Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
„Við erum auðvitað mjög ánægð
með það að fá hann Óla hingað og
vonum að hann verði sem mest
hérna, enda flottur karl,“ segir
Árni Aðalbjarnarson, bakarameist-
ari í Gamla bakaríinu á Ísafirði.
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrver-
andi forseti Íslands, er sagður hafa
verið að skoða Túngötu 3 á Ísafirði,
húsið sem hann ólst upp í, síðustu
daga. Er hann enn fremur sagður
vera að ganga frá kaupum. Árni
segir að um lítið annað sé talað í
bænum þessa dagana, að minnsta
kosti í bakaríinu.
Ólafur Ragnar fæddist á Ísafirði
14. maí 1943 og er einkasonur
Gríms Kristgeirssonar og Svanhild-
ar Ólafsdóttur Hjartar, sem festu
kaup á húsinu við Túngötu á sínum
tíma. Er Ólafur Ragnar sagður
ávallt hugsa hlýtt til heimahag-
anna.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ísafjörður Húsið er við Túngötu.
Ólafur
Ragnar á
æskuslóðir
Íbúar ánægðir
með að fá „Óla“ aftur
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Grafir sem teknar verða í kirkju-
görðum á Íslandi á næsta ári, árið
2020, munu þekja tæplega 1,9 hekt-
ara lands eða tæplega 19.000 fer-
metra. Samsvarar það rúmlega 2,5
löglegum knattspyrnuvöllum (68
metrar á breidd og 105 m á lengd).
Þetta kemur fram í nýútkomnum
Bautasteini, riti Kirkjugarða-
sambands Íslands.
Þar kemur einnig fram að í spám
Hagstofu Íslands sé gert ráð fyrir að
dauðsföllum á hverja þúsund íbúa á
Íslandi fjölgi úr 6,6 árið 2017 í 9,5 ár-
ið 2050. Fjöldi látinna fer samkvæmt
því úr 2.251 árið 2017 í 4.132 árið
2050 sem er fjölgun um 83,5%. Að
óbreyttu hefði því mátt gera ráð fyr-
ir mikilli stækkunarþörf garðanna
vegna þessa. Hins vegar er búist við
því líkbrennslum fjölgi áfram en þær
draga mjög úr stækkunarþörf
kirkjugarða eðli máls samkvæmt.
Bálförum hefur fjölgað mjög á síð-
ustu árum. Nú eru um 53% útfara á
höfuðborgarsvæðinu bálfarir. Lítið
er um líkbrennslur á landsbyggðinni
og því var hlutfall bálfara á landinu í
heild 39,8% árið 2018.
„Áhrif líkbrennslu á stækkun
kirkjugarða er mikil. Gera má ráð
fyrir að bálförum haldi áfram að
fjölga og í spá KGSÍ til ársins 2050
er reiknað út frá þremur hlutföllum;
50%, 60% og 70%. Ef hlutfall bálfara
færi í 70% á landsvísu árið 2050, sem
stjórn KGSÍ telur líklegt, dregur
stórlega úr stækkunarþörf garðanna
auk þess sem auðvelt er að grafa
duftker í kistuleiði sem alltaf er að
aukast. Sú hagkvæmni er ekki með í
þessum útreikningum,“ segir í
Bautasteini.
Eina bálstofa landsins er í Foss-
vogi og sinnir hún öllu landinu, eftir
því sem óskað er. Er staðsetning
bálstofunnar talin ástæða þess að lít-
ið er um líkbrennslu á landsbyggð-
inni. Það kunni að vefjast fyrir fólki
að senda kisturnar með flutn-
ingabílum á milli landshluta.
Bálstofan í Fossvogi er orðin 70
ára og barn síns tíma. Brýnt er talið
að koma upp nýrri bálstofu og er
horft til þess að hún verði byggð í
Gufuneskirkjugarði.
Aðalfundur Kirkjugarðasam-
bands Íslands verður haldinn á Hall-
ormsstað næstkomandi laugardag,
8. júní. Sambandið var stofnað árið
1995 og markmið þess er að efla
samstarf starfsmanna og stjórna
kirkjugarða. Það gætir hagsmuna
kirkjugarða gagnvart stjórnvöldum
og miðlar upplýsingum um starf-
semina.
Grafir munu þekja 2,5
fótboltavelli á næsta ári
Fjölgun líkbrennsla dregur úr stækkunarþörf kirkjugarða
Morgunblaðið/Eyþór
Kirkjugarðar Færst hefur í vöxt að fólk setji íslenska fánann á leiði ástvina.
OUTLET DAG
AR
Allir Adidas og
Nike skór í Out
leti á
5000kr.út sunnudag.
LAUGAVEGUR 91 Meira úrval í verslun