Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 „Citrus Cocktail Co.“ sem Jónas Heiðarr er í forsvari fyrir býður upp á þá þjónustu að mæta með allt hráefni í mismunandi kokkteila og blanda kokkteilana á staðnum fyrir þyrsta gesti í veislum af ýmsum toga. Hann heimsótti Ísland vaknar í vikunni og sagði frá vinsældum þjón- ustunnar. Margir velja orðið að kaupa þessa þjónustu í staðinn fyrir að bjóða upp á pylsubíl, matarvagn eða annað en hann bendir á að þjón- ustan kosti sitt. Undirbúningur barþjónanna er mikill, sérstaklega þegar gestirnir í veislunni eru margir. Jónas þarf oft að vakna klukkan 8 á morgnana til að byrja undirbúning fyrir brúð- kaup með því að kreista fram safa fyrir kokkt- eilana, búa til sírópið, útvega ferska ávexti, svo eitthvað sé nefnt. Svo þarf auðvitað að fara með öll herlegheitin í veisluna og blanda kokkteilinn á staðnum. Jónas segir að hann hafi ekki farið í sértækt nám til að læra að vera kokkteilbarþjónn heldur sé hann sjálfmenntaður. Í fjölskylduboðum, þegar Jónas er spurður við hvað hann starfi, veki titillinn kokkteilbarþjónn mun meiri eft- irtekt heldur en að segjast bara vera barþjónn. Nýjar uppskriftir að kokkteilum skjóta oft upp kollinum og sumir þeirra ná fótfestu. Þeir klassísku halda aftur á móti vinsældum sínum. Basil Gimlet er einn þeirra en þar er á ferðinni grænn drykkur sem mörgum þykir girnilegur. Þessi kokkteill er grænn að lit, borinn fram í fallegu glasi og standa basilíkulauf upp úr drykknum. Kristín Sif, einn þáttastjórnenda Ísland vaknar sagði í þættinum að þetta væri hennar nýi uppáhalds- kokkteill þó að hún hefði aldrei smakkað hann. Það er því ljóst að stór hluti upplifunarinnar af því að drekka vandaðan kokkteil felst í útliti hans. Hráefnið í Basil er gin, ferskur lime-safi, sykursíróp og fersk basilíkulauf. Þetta er allt sett saman í réttum hlutföllum í blandara og hrist vel. Ástæður fyrir því að kokkteilarnir virðast vera að ná fyrri hæðum í vinsæld- um má að einhverju leyti rekja til þess að á Slippbarnum var fyrsti íslenski kokkt- eilbarinn opnaður, en fjölmargir áhuga- menn um góða kokkteila leggja leið sína þangað til að kynna sér nýjar tegundir. Jónas vakti at- hygli á því að Slippbarinn hefði í upphafi gefið sig út fyrir að bjóða ekki upp á drykkinn Mojito enda var hann í boði á nánast öllum öldurhúsum borgarinnar og naut gríðarlegra vinsælda. Jónas segir að gæði kokkteila liggi að miklu leyti í hráefnunum. Áðurnefndur Slippbar aug- lýsti til að mynda að þeir byðu upp á ferskt hrá- efni sem Jónas segir að skipti gríð- arlega miklu máli fyrir viðskiptavini sem vilji vandaða og góða vöru. Margir kokkteilbarþjónar sýna listir sem minna á sirkusatriði þegar þeir blanda kokkt- eila. Þannig henda menn flöskum upp í loft, láta þær snúast í heilan hring áður en kokkteillinn er blandaður og sumir kasta þeim aftur fyrir sig og yfir höfuð eins og heimsbyggðin sá til dæmis í vinsælu kvikmyndinni Cocktail með Tom Cruise í aðalhutverki á níunda áratug síðustu aldar. Jónas segir að hann ástundi þessar listir ekki mikið en þó séu margir kokkteilbarþjónar á Íslandi býsna flinkir í þessu. Stælar af þessu tagi hafa hins vegar alls ekkert úrslitavald um gæði kokkteilbarþjónsins. Þeir sem ekki drekka áfengi og þeir sem vilja ekki verða ölvaðir þurfa ekki að upplifa sig út- undan. Lítt áfengir og jafnvel áfengislausir kokkteilar verða stöðugt vinsælli að sögn Jón- asar og eru fjölmargar uppskriftir til að slíkum sem náð hafa miklum vinsældum. Þannig geta menn nú drukkið kokkteila án þess að þurfa að hafa áhyggjur af timburmönnum daginn eftir. islandvaknar@k100.is Jónas Heiðarr kokkteilbarþjónn segir að þeim fjölgi stöðugt sem ráða barþjóna til að mæta í gleðskapinn á heimilinu, í brúðkaupið eða á aðra mannfagnaði til að búa til alvöru kokkteila. Kokkteilbarþjónar mæta í veisluna Ferskur Lime leaf Daiguquiri þykir bragðgóður. Kokkteilbarþjónn Jónas Heiðarr. Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is Vandaðir þýskir póstkassar, hengi- lásar, hjólalásar og lyklabox. MIKIÐ ÚRVAL Vefverslun brynja.is Opið virka daga frá 9 -18 lau f rá 10 -16 Fagmennska í 100 ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.