Morgunblaðið - 06.06.2019, Qupperneq 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Pepsi Max-deild kvenna
Selfoss – Þór/KA ...................................... 0:1
Staðan:
Valur 5 5 0 0 17:3 15
Breiðablik 5 5 0 0 17:4 15
Þór/KA 6 4 0 2 11:11 12
Stjarnan 5 3 0 2 5:7 9
ÍBV 5 2 0 3 9:7 6
Fylkir 5 2 0 3 6:9 6
HK/Víkingur 5 2 0 3 3:7 6
Selfoss 6 2 0 4 6:12 6
KR 5 1 0 4 5:11 3
Keflavík 5 0 0 5 4:12 0
2. deild kvenna
Völsungur – FHL..................................... 2:1
Staðan:
Grótta 3 2 1 0 8:1 7
Álftanes 2 2 0 0 10:1 6
Völsungur 2 2 0 0 5:2 6
Fjarð/Hött/Leikn. 3 1 0 2 4:4 3
Hamrarnir 3 1 0 2 3:6 3
Leiknir R. 3 0 1 2 1:9 1
Sindri 2 0 0 2 1:9 0
Þjóðadeild UEFA
Undanúrslit í Porto:
Portúgal – Sviss ....................................... 3:1
Cristiano Ronaldo 25., 88., 90. – Ricardo
Rodríguez 57. (víti).
KNATTSPYRNA
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Samsungv.: Stjarnan – Breiðablik...... 19.15
Meistaravellir: KR – Keflavík ............. 19.15
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Eimskipsv.: Þróttur R. – Augnablik... 19.15
Mustad-völlur: Grindavík – FH .......... 19.15
Hertz-völlur: ÍR – ÍA ........................... 19.15
Ásvellir: Haukar – Afturelding ........... 19.15
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Fram........ 19.15
2. deild karla:
Húsavíkurv.: Völsungur – Dalvík/Rey 19.15
3. deild karla:
Valsvöllur: KH – Reynir S........................ 20
HANDKNATTLEIKUR
Umspil HM kvenna, seinni leikur:
Laugardalshöll: Ísland – Spánn.......... 19.45
Í KVÖLD!
Þýskaland
Undanúrslit, annar leikur:
Alba Berlín – Oldenburg .................... 79:68
Martin Hermannsson skoraði 10 stig
fyrir Alba Berlín, tók 3 fráköst og gaf 5
stoðsendingar á 26 mínútum.
Alba Berlín er 2:0 yfir í einvíginu en
vinna þarf þrjá leiki.
KÖRFUBOLTI
ins í síðustu leikjum þó að mörkin
hafi látið á sér standa. Barbára
Gísladóttir og Grace Rapp voru
mjög sprækar framan af en tókst
ekki að skora. Það var eingöngu
vegna frábærrar framgöngu Bryn-
dísar Láru Hrafnkelsdóttur í marki
Þórs/KA. Landeyingurinn ætlaði
ekki að gefa Selfyssingunum neitt.
Fyrri hálfleikur var mjög opinn og
skemmtilegur og bæði lið hefðu auð-
veldlega getað bætt við mörkum.
Staðan gjörbreyttist í seinni hálfleik,
sjálfsagt eftir taktískar ræður þjálf-
aranna. Selfoss var ívið meira með
boltann en færin voru fá, og hinum
megin á vellinum gerðu þær vín-
rauðu vel í því að loka á sókn-
araðgerðir gestanna.
Munurinn í gærkvöldi lá í gæðum
hinnar mexíkósku Stephany Mayor
sem þurfti bara eitt færi til þess að
gera út um leikinn. Þór/KA er áfram
í 3. sætinu og liðið bíður eftir því að
toppliðin misstígi sig.
Múr úr Land-
eyjum og mark
frá Mexíkó
Þór/KA fagnaði sigri fyrir „fríið“
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Lykilmaður Stephany Mayor skoraði sigurmarkið á Selfossi í gær.
Á SELFOSSI
Guðmundur Karl
sport@mbl.is
Akureyringar geta farið glaðir inn í
fríið í Pepsi Max deild kvenna í
knattspyrnu en Þór/KA vann góðan
sigur á Selfossi á útivelli í gærkvöldi,
1:0. Þetta var fyrsti leikurinn í 6.
umferðinni en nú tekur við rúmlega
tveggja vikna hlé sem gefur norð-
anliðinu tækifæri til þess að safna
kröftum.
Leikmannahópurinn er nokkuð
lemstraður að sögn Halldórs Jóns
Sigurðssonar þjálfara og veitir ekki
af hvíldinni. Ekki batnaði staðan
snemma leiks í gær þegar Arna Sif
Ásgrímsdóttir fór meidd af velli eftir
að hafa lent illa á öxlinni.
Selfyssingar ætla að æfa af kappi í
fríinu og nota það til þess að bæta
sinn leik enn frekar. Það hafa verið
ákveðin batamerki á sóknarleik liðs-
Martin Hermannsson og félagar í
Alba Berlín eru komnir í 2:0 í und-
anúrslitaeinvígi sínu við Oldenburg
í þýsku 1. deildinni í körfubolta.
Berlínarliðið þarf því aðeins einn
sigur í viðbót til að komast í úrslit.
Liðið vann 79:68-sigur á heimavelli
í gærkvöld en liðin mætast næst á
heimavelli Oldenburg á sunnudag.
Martin skoraði 10 stig í gær.
Hann hitti úr 5 af 8 skotum sínum
innan þriggja stiga línunnar en
klikkaði á sex skotum utan hennar.
Hann gaf 5 stoðsendingar og tók 3
fráköst.
Martin nálgast
úrslitaeinvígið
Ljósmynd/FIBA
Góður Martin Hermannsson skoraði
10 stig í gær og gaf 5 stoðsendingar.
Frá því að Þórir Hergeirsson tók
við sem aðalþjálfari norska kvenna-
landsliðsins í handbolta, árið 2009,
hefur hann stýrt liðinu á 12 stór-
mótum. Í gær tryggði liðið sér svo
sæti á HM í desember en Noregur
hefur tvívegis orðið heimsmeistari
undir stjórn Þóris, árin 2011 og
2015, þrívegis Evrópumeistari og
einu sinni ólympíumeistari.
Noregur hafði unnið fyrri um-
spilsleik sinn við Hvít-Rússa 34:21
og komst í 12:1 í seinni leiknum í
gær, en vann leikinn „aðeins“
31:28. Einvígið fór því 65:49.
Þórir með Noreg
á 13. stórmótið
AFP
Formsatriði Þórir Hergeirsson og
hans lið flaug áfram á HM í Japan.
0:1 Stephany Mayor 11.
I Gul spjöldÓttar Guðlaugsson (aðstoð-
arþjálfari) og Hólmfríður Magn-
úsdóttir (Selfossi), Lára Kristín Ped-
ersen og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
(Þór/KA).
I Rauð spjöldEngin.
SELFOSS – ÞÓR/KA 0:1
M
Anna María Friðgeirsdóttir (Selfossi)
Þóra Jónsdóttir (Selfossi)
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (Self.)
Karitas Tómasdóttir (Selfossi)
Bryndís Lára Hrafnkelsd. (Þór/KA)
Bianca Sierra (Þór/KA)
Stephany Mayor (Þór/KA)
Lára Kristín Pedersen (Þór/KA)
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir (Þór/KA)
Dómari: Helgi Ólafsson, 7.
Áhorfendur: 109.
Ef allir 23 leikmenn svissneska
landsliðsins í knattspyrnu sem
staddir voru á Drekavelli í Portú-
gal í gærkvöld legðu markafjölda
sinn saman næðu þeir upp í 88
mörk. Það er sami fjöldi og Cris-
tiano Ronaldo hefur nú skorað fyrir
Portúgal eftir að hann gerði
þrennu í 3:1-sigri á Sviss í undan-
úrslitum Þjóðadeildarinnar.
Þar með er ljóst að Portúgal
mætir annaðhvort Englandi eða
Hollandi í úrslitaleik Þjóðadeild-
arinnar á sunnudaginn. Undan-
úrslitaleikurinn stefndi í framleng-
ingu, eftir aukaspyrnumark
Ronaldos og jöfnunarmark Ricardo
Rodríguez úr víti, en Ronaldo sýndi
snilli sína á ný með tveimur lag-
legum mörkum á lokamínútunum.
Ronaldo hefur nú skorað sjö
þrennur fyrir Portúgal, og alls 53
þrennur á ferli sínum með fé-
lagsliðum og landsliði. Hann er
næstmarkahæsti landsliðsmaður
sögunnar á eftir Ali Daei sem skor-
aði 109 mörk fyrir Íran á sínum
ferli. sindris@mbl.is
AFP
Magnaður Cristiano Ronaldo fagnar einu þriggja marka sinna í gær.
Með jafnmörg mörk
og 23 andstæðingar