Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 40

Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6 - G Ó LFMOTTUR - Marvel 170x240 kr. 61.200Marvel 170x240 kr. 61.200 Rugged 170x240 kr. 52.700 Magic 160x230 kr. 71.400Ravi 170x240 kr. 116.300 Stark 160x230 kr. 99.900 Vestmannaeyjar eru eyjaklasi við suð- urströnd Íslands þar sem á fimmta þúsund Íslendinga hefur kos- ið sér búsetu. Eyjarnar eru þekkt- ar fyrir stórbrotna náttúrufegurð, ævin- týralega byggðasögu, fjölbreytt dýralíf og ekki síst elju, sam- stöðu og gleði eyja- skeggja. Það sem færri þekkja þó er að Vestmannaeyingar hafa lengi verið í fremstu röð á heims- vísu hvað varðar vistvæna orku- framleiðslu. Hraunhitaveitan Eins ótrúlegt og það hljómar er enginn jarðhiti í Vestmannaeyjum og upphaflega voru hús hituð með kolum, olíu en loks rafmagni. Í ársbyrjun 1974 í kjölfar Heimaeyj- argossins var settur upp einfaldur varmaskiptir á Eld- fellshrauni sem kalt vatn rann í gegnum. Vatnið hitnaði í heitu hrauninu og var leitt inn á hitakerfi húsa. Um 1978 voru flest hús í Vestmanna- eyjum tengd hraun- hitaveitu sem hitaði upp hús í Vest- mannaeyjum í yfir 10 ár eða þar til hraunið fór að kólna. Hraun- hitaveitan var fyrsta og eina sinnar tegund- ar sem starfrækt hefur verið í heiminum svo vitað sé. Sorp til húshitunar Þegar sorporkustöð var starf- rækt í Vestmannaeyjum á árunum 1993-2013 var það í fyrsta skipti á landinu sem sorp var notað sem orkugjafi til húshitunar en í kjöl- far hertra umhverfisreglugerða var þeirri stöð lokað og tekið að flytja sorp frá Vestmannaeyjum með ferju sem siglir á olíu og að sama skapi þurfti á ný að kynda húsnæði Eyjaskeggja með ótryggri raforku og olíu. Landsnet lagði nýjan sæstreng til Eyja sem var tekinn í notkun árið 2013 og tryggði stórbætt af- hendingaröryggi orkunnar. Fram- kvæmdin gekk mjög hratt og vel fyrir sig, eða á methraða, enda var ekki neinu málþófi fyrir að fara hvað þann sæstreng varðaði. Sjóvarmadælustöð Í síðustu viku var vígð ný og glæsileg sjóvarmadælustöð HS veitna í Vestmannaeyjum og sú næststærsta í heiminum, en varmadælustöðin er að mati HS veitna ódýrasti virkjunarkosturinn um þessar mundir. Tilgangurinn með framkvæmdinni var að leita að hagkvæmasta úrræði til upphit- unar húsnæðis í Eyjum til fram- tíðar litið og um leið að treysta orkuöflunina en þar er sjór nýttur sem endurnýjanlegur orkugjafi í húsum í fyrsta skipti á Íslandi. Nýr Herjólfur rafknúinn Ný Vestmannaeyjaferja er loks- ins á leið heim frá Póllandi og verður þar með fyrsta rafknúna farþegaferjan á Íslandi. Sam- gönguráðherra ákvað í byrjun árs 2018 í ljósi áherslna ríkisstjórn- arsáttmálans í loftslagsmálum að rafvæða ferjuna að fullu þannig að þegar hún siglir á milli Vest- mannaeyja og Landeyjahafnar getur hún siglt á raforkunni einni saman en hún þarf hins vegar að reiða sig á olíu í lengri siglingum. Stuðningur hins opinbera HS Veitur er gott dæmi um það hvernig einkafyrirtæki á sam- keppnismarkaði tekur af skarið og leiðir samfélagið inn á nýjar og spennandi slóðir, umhverfinu og samfélaginu til heilla. Hið opin- bera getur veitt ýmsan stuðning við slík jákvæð verkefni, með lagasetningum, í styrkjaformi líkt og í varmadæluverkefninu, beinni íhlutun líkt og í nýrri Vest- mannaeyjaferju, fræðslu eða í formi skattaívilnana. Sveitar- félögin geta að sama skapi komið til móts við slíka starfsemi í formi samvinnu við deiliskipulag og framkvæmdir, stuðnings og hvatn- ingar til nýsköpunar o.fl. líkt og hefur verið keppikefli Vest- mannaeyjabæjar á undanförnum árum. Framtíðin í okkar höndum Framtíð Vestmannaeyja líkt og allrar jarðkringlunnar veltur fyrst og fremst á möguleikum mann- skynsins til að takast á við okkar alvarlegustu vandamál sem eru m.a. afleiðingar okkar eigin hegð- unar. Lausn þessara alvarlegu vandamála er að miklu leyti fólgin í þessari sömu hegðun og þá ýmist tregðu okkar eða vilja til að breyta henni, veröldinni til vansa eða vegsemdar. Vistvænar Vestmannaeyjar Eftir Hildi Sólveigu Sigurðardóttur Hildur Sólveig Sigurðardóttir » Vestmannaeyjar hafa verið í far- arbroddi í vistvænni orkuframleiðslu í 45 ár. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. hildursi@gmail.com Á forsíðu Bændablaðsins 23. ágúst 2018 kemur fram að 87% raforku á Íslandi séu sögð framleidd með kjarnorku, kolum, olíu og gasi. Þá er sagt að íslensk raforkufyrirtæki selji syndaaflausnir fyrir mengandi orku- iðnað í Evrópu. Á sama tíma er okk- ur sagt að leggja einkabílnum. En treystum við fólki, sem selur syndaaflausnir í orkumálum, fyrir þriðja orkupakkanum? Vestlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Orkupakkar Niðurstöður úr vor- ralli Hafró eru ekki upplífgandi. Vísitala þorsksins minnkaði annað árið í röð. Hafrómenn eru þó keikir og benda á að hún sé hærri nú en hún var 1985-2011. Aflaheimildir í þorski voru ekki skornar í fyrra, því þá notuðu menn tölur úr haustrallinu ári fyrr til að toga upp vísitöluna. Það er ekki hægt núna því vísitalan snarlækkaði í síðasta haustralli. Fróðlegt verður að sjá hvaða brögðum menn beita til að koma í veg fyrir niðurskurð í þorsk- afla. Vísitala ýsu lækkaði líka og vísi- tala ufsa lækkaði verulega svo vitn- að sé beint í skýrsluna en ufsastofn- inn minnkar mikið þrátt fyrir að miklu minna hafi verið veitt úr stofninum en ráðgjöfin gerði ráð fyrir. Þá er nýliðun þorsks ekki beysin, árgangur 2016 lélegur en sá frá 2017 virðist (ennþá) nærri með- allagi. Samt hefur hrygningarstofn þorsks verið risastór í mörg ár eða síðan makríllinn kom inn í lögsög- una og fóður varð til handa stórum fiski eftir hrygningu. Þegar verkefnastjóri togararalls- ins, fiskifræðingur, var spurður hvort ekki hefði mátt vænta betri nýliðunar hjá sterkum þorskstofni heldur en raun hefur verið síðustu ár svaraði hann að það hefði í sjálfu sér ekki verið verkefni þessa leið- angurs að meta samband hrygning- arstofns og nýliðunar. „Það virðist hafa vera mikil hrygning í gangi og því er ekki að neita að við hefðum viljað sjá þenn- an stóra hrygningarstofn skila meiri nýliðun. Hún hefur ekki verið í réttu hlutfalli við stærð hrygningarstofns- ins, sem segir manni þá að ein- hverjir aðrir þættir hafa áhrif á ár- gangastærð. Á næstu árum verður væntanlega lögð aukin áhersla á rannsóknir á nýliðun til að reyna að átta sig betur á stöðunni,“ segir verkefnisstjórinn. Það blasir við og hefur gert lengi að ekki er líffræðilegur grundvöllur fyrir fiskveiðistefnu Hafró. Margir fræðimenn hafa gagnrýnt það sem kallast veljandi veiðar, veiða stærsta og besta fiskinn en forðast að veiða þá smærri, nokkuð sem leiðir til hungurs og vanþrifa hjá smáfiski. Niðurstöður stofnmælinga nú sýna að 1-5 ára þorskur er horaður og á það einkum við fjögurra ára gamlan fisk. Gefa þær niðurstöður ekki augljóslega til kynna að auka beri sóknina í smáfisk? Hjá mörgum þorskstofnum hefur verið sýnt fram á að öfugt samband er milli hrygningarstofns og nýlið- unar, sem má þá skýra þannig að þegar hrygningarstofninn er stór, og þar með heildarstofninn, þá er ekki pláss fyrir meiri ungfisk. Þann- ig komu tveir stærstu árgangar í seinni tíð, 1983 og 1984, undan litlum hrygningarstofni, sem var um 140 þús. tonn en nú er hrygning- arstofninn nær fjórfaldur á við það og er að gefa sáralitla nýliðun. Enda sagði leiðangursstjórinn að menn yrðu að „reyna að átta sig betur á stöðunni“. Þessi aðferðafræði, að byggja upp stærri þorskstofn til að unnt verði að veiða meira, hefur gersamlega brugðist. Lagt var af stað með að væri ráðgjöf Hafró fylgt yrði unnt að veiða 500 þús. tonn af þorski ár- lega. Það hefur heldur betur brugð- ist, nú erum við að slefa upp í 260 þús. tonn og líkur eru á því að aflinn verði skorinn niður í vor, verði 20% aflareglunni fylgt, en allar líkur eru á því, en hún virðist háð alþjóða- samningum því Hafró er ekki sjálf- stæð og þarf að bera allt undir ICES. Þessi regla, að veiða minna en við gerðum áratugum saman, að taka nú 20% úr stofninum í stað 35% áð- ur, hefur þýtt að þorskaflinn hefur áratugum saman verið um 200 þús. tonnum minni á hverju ári en hann hefði getað verið. Svo eru menn að gera veður út af tapaðri loðnuvertíð, sem stafar m.a. af allt of stórum þorskstofni. Loðnan er nefnilega að- alfæða þorsksins á grunnslóð fyrir norðan tvö fyrstu æviár hennar. Brostnar vonir, þorskstofninn farinn að dragast saman Eftir Sigurjón Þórðarson og Jón Kristjánsson Jón KristjánssonSigurjón Þórðarson Höfundur er líffræðingur og Jón Kristjánsson fiskifræðingur. » Grundvöllur fisk- veiðiráðgjafar Hafró er augljóslega rangur. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.