Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 36
SVIÐSLJÓS Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Óvenjulegt verður um að litast á Normandíströnd Frakklands í dag en þar verður minnst með marg- víslegum hætti 75 ára afmælis áhlaups bandamanna á hernámslið þýska hersins á D-deginum svo- nefnda. Auk tignarfólks og ráða- manna verða þar herskarar ferða- manna sem margir hverjir eru langt að komnir til að taka þátt í skipuleg- um viðburðum afmælisins. Enn eru á lífi nokkur hundruð hermanna sem þátt tóku í innrásinni í Frakkland 6. júní 1944 og mun þorri þeirra saman kominn í Norm- andí og í Suður-Englandi. Víst þyk- ir, að aldurs þeirra vegna verði þetta síðasta þátttaka þeirra í atburðum til minningar um árásina. Rétt eins og 1944 sigldu 300 fyrrverandi D- dags hermenn í gærkvöldi með far- þegaskipi frá Portsmouth á suður- strönd Englands að ströndum Normandí til að rifja upp minningar frá siglingunum umfangsmiklu fyrir 75 árum. Þeir taka svo þátt í við- burðum dagsins, en meðal við- staddra verða þjóðhöfðingjar landa bandamanna og fleiri. Innrásardaginn í Normandí munu bandamenn hafa misst 4.413 menn; 2.501 bandaríska, 1.449 breska, 391 kanadíska og 73 frá öðrum löndum. Manntjón Þjóðverja er talið hafa verið milli 4.000 og 9.000 manns, að föllnum, særðum og stríðsföngum meðtöldum. Að kvöldi hans höfðu innrásarsveitirnar náð fótfestu í Frakklandi. Og innan við ellefu mán- uðum seinna voru hersveitir nasista í Evrópu endanlega yfirbugaðar. Innrásin í Normandí mun vera umfangsmesta herför sögunnar, bæði fyrr og seinna. Að meðtöldum fallhlífarhermönnum gengu 156.000 hermenn bandamanna á land þann dag á fimm strandfestustöðum. D- dags innrásin var upphafið að herför sem endað með frelsun Vestur- Evrópu úr klóm herja nasista og endalokum heimsstyrjaldarinnar seinni. Af hermönnunum 156.000 voru 73.000 bandarískir og 83.115 breskir og kanadískir. Mikill meiri- hluti innrásarsveitanna var breskur, kanadískur og bandarískur, en í at- burðum D-dagsins og orrustunni um Normandí tóku auk þeirra þátt her- menn frá Ástralíu, Belgíu, Tékkó- slóvakíu, Danmörku, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi, Nýja-Sjálandi, Noregi og Póllandi. Lauk orrustunni í Normandí í lok ágúst 1944 og er þá jafnan miðað við frelsun Parísar 25. ágúst. Alls féllu rúmlega 100.000 her- menn beggja stríðsaðila næstu tæp- lega þrjá mánuðina. Þá biðu um 20.000 óbreyttir Frakkar bana, að- allega af völdum loftárása banda- manna. Áfram héldu herflutningar frá Bretlandi til Frakklands. Fimm dög- um eftir upphaf innrásarinnar voru til Normandí komnir 326.547 her- menn, 54.186 farartæki og hergögn og 104.428 tonn af vistum og vopnum. Í þessum aðgerðum tók gríðarlegur skipafloti þátt, alls 6.393 skip, þar af 1.213 herskip, 4.126 landgönguskip og prammar, 736 hjálpar- og þjón- ustuskip og 864 kaupskip. Til stuðnings innrásarsveitunum á D-deginum höfðu bandamenn 11.590 flugvélar, m.a. vélar er fluttu fallhlíf- arhermenn. Fóru þær í alls 14.674 ferðir inn yfir Frakkland og komu 127 ekki til baka. Fallhlífarhermenn voru sendir með 2.395 flugvélum og 867 svifflugum inn yfir báða vængi herfylkingarinnar á strönd Norm- andí. Þann 30. júní lauk sjálfri inn- rásaraðgerðinni en þá höfðu herir bandamanna náð góðri fótfestu í Normandí og norðurströnd Frakk- lands. Vaxandi túrismi Hin síðari ár hefur ört vaxandi að- sókn verið að minnisvörðum um seinna heimsstríðið meðfram ströndum Normandí, að söfnum og fornum vígvöllum. Hefur straumur ferðamanna gefið vel af sér en sætt þeirri gagnrýni að einhver skelfileg- asti kafli heimssögunnar skuli hafa verið flekkaður af ófágaðri gróða- hyggju. Áhlaup ferðamanna hófst að ráði árið 1994 með veglegu 50 ára afmæli innrásar bandamanna í Frakkland. Þar voru fyrrverandi hermenn áber- andi og settu sterkan svip á sam- komur. Árið eftir heimsóttu 2,9 milljónir manna Normandí sem sögðust gagngert komnir þangað til að skoða arfleifð stríðsins. Stöðugt hefur fjölgað í þessum hópi ferða- manna ár frá ári og reyndust þeir fimm milljónir í fyrra. „Fyrstu söfnin voru sett á fót fjór- um til fimm árum eftir stríðið. Hófst það með söfnun einstaklinga á mun- um, tækjum og tólum sem innrás- arherirnir skildu eftir sig. Síðan tóku söfnin við,“ segir Dominique Saussey, sérfræðingur um D-daginn við AFP-fréttastofuna. Tók aðsókn- in kipp árið 1988 er hið opinbera minjasafn um innrásina var opnað í borginni Caen. Í það koma að jafnaði ríflega þúsund manns á degi hverj- um, eða um 370.000 gestir á ári. Enn sem fyrr hafa stríðsgrafreitir Storma um strandir Normandí  Hátíðarhöld fara fram í dag á 75 ára afmæli innrásarinnar í Normandí  Innrásin mun vera umfangsmesta herför sögunnar, bæði fyrr og seinna AFP AFP Umfangsmikil aðgerð Hermenn bandamanna á strönd Frakklands á innrásardeginum í Normandí 6. júní 1944. Stríðsminjar Leifar Mulberry flotbryggjunnar sem sett var saman á fyrstu stundu innrás- arinnar og gerði kleift að setja vélknúin stríðstól á land. Í baksýn má sjá hamrana sem hermenn urðu að klífa, oft undir kúlnahríð. 36 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Vinsamlegast pantið tíma hjá ráðgjafa í síma 580 3900 Fastus ehf. | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I fastus.is fastus.is Agility Föhr 4 FUHR Super 8 Mini Comfort RAFSKUTLUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.