Morgunblaðið - 06.06.2019, Qupperneq 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
✝ Erna Aspelundfæddist í
Reykjavík 15. júlí
1949. Hún lést 26.
maí 2019 á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans.
Foreldrar henn-
ar voru Júlíana
Guðmundsdóttir
Aspelund, f. 11.
desember 1913, d.
26. desember 2006,
og Georg Aspelund járn-
smíðameistari, f. 15. feb. 1915,
d. 23. mars 1972.
Systkini Ernu eru fjögur;
Axel, f. 1935, Edda, f. 1939,
Sigrún, f. 1946, og Elín, f.
1955.
Erna giftist Hans Guðna
Magnússyni árið 1968, þau
skildu.
Börn þeirra eru fjögur: 1)
Júlíana, f. 9. feb. 1969, maki
Guðmundur Hjartarson, f. 11.
Bergrún, f. 2016. Erna ólst
upp á Laugarteign í Reykjavík
þar sem fjölskyldan byggði
sér fjögurra íbúða hús ásamt
móðurbróður Ernu. Fljótlega
eftir að hún giftist fluttust
þau hjónin til Svíþjóðar þar
sem þau bjuggu í fimm ár og
vann hún þá m.a. í mötuneyti
Volvo. Eftir það lá leiðin aftur
til Íslands þar sem þau bjuggu
í Reykjavík og á Akranesi en
byggðu sér svo hús í Mos-
fellsbæ þangað sem þau fluttu
árið 1982. Erna bjó alla tíð
eftir það í Mosfellsbæ þar sem
börnin uxu úr grasi.
Erna gekk í Húsmæðraskól-
ann á Laugum í Reykjadal
veturinn 1966-1967.
Árið 1983 settist hún á
skólabekk við Sjúkraliðaskóla
Íslands þaðan sem hún útskrif-
aðist sem sjúkraliði árið 1986.
Þá fljótlega hóf hún störf á
Reykjalundi þar sem hún vann
til dauðadags.
Erna verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag, 6. júní
2019, klukkan 15.
júní 1966. Börn
þeirra eru þrjú:
Snæfríður, f.
1993, unnusti
Hlynur Freyr
Jónsson, f. 1993,
Sóllilja, f. 1994,
og Ernir, f. 1998.
2) Berglind Bára,
f. 31. mars 1972,
maki Guðmundur
Guðjónsson, f. 28.
des. 1972. Börn
þeirra eru þrjú; Guðjón Andri,
f. 2003, Hákon Kári, f. 2006,
og Dagbjört Lilja, f. 2010. 3)
Helena, f. 5. júní 1975, barns-
faðir Kristján Atli Hjaltalín, f.
30. maí 1973. Dætur þeirra
eru: Erna Dagný, f. 1994, og
Þorbjörg Tinna, f. 1997. 4)
Davíð Örvar, f. 1. desember
1982, maki hans er Jóhanna
Katrín Þórhallsdóttir, f. 4. maí
1978, dætur þeirra eru Þór-
hildur Jökla, f. 2012, og Halla
Tilveran getur verið skrítin.
Fyrir tveimur vikum brunuðum
við til höfuðborgarinnar því
„amma Mos“ var orðin eitthvað
veik. Fimm dögum síðar varstu
fallin frá. Eftir stöndum við, fjöl-
skylda og vinir, bæði hissa og í
sorg.
Það gleður okkur þó í þessari
óraunverulegu atburðarás að þú
varst þú sjálf til síðasta dags. Síð-
ustu mánuðir voru vel nýttir; lík-
lega hefur þú aldrei látið drauma
þína rætast eins og nýliðinn vetur
og nóg var framundan.
Þó að margt hafi verið ógert og
fráfallið fullkomlega ótímabært þá
stendur eftir sterkur hópur á öll-
um aldri – börn og barnabörn,
sem munu bera hróður þinn um
ókomin ár.
Við spjörum okkur og trúum að
þú munir gera það líka, hvar sem
þig ber að garði á þinni vegferð.
Davíð, Hanna Kata, Jökla
og Halla Bergrún.
Ekkert er jafn endanlegt og
dauðinn.
Ég mun ekki taka upp símann
og hringja í mömmu þegar mér
leiðist uppi í sófa. Mamma, ég er
að fara í próf, mamma, ég er búin í
prófinu, mamma, ég náði prófinu !
Hvert hringi ég með gleðifregnir
af mér og mínum?
Það er mjög erfitt að missa
mömmu sína. Mamma mín stóð
mér og börnum mínum nær en
allir. Hún bakaði tvö ísbox af
pönnukökum fyrir dóttur mína
þegar hún fór til útlanda (ég elsk-
aði hana endalaust fyrir það). Hún
hringdi í þriðja aðila til að hafa já-
kvæði áhrif á dóttur mína þegar
hún var í ritgerðaskrifum (ég elsk-
aði hana endalaust fyrir það).
Mamma tók alltaf upp símann
þegar ég hringdi, átti alltaf Bai-
leys og var alltaf boðin og búin til
að þjóna, hjálpa, hlusta eða gleðj-
ast með okkur. Ég man eftir
mömmu þrífa upp allt pínulitla
barbýdótið þegar ég fékk eina
nóttina í bernsku gubbupest og
ældi yfir allt litla dótið mitt (ég
elskaði hana endalaust fyrir það).
Það eru ótrúlegustu stundir sem
ég hef átt með elskulegu mömmu
minni sem ég ætla ekki að fara út í
hér. Mamma hefur einfaldlega
verið stór partur af mínu daglega
fjölskyldulífi og alltaf verið til taks
fyrir mig og börnin mín. Risastórt
skarð er hoggið með ótímabæru
fráfalli hennar. Var hægt að koma
í veg fyrir fráfall mömmu? Fráfall
mömmu var eins og hamför, eng-
inn aðdragandi, bara frumubreyt-
ingar og ekkert til að hafa áhyggj-
ur af. Krabbameinið dregur hana
til dauða á 9 mánuðum án þess að
við verðum þess vör. Frumubreyt-
ingar verða að lifandi barni á 9
mánuðum, tíminn er dýrmætur og
afar stutt á milli lífs og dauða. Eft-
ir situr fólk og spyr sig spurninga.
Ég mun sakna hennar sáran og
hugga mig við að einn daginn þeg-
ar ég verð farin að gleyma mun ég
endurheimta kynni mín við hana.
Þangað til mun ég halda uppi
minningunni um ótrúlega góða og
dugmikla konu sem var stór
amma barnabarna sinna.
Megi eilífðar sól á þig skína,
kærleikur umlykja
og þitt innra ljós þér lýsa,
Áfram þinn veg.
(Írskt ljóð)
Mamma, hvíl í friði og njóttu,
ljósið mitt.
Þín
Helena Hansdóttir Aspelund.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá
aftur huga þinn og þú munt sjá að þú
grætur vegna þess sem var gleði þín.
(Spámaðurinn, Kahlil Gibran)
Mamma var svo sannarlega
mikill gleðigjafi, einstök persóna
yst sem innst og erum við lánsöm
að hafa átt hana að. Fátt var það
sem hún ekki vildi gera fyrir af-
komendur sína og tengdabörn.
Hún sýndi ást sína og væntum-
þykju í verki.
Þegar við hjónin giftum okkur
ung að árum tók mamma af skarið
og undirbjó herlegheitin með
glæsibrag. Þegar börnin okkar
fæddust sýndi hún allan þann
stuðning sem þurfti án þess að
vera afskiptasöm. Þegar við flutt-
um heim frá Danmörku keyptum
við íbúð á byggingastigi og vorum
„heimilislaus“ í hálft ár. Þá bauð
mamma okkur að búa hjá sér, í
þriggja herbergja íbúðinni sinni
(bróðir minn bjó enn heima) og
svaf sjálf í stofunni næstu sex
mánuði.
Börnin mín, sem öll eru upp-
komin, elskuðu og dáðu ömmu
sína; þeim fannst hún með
skemmtilegri manneskjum enda
var alltaf stutt í húmorinn, gleðina
og allan þann stuðning sem þau
þurftu. Í apríl ferðuðumst við
hjónin um Asíu og þá passaði
mamma vel upp á Erni sinn. Ernir
veiktist af flensu á þessum tíma og
mamma fylgdist vel með honum
og sendi mér reglulega skýrslu á
messenger: „Er að bíða eftir lilla
prins, hann vildi hamborgara“
seinna kom: „Er orðinn góður,
hann vantar hóstasaft – er að
vinna í því. En hann er orðinn góð-
ur í hálsinum – gef honum heitt
toddy.“ Þessi skilaboð lýsa
mömmu vel og væntumþykjan
skín svo vel í gegn. Ernir sagði
ömmu sinni oft að hún væri ein
helsta fyrirmynd hans í lífinu.
Hann fór oft yfir til hennar að
læra, njóta samveru og ræða lífið
og tilveruna. Hann upplifði ekkert
kynslóðabil í þeim samræðum, því
hún talaði til barnabarna sinna á
jafningjagrundvelli.
Stelpurnar okkar hafa búið
meira erlendis síðustu ár en hér á
landi. Hún spurði mikið um þær
og fylgdist vel með öllu sem þær
gerðu. Mamma var stolt af þeim
sem og öllum hinum barnabörn-
unum. Ég er þakklát fyrir að hún
fékk að upplifa barnabörnin sín og
náði að skapa þeim dýrmætar
minningar um dásamlega ömmu.
Mamma var iðin, vinnusöm og
listræn; margar flíkur hefur hún
prjónað á okkur öll. Hún hafði un-
un af tónlist og var dugleg að
sækja alls kyns tónleika, leikhús
og aðra listviðburði. Hún vann all-
an sinn starfsaldur við að hugsa
um aðra. Þegar hún útskrifaðist
sem sjúkraliði hóf hún störf á
Reykjalundi, þar sem hún vann til
dauðadags. Hún var að verða sjö-
tug í sumar og ætlaði þá að hætta.
Oft ræddi ég við hana hvort að
hún vildi nú ekki bara hætta fyrr,
en það datt henni ekki í hug, henni
leið vel í vinnunni og átti þar gott
samstarfsfólk og vinkonur.
Nú sitjum við eftir með sár í
hjarta og minningar um yndislega
persónu, minningar sem munu
varðveitast með okkur. Ég veit að
mamma er umvafin ljósi og hefur
það gott; situr sjálfsagt og gantast
með afa og amma fylgist brosandi
með.
Ég elska þig mamma og sakna
þín mikið. Við systkinin lofum að
passa vel upp á hvert annað,
standa þétt saman og styðja hvort
annað í gegnum lífið.
Júlíana.
Elsku besta mamma mín, klett-
urinn minn, hvernig má þetta
vera? Og hvað eigum við nú að
gera? Hvort sem það voru viku-
ferðir, helgarferðir, kvöld-
skemmtanir, að sækja í skóla,
skutla á æfingu, skólaskemmtan-
ir, danssýningar og hvað eina, allt-
af varstu tilbúin að mæta, passa
eða gera það sem gera þurfti og
stundum var það meira að segja
komið í dagatalið þótt eingöngu
væri um pælingar að ræða. Ómet-
anleg forréttindi sem maður áttar
sig í raun ekki á fyrr en maður
stendur frammi fyrir viðlíka skelli
sem ótímabært fráfall þitt er. Ég
minnist þess ekki að þú hafir áður
lagst inn á spítala, stundum
fékkstu smáflensuskít eins og
gengur en alltaf varstu fljót að
hrista slíkt af þér. Þú varst eins og
klettur. Þú hefur reynt ýmislegt
um ævina, sumt sem beygði þig
meira en þú vildir en alltaf stóðstu
upp og komst sterkari til baka. Þú
lagðir mikla áherslu á menntun
okkar systkinanna enda náðir þú í
þína dýrmætu menntun eftir tæp-
lega 20 ár í búskap og fjögur börn
og þar af eitt pínulítið. Við systk-
inin gengum öll menntaveginn, er-
um öll með háskólagráðu og
barnabörnin á sömu vegferð, veg-
ferð sem þú fylgdist náið með og
ætlaðir svo sannarlega að vera við
útskrift eins ömmugullsins kvöld-
ið fyrir andlát þitt, ömmugulls
sem fetar í þín spor og mun halda
áfram heillaríkri vegferð þinni
sem sjúkraliði. Þú varst gríðar-
lega stolt af henni, eins og reyndar
okkur öllum, og átt stóran þátt í
velgengni okkar og sigrum. Minn-
ingarnar eru margar. Ein af þeim
sem standa upp úr er ferðin sem
við fórum inn í Þórsmörk um árið,
ég sat heima hundfúl yfir að hafa
ekki farið með hópnum sem lagði í
mörkina deginum áður og þú
reyndir allt hvað þú gast til að
hressa mig. Að lokum ákvaðst þú
að við skyldum bara skella okkar
saman og þrátt fyrir jeppaleysið
myndi þetta nú allt saman redd-
ast, sem það og jú gerði og dásam-
legur svipurinn á fólkinu þegar við
birtumst í tjaldbúðunum eftir æv-
intýraferðina okkar, því þá voru
engir gemsar til að boða komu
sína fyrir fram. Útivist var eitt af
aðaláhugamálum þínum, þú hefur
farið um flest fjöll og firnindi
hringinn í kringum landið og skilið
eftir sögu þína í máli og myndum.
Útivistarbakteríunni smitaðir þú
mig af með hughrifum þínum af
upplifuninni og ekki vorum við
systkinin gömul þegar þú leiddir
okkur Laugaveginn í fyrsta sinn.
Þessu hef ég reynt að miðla áfram
til minna barna og mun halda því
áfram og setja á listann hjá mér
lengri göngur þar sem ég feta í
fótsporin þín á Hornströndum,
Lónsöræfum eða austfirsku ölp-
unum. Elsku mamma mín. Takk
fyrir þá ást og kærleik sem þú
gafst mér og mínum, alltaf til stað-
ar segja börnin mín aðspurð um
minningu um ömmu, takk fyrir
allt. Minning þín verður ljós í lífi
okkar um aldur og ævi.
Berglind.
I dag kveðjum við okkar elsku-
legu systur og mágkonu sem
kvaddi okkur mjög óvænt eftir
stutt veikindi. Okkur er þakklæti
efst í huga fyrir allt sem hún gaf
okkur af gleði og góðri nærveru.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Minning þín mun lifa með okk-
ur,elsku Erna.
Edda, Sigrún og Elín
Þorsteinn og Þorkell.
Elsku besta amma mín. Ég og
fólkið þitt misstum svo mikið þeg-
ar þú yfirgafst okkar mannlegu
vistir en ég veit að fallega sálin þín
heldur áfram að vera hjá okkur.
Mér finnst svo lýsandi fyrir þig
þegar þú fórst í bankann í bux-
unum á röngunni og ætlaðir svo að
truflast úr hlátri þegar þú áttaðir
þig á því eftir á. Þú hafðir alltaf
húmor fyrir sjálfri þér og ég mun
halda áfram að heyra hláturinn
þinn skella við þegar ég hugsa til
þín, svo lengi sem ég lifi.
Það eru ekki til orð sem lýsa
ósanngirni þess að þú yfirgafst
þessa jörðu svona snemma með öll
skemmtilegu plönin fram undan.
En við lofum að njóta fyrir þig, að
skála fyrir þér og ferðast til heið-
urs þér.
Það verður alltaf stuð þar sem
þú ert og englarnir á himnum eru
heppnir með nýtilkomna fé-
lagsskapinn. Í himnaríki verður
nú stanslaus veisla með nógu af ís-
lenskum dægurlögum, heitu
bakkelsi og prins póló.
Sofðu rótt, fallega kona. Takk
fyrir allt sem þú hefur kennt mér
og alla ástina sem þú veittir mér.
Við sjáumst síðar.
Sóllilja Guðmundsdóttir.
Elsku bestu amma mín.
Það sást svo auðveldlega hvað
þú dáðir mikið börn og barnabörn
þín, varst alltaf tilbúin að gera allt
í þínu valdi til að hjálpa okkur. Það
Erna Aspelund
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR ERLA JÓNSDÓTTIR,
Njarðarvöllum 6, Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
miðvikudaginn 29. maí. Útförin fer fram
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 11. júní klukkan 14.
Jón Davíð Olgeirsson Guðbjörg Vilhjálmsdóttir
Eyrún Kristín Olgeirsdóttir
Sigurveig Ósk Olgeirsdóttir Georg Arnar Þorsteinsson
Sjöfn Olgeirsdóttir Sigurgeir Guðni Tómasson
Bárður Olgeirsson Jónína Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir, amma og langamma,
STEINA GUÐRÚN HAMMER
GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Hjúkrunarheimilinu Eir 28. maí. Jarðarförin
mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Blóm og kransar eru afþakkaðir. Til að minnast hennar er bent á
að styrkja Krabbameinsfélagið.
Tómas Aldar Baldvinsson
Theodór Aldar Tómasson
Berglind Mjöll Tómasdóttir
Hrefna Nilsen Tómasdóttir
Steina Guðbjörg Tómasdóttir
Baldvin Páll Tómasson
Þórný Björg Tómasdóttir
makar og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
DÓMHILDUR GOTTLIEBSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést fimmtudaginn 16. maí.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Hólmfríður Guðmundsdóttir Hannes Árnason
Dóra Guðmundsdóttir Robert Andrews
og barnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ERNA JÓHANNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Klausturhólum 3,
Kirkjubæjarklaustri,
lést sunnudaginn 12. maí
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðmundur Guðjónsson Lára Bergsveinsdóttir
Agnar Georg Guðjónsson
Örn Ómar Guðjónsson Seble Work Mamo
barnabörn og barnabarnabörn