Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.06.2019, Blaðsíða 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 60 ára Jón er Reykvík- ingur og er slökkviliðs- og sjúkraflutningam. Maki: Ingunn Jón- mundsdóttir, f. 1963, hárgreiðslumeistari. Börn: Arnar Snorri, f. 1981, Sandra Dögg, f. 1986, Lára Sif, f. 1996, og Írena Sóley, f. 2001. Stjúpdóttir: Margrét Kristjáns- dóttir, f. 1986. Barnabörn: Emilíana Unnur, Ingunn Birna, Mikael Máni, Daníel Darri og Sara Guðrún. Foreldrar: Pétur Jónsson, f. 1937, og Sveinbjörg Pétursdóttir, f. 1937. Þau eru bús. í Reykjavík. Jón Pétursson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú þarft að athuga vel hvernig þú setur hlutina fram því það skiptir sköpum að allir skilji hvert þú ert að fara. 20. apríl - 20. maí  Naut Hafðu varann á og gættu þess að persónulegar upplýsingar um þig séu öruggar. Jákvæðni fleytir þér langt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir að láta til þín taka í vinnunni í dag. Þú ert ekki til í að láta stjórna þér en þú hefur látið það viðgang- ast of lengi. Göngutúr í náttúrunni hressir andann. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Mundu að láta aðra í friði með sín leyndarmál. Reyndu að nota tækifærið og snúa hlutunum þér í hag. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert á réttri leið en þarft þó að vera ákveðin/n til að hlutirnir gangi hraðar fyrir sig. Mundu að sannleikurinn er sagna bestur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú situr uppi með sjálfa/n þig, til viðbótar við þá sem þú kýst að vera sam- vistum við. Verkefnin eru næg og þú verð- ur að skella þér í þau af krafti. 23. sept. - 22. okt.  VogMundu að allir hafa eitthvað til síns ágætis. Eitthvað sem sagt er hefur mikil áhrif á þig. Komdu hjólinu þínu í lag. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú munt komast að því að hæfileikar þínir liggja á mörgum sviðum. Drífðu í því að kalla fjölskyldu og vini sam- an og njóttu þess að eiga með þeim góða stund. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert í millibilsástandi. Gerðu ráð fyrir lagfæringum og viðgerðum heima fyrir og taktu frá tíma fyrir mikilvæg fjöl- skyldumál. Eitthvað innra með segir þér að flýta þér hægt í ástamálunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þetta er góður dagur til að ræða við fjölskylduna um fjármálin og allt sem þeim tengist. Ekki láta plata þig til að kaupa hluti sem þú hefur enga þörf fyrir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú færð oft góðar hugmyndir en gleymir þeim jafnóðum. Skrifaðu þær niður. Þú hittir manneskju sem þú hefur forðast lengi. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér verður gert tilboð sem hljómar þannig að það er of gott til að vera satt. Hugur þinn er fullur af lausnum. er í fæðingarorlofi núna svo hún tók sér frí frá því að leika í sýningunni. Hún hefur samt verið að leika í sjón- varpsseríunni Ráðherrann sem verður sýnd á RÚV um áramótin. „Ég hef undanfarin ár verið að tertainment sem setti upp sýn- inguna Íslendingasögurnar sem þau sömdu. Sýningin hefur verið í Hörpu frá 2016 og er bókuð fram á mitt ár 2020, en þar eru Íslendingasögurnar 40 teknar fyrir á 75 mínútum. Lilja L ilja Nótt Þórarinsdóttir fæddist 6. júní 1979 í Reykjavík og ólst upp í sveitasælunni í Eyvík í Grímsnesi. „Maður fór í öll störf eins og gerist í sveitinni og fór að keyra traktor tíu ára sem yrði ekki leyft í dag. Foreldrum mínum var mikið í mun að ég færi ekki á mis við neitt þótt ég ætti heima í sveit- inni svo ég æfði allar íþróttir sem hægt var, fótbolta, handbolta, körfu- bolta og dans, en ég var mest í frjáls- um og komst í unglingalandslið og svo var ég mikil hestakona og er enn.“ Lilja kláraði 8. bekk í Ljósafoss- skóla en lauk grunnskólaprófi úr gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar 1995. Hún varð stúdent frá Kvenna- skólanum árið 1999 og lauk B.f.A- gráðu í leiklist frá Listaháskóla Ís- lands árið 2009. „Það var tiltölulega snemma sem ég vildi verða leikkona og lék í öllu sem hægt var í barna- skóla og framhaldsskóla.“ Lilja hefur starfað sem leikkona frá útskrift með ýmsum leikhópum og í Þjóðleikhúsinu með hléum. Í Þjóðleikhúsinu lék hún m.a. í Brennuvörgunum, Gerplu og Snæ- fríði Íslandssól í Íslandsklukkunni, sem var 60 ára afmælissýning leik- hússins. Sjálfstæðu fólki og Karítas. Hún hefur leikið í ýmsum kvikmynd- um eins og Reykjavík-Rotterdam og í sjónvarpsþáttum eins og Rétti, Ástríði, Ófærð og Sense 8 sem leik- stjórar Matrix-myndanna gerðu. Hún hefur unnið sem við- burðastýra, framleiðandi á Íslandi og erlendis, og er meðhöfundur í ýmsum sviðslistaverkum. „Það var lögð áhersla á það í mínum bekk að búa til okkar eigin verk. Það er alltaf verið að spyrja um drauma- hlutverkið og ég lék strax í byrjun Snæfríði Íslandssól og hvað svo, spurði maður. Ég ákvað því að búa til mín eigin draumahlutverk með því að fara að skrifa og geta stjórnað meira mínum ferli.“ Lilja setti ásamt öðrum upp sýn- inguna Eftir lokin eftir Dennis Kelly í Tjarnarbíói og stofnaði í félagi við Ólaf Egilsson og Jóhann G. Jó- hannsson fyrirtækið Welcome En- skrifa læknaseríu og Saga film er komin í verkefnið og tökur ættu að geta hafist á næsta ári. Svo er ég að vinna að nýrri seríu ásamt bresku fyrirtæki og er búin að stofna fyrir- tækið Pinklar Media og ætla að fara Lilja Nótt Þórarinsdóttir, leikkona og framleiðandi – 40 ára Fjölskyldan Lilja og Ólafur ásamt Emmu Björgu og Birtu Sigrúnu í Colombo á Srí Lanka. Býr til sín eigin draumahlutverk Í þríhnjúkagíg Lilja ásamt foreldrum sínum. Íslandsklukkan Sýning frá 2010. 30 ára Andrea er Hafnfirðingur en býr í Sjálandshverfinu í Garðabæ. Hún er margmiðlunarhönn- uður frá Margmiðl- unarskólanum, með diplómu í grafískri miðlun frá Florence University of Arts og BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Ís- lands. Hún er margmiðlunarhönnuður og graf- ískur hönnuður hjá auglýsingastofunni Kiwi. Bróðir: Ágúst Arnar Hringsson, f. 1988. Móðir: Ólafía Lára Ágústsdóttir, f. 1959, kennari í Setbergsskóla í Hafn- arfirði. Andrea Guðrún Hringsdóttir Til hamingju með daginn Þessar kátu og duglegu stelpur, þær Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir, Anika Snædís Gautadóttir og María Sól Helgadóttir söfnuðu flöskum á Akureyri og gáfu Eyjafjarð- ardeild Rauða krossins ágóð- ann, samtals 1.632 krónur. Hlutavelta Utanborðsmótorar Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar Fyrirliggjandi á lager, margar stærðir utanborðsmótora Verkstæði Vélasölunnar hefur á að skipa sérhæfum starfsmönnum til viðgerða og viðhalds á Mercruiser bátavélum og Mercury utanborðsmótorum. Bátar á sjó og vötn Ný sending af TERHI bátum TERHI 475 BR TERHI 450
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.