er aðeins til
þarna.
Vilmundur segir að náttúran hafi
látið á sjá á undanförnum áratug-
um vegna fjölgunar fólks og ann-
arra breytinga í umhverfinu. Fjöldi
dýra og plantna hafi horfið.
Taktu því rólega!
Þótt Madagaskar sé vanþróað
land koma þangað margir ferða-
menn til að njóta einstakrar nátt-
úru. Eftir stjórnarkreppu eða bylt-
ingu sem varð fyrir um áratug
hrundi ferðamannaiðnaðurinn. Þó
koma um 900 þúsund ferðamenn á
ári nú og þótti staðarleiðsögumanni
hópsins merkilegt að heyra töl-
urnar frá Íslandi sem er aðeins um
þriðjungur af stærð Madagaskar.
Mikil fátækt er í landinu, enda
um 50% atvinnuleysi, þótt einnig sé
ríkidæmi hjá ákveðnum stéttum.
„Munurinn sést þegar maður gistir
á góðum hótelum og borðar á fínum
veitingahúsum og sér síðan að-
stæður og eymd fólksins þegar
maður ekur eftir vegunum. Annars
fannst mér fólkið yndislegt. Þótt
víða sé verið að selja glingur við
göturnar er ekki sama ágengni og
víða annars staðar. Mér finnst þó
vanta drifkraft í fólkið enda er mér
sagt að kjörorð þess séu „mura,
mura“: Taktu því rólega! Hvernig á
fólkið líka að vinna þegar hitinn fer
upp í 40 stig.“
Vilmundur mælir hiklaust með
Madagaskar sem áfangastað. Vel sé
gert við ferðamenn og margt for-
vitnilegt að sjá og upplifa. Þá sé öll
þjónusta afar ódýr á vestrænan
mælikvarða, jafnvel þótt vel sé
smurt á verðið til ferðamanna.
Fjölbreytni flóru og fánu engu lík
Eyjan Madagaskar í Indlandshafi er ævintýraheimur Vilmundar Hansen blaðamanns Lemúrar
og baobabtré eru afrakstur náttúru sem fengið hefur að þróast í mikilli einangrun í milljónir ára
Ljósmyndir/Vilmundur Hansen
Baobab-breiðstræti Stórfenglegt er að sjá baobabtré, eða apabrauðstré á Baobab-breiðstræti á Madagaskar.
Samkvæmt skilgreiningu grasafræðinnar er þetta þó ekki tré heldur þykkblöðungur, vissulega líkur tré á hvolfi.
Tveir hræddir Lemúr ákvað að skríða yfir höfuð Vilmundar Hansen.
Höfuðborgin Endalausar biðraðir virðast vera í margmenninu í Antanan-
arívó, höfuðborg og langstærstu borg Madagaskar. Mikil fátækt er þar eins
og víða í landinu enda atvinnuleysi mikið, allt að 50%.
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er náttúran sem heillaði.
Plöntu- og dýralíf hefur þróast á
sínum eigin forsendum í milljónir
ára og er allt öðruvísi en annars
staðar í heiminum,“ segir Vilmund-
ur Hansen, blaðamaður á Bænda-
blaðinu. Hann fór í hálfs mánaðar
ferð til Madagaskar um páskana og
viðurkennir fúslega að honum þyki
plönturnar merkilegastar enda er
hann menntaður grasafræðingur.
Madagaskar er í Indlandshafi
undan ströndum Afríku. Eyjan er
gríðarstór enda talin fjórða stærsta
eyja heims. Hún var lengi nýlenda
Frakklands og eru frönsk áhrif
áberandi.
Skrítin eyja á landakortinu
Vilmundur hefur lengi haft
áhuga á Madagaskar. „Þetta er æv-
intýraheimur sem prentaðist inn í
mig þegar ég var barn. Skrítin eyja
á landakortinu, svona langt í
burtu.“ Hann segist hafa ætlað að
fara þangað fyrir tíu árum en ekki
orðið úr. Hann verður sextugur á
þessu ári og ákvað að gefa sjálfum
sér ferð þangað í afmælisgjöf.
Hann var í tólf manna hópi sem
fór til Madagaskar um páskana í
ferð sem ferðaskrifstofan Farvel
skipulagði. Hópurinn skiptist þó í
tvennt þegar út var komið. Fjórir
fóru í sérsniðna ljósmyndaferð
undir forystu Þorkels Þorkelssonar
ljósmyndara og hinir í hefðbundn-
ari ferð þar sem náttúruskoðun var
stór þáttur.
Einstök náttúra
Það kom Vilmundi á óvart hvað
mikið var af evrópufuru á Mada-
gaskar, hús í skoskum stíl á lands-
byggðinni og miklar auðnir. Skýr-
ingin á skosku húsunum er sú að
þar bjó skoskur arkitekt og hafði
mikil áhrif á húsagerðarlist. Mikil
skógareyðing er á Madagaskar og
hefur evrópufuru og fleiri inn-
Heimavellir hf. hefur birt lýsingar í tengslum við umsókn um að skuldabréfaflokkarnir HEIMA071225
og HEIMA071248 verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. Lýsingarnar eru dagsettar
5. júní 2019 og staðfestar af Fjármálaeftirlitinu, gefnar út á íslensku og birtar á vefsíðu Heimavalla hf.,
https://www.heimavellir.is/ is/fyrir-fjarfesta/skuldabrefautbod. Lýsingarnar má nálgast á vefsíðunni næstu 12
mánuð. Nasdaq Iceland hf. tilkynnir opinberlega, með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara, ef skuldabréfin
eru tekin til viðskipta og þá hvenær fyrsti mögulegi viðskiptadagur með bréfin eru á Aðalmarkaði Nasdaq
Iceland hf.
Skuldabréfin eru gefin út af Heimavöllum hf.. Höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa í flokknum
HEIMA071225, sem öll hafa verið seld nemur 1.140.000.000 kr. að nafnverði. Bréfin eru gefin út rafrænt í
kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. Auðkenni flokksins er HEIMA071225. ISIN-númer skuldabréfanna er
IS0000030799. Bréfin eru gefin út í íslenskum krónum og er hver eining skuldabréfanna 20.000.000 kr. að
nafnverði. Höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa í flokknum HEIMA071248, sem öll hafa verið seld nemur
4.260.000.000 kr. að nafnverði. Bréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. Auðkenni
flokksins er HEIMA071248. ISIN-númer skuldabréfanna er IS0000030807. Bréfin eru gefin út í íslenskum
krónum og er hver eining skuldabréfanna 20.000.000 kr. að nafnverði.
Nánari upplýsingar um Heimavelli hf. og skuldabréfaflokkana HEIMA071225
og HEIMA071248 má finna í Lýsingu skuldabréfa HEIMA071225 og Lýsingu
skuldabréfa HEIMA071248 gefnar út 5. júní 2019. Fyrirtækjaráðgjöf
Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hafði umsjón með því ferli að fá
skuldabréfin tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.
Reykjavík 6. júní 2019
Stjórn Heimavalla hf.
Birting lýsinga
Útgefandi: Heimavellir hf., kt. 440315-1190, Lágmúla 6, 108 Reykjavík