Morgunblaðið - 06.06.2019, Síða 57

Morgunblaðið - 06.06.2019, Síða 57
DÆGRADVÖL 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 „ÞAÐ ER ÞRENNT Í STÖÐUNNI.” „MÁ BJÓÐA ÞÉR AÐ GEFA EINHVER LÍFFÆRI Á MEÐAN SVÆFINGIN VARIR, LÁRUS MINN?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... fyrsti afmælissöngurinn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KETTIR FINNA Á SÉR ÞEGAR ÓHÖPP ERU Á NÆSTA LEITI HVERNIG? VEGNA ÞESS AÐ ÞEIR ERU OFTAST ORSÖKIN HVAÐ ER Í MATINN? FINNDU EITTHVAÐ Í GRÆNMETISBEÐINU! að setja upp fleiri sýningar þegar ég er búin í fæðingarorlofinu.“ Helstu áhugamál Lilju eru leik- list, kvikmyndir, bókmenntir, nátt- úran og náttúruvernd og útivera, íþróttaiðkun, ævintýramennska, tungumál, sagnfræði, heimspeki, og ferðalög. „Ég vann meðal annars í Þríhnjúkagíg og það voru algjörir töfrar, alveg magnað og hef einnig unnið fyrir Landvernd eins og allir ættu að gera.“ Þess má líka geta að Lilja hefur verið talskona fyrir Amnesty International á Íslandi og lesið inn á auglýsingar fyrir sam- tökin og gert myndbönd. Fjölskylda Eiginmaður Lilju er Ólafur Gauti Guðmundsson, f. 15. febrúar 1978, hugbúnaðararkitekt og fram- kvæmdastjóri á tæknisviði (senior director of engineering) hjá Trip Advisor. Foreldrar hans eru Guð- mundur G. Þórarinsson, f. 29. októ- ber 1939, verkfræðingur, og Anna Björg Jónsdóttir, f. 15. maí 1939, læknaritari. Þau eru fráskilin. Börn Lilju og Ólafs eru Emma Björg Ólafsdóttir, f. 3. nóvember 2013, og Birta Sigrún Ólafsdóttir, f. 5. október 2018. Bróðir Lilju er Magnús Þór- arinsson, f. 6. september 1980, slökkviliðsmaður í Gautaborg í Svíþjóð. Foreldrar Lilju eru hjónin Sigrún Reynisdóttir, f. 16. október 1955, líf- eindafræðingur og Þórarinn Magn- ússon, f. 31. desember 1955, húsa- smíðameistari og eldvarnar- eftirlitsmaður. Þau eru búsett í Eyvík í Grímsnesi og eru fyrrver- andi bændur þar. Lilja Nótt Þórarinsdóttir Þórarinn Magnússon húsasmíðameistari og eldvarnareftirlitsmaður í Eyvík Guðbjörg Jónsdóttir leikskólaliði í Reykjavík Jón Meyvantsson sjómaður í Reykjavík Guðrún Stefánsdóttir húsfreyja í Reykjavík Kolbeinn Reynisson bóndi í Eyvík Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þórarinn Magnússon skósmiður í Reykjavík Magnús Þórarinsson leiksviðsstjóri í Þjóðleikhúsinu Guðmundur Þórarinsson landsliðsþjálfari í frjálsum íþróttum Helga Þórarinsdóttir handavinnukennari og formaður Þjóðdansafélagsins Kristinn Magnússon fornleifafræðingur Tómas Sigurtryggvason bóndi á Syðri-Neslöndum og í Björk Guðrún Sigtryggsdóttir húsfreyja á Syðri- Neslöndum í Mývatnssveit og í Björk í Grímsnesi Reynir Tómasson bóndi í Eyvík Guðmundur Jóhannesson „Gvendur í Króki“ bóndi í Króki í Grímsnesi Emma Kolbeinsdóttir hannyrðakona og húsfreyja í Eyvík Kolbeinn Jóhannesson bóndi í Eyvík Steinunn Magnúsdóttir húsfreyja í Eyvík Úr frændgarði Lilju Nóttar Þórarinsdóttur Sigrún Reynisdóttir lífeindafræðingur í Eyvík í Grímsnesi Það er mörg „vegferðin“, – Ólaf-ur Stefánsson yrkir: Þegar ataðist upp fyrir haus, í yrkingum, sem voru hnaus- þykkar að formi með þjóðlegu normi. Þá hugur við útkomu hraus. Ingólfur Ómar var fyrir helgina í blíðskaparveðri austur í Grímsnesi og beðinn að yrkja stöku þar sem yrkisefnið væri góður, betri, bestur: Gott er að eiga góða dvöl í grænum lundi að vonum, – betra er þó að bergja öl en best að gagnast konum. Og nú rifjast upp vísa Káins: Góður, betri, bestur burtu voru reknir; illur, verri, verstur voru aftur teknir. Pétur Stefánsson nýtur góðviðr- isins: Leikur allt í lyndi hér, ljómar sól um bæinn. Veðurblíða úti er uppstigningadaginn. Þegar þetta er skrifað er ég á för- um norður og hef í farangrinum Ey- firðingabók séra Benjamíns Krist- jánssonar. Þar segir frá því að Gunnlaugur Briem (f. 1773) sýslu- maður og Valgerður kona hans hafi verið há, grannvaxin og fríð sýnum. Eitthvert sinn kvað Gunnlaugur í gamni við Valgerði, er þau voru í til- hugalífinu: Varla get ég, Valgerður mín, ætlað, að veröldin okkur verði of þröng, við erum bæði mjó og löng. Ólafur Briem timburmeistari á Grund, sá snjalli hagyrðingur og rímnaskáld, var sonur þeirra sýslu- mannshjóna . Hann orti í gamni um prest: Hann fór suður himinblár, heim kom aftur svartur, þessi Herrans húðarklár á himnum verður bjartur. Þessa virðist Ólafur yrkja um matgogg: Líkastur ertu maðki í mold því matarins eins þú gætir. Ef djöfullinn hefði dauðlegt hold dræpir þú hann og ætir. Hallmundur Guðmundsson yrkir á Boðnarmiði „Lítið ljóð að norðan“: Ef sólin hátt á himni skín, hjúpuð skýjatrafi; er ósköp sælt að sötra vín í svalanum frá hafi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Yrkisefnin koma héðan og þaðan Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 La Mol l la - fa l leg útskr i f targ jöf ! í tö lsk hönnun frá Tiz iana Redav id

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.