Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þegar ég var kornungur ætlaði ég
að verða skákmaður eða stærðfræð-
ingur. Síðan tók tónlistin yfir þegar
ég var 12 ára,“ segir Mikael Máni
Ásmundsson djassgítarleikari. Hann
gefur út sína fyrstu sólóplötu,
Bobby, sem innblásin er af ævi
Bobby Fischer. Með honum spila
Skúli Sverrisson á bassa og Magnús
Trygvason Elíassen á trommur og
víbrafón. „Ég var að lesa ævisögu
Bobby Fischer, Endatafl eftir Frank
Brady, fyrir svona tveimur eða
þremur árum. Titillagið á plötunni,
„Bobby“, kom svo til mín alveg full-
mótað. Það var mjög dramatískt,
mun dramatískara en nokkuð sem
hefur gerst í mínu lífi og þá áttaði ég
mig á því að það tengdist því að ég
hafði verið að lesa ævisögu Bobby
Fischer. Þá ákvað ég að gera heilt
prógramm út frá þeirri bók,“ segir
Mikael um tilurð plötunnar. „Ég
ákvað að túlka ævisöguna og búa til
sögur út frá henni. Þetta er ekki al-
veg sannsögulegt heldur tek ég oft
eitthvað úr fari annars fólks sem
minnir mig á Bobby og sem lögin
með það í huga.“
Reynir að ofhugsa ekki
„Fyrst og fremst þá reyni ég ekki
að ofhugsa konseptið þannig að það
taki yfir tónlistina,“ segir Mikael um
ferlið að vinna plötu upp úr ævisögu.
„Ég hafði mjög sterka sögu og byggi
formið á lögunum út frá því sem ég
er að reyna að segja. Sérhverri mel-
ódíu fylgir sterk tilfinning, hvort
sem það er gleði eða angist, sem
tengist ákveðnu tímabili í lífi Bobby.
Það er svona fyrsta skrefið.“
Annað skrefið segir Mikael vera
að vinna tónlistina með Skúla og
Magnúsi sem spila með honum á
plötunni. „Ég vildi ekki neyða hug-
myndinni á þá heldur leyfa tónlist-
inni að koma náttúrulega. Svo við
töluðum ekki um hvernig lögin
tengdust Bobby af því ég vildi ekki
að konseptið tæki yfir. Ég treysti því
bara að lögin myndu segja söguna
og svo útsettu Maggi og Skúli þau
hreint og beint út frá tónlistinni.“
Plötuumslag Bobby prýða myndir
teknar fyrir utan Bókabúð Braga en
Mikael naut aðstoðar ljósmyndarans
Spessa við að fanga andrúmsloft
búðarinnar. „Eftir að Bobby kom til
Íslands kom hann í Bókabúð Braga
hérumbil á hverjum degi held ég. Á
baksíðu albúmsins er einmitt tafl-
borðið sem hann tefldi sjálfur á. Við
stilltum upp stöðu ú sjöttu skákinni
á heimsmeistaramótinu sem haldið
var í Reykjavík 1972, þar sem Fisch-
er keppti gegn Spasskíj.“
Mikael skapar marglaga verk með
því að leyfa stuttum textum um
tengsl tónlistarinnar við ævi Bobby
Fischer að fylgja hverju lagi. „Það
sem ég vil ná helst úr tónlistinni
minni eru tilfinningaleg áhrif, að fólk
fái gæsahúð þegar það hlustar. Ég
hef reynt að greina það hvað það er
sem vekur upp þessi tilfinningalegu
áhrif hjá mér og oft er það tengsl
texta og melódíu sem hefur þessi
sterku áhrif á mig. Mér finnst oft
auðveldast að tjá mig þegar það
fylgir texti með.“
Líkindi með djassi og skák
Mikael hefur unnið talsvert með
söngkonu og segir það vera gefandi.
Hann er hins vegar gítarleikari og
þegar hann semur tónlist sem er
ekki hugsuð með söngvara í huga
koma hefðbundnir söngtextar ekki
til greina. „Ég reyni þá að skjóta inn
þessum textalegu áhrifum svona.“
Mikael leggur áherslu á að hlust-
andinn ráði sjálfur hvort hann lesi
textana eða ekki. „Sumir kunna að
meta það en sumir vilja það ekki. Ég
ber mikla virðingu fyrir því þegar
fólk veit hvað virkar fyrir það. Ég
geri náttúrulega bara helminginn en
hlustandinn hinn helminginn á
móti.“
Mikael segir að vel megi sjá lík-
indi með tónlistinni á plötunni
Bobby og skák. „Í djasstónlistinni
sem er á plötunni er alltaf laglína,
svo er spuni í miðjunni og loks kem-
ur laglínan aftur. Í góðri djasstónlist
byggist spuninn í miðjunni á laglín-
unni sem var í byrjun. Það minnir á
skák að því leyti að byrjunartaflið er
oft fyrirfram ákveðið og byggir á
teoríu. Svo byggir miðtaflið alltaf á
því sem gerðist í byrjunartaflinu. Þá
er held ég mun meiri spuni. Þar geta
komið endalausir möguleikar og þá
getur maður ekki lengur treyst á
teoríuna. Það er eins með tónlistina.
Það er ekki hægt að ákveða fyrir
fram hvað maður ætlar að gera í
spuna af því að það eru svo margar
breytur.“
Útgáfutónleikar verða haldnir 9.
júní í Kaldalóni. Þar mun systir
Mikaels, Lilja María Ásmundsdóttir
píanóleikari, leika verkið „Chess
Pieces“ eftir John Cage. „Cage gerði
málverk af taflborði sem sýnt var á
myndlistasýningu. Í mörg ár vissi
enginn að hann hefði gert tónverk
líka. Mörgum árum seinna, eftir að
hann dó, var tónverkið flutt í fyrsta
sinn. Það verður forleikur að tónlist-
inni minni á tónleikunum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tónskáld „Mér finnst oft auðveldast að tjá mig þegar það fylgir texti með,“ segir Mikael Máni um plötu sína sem byggist á ævi Bobby Fischer.
Vill ná fram tilfinningalegum áhrifum
Mikael Máni Ásmundsson gefur út sína fyrstu sólóplötu Byggist á brotum úr ævisögu Bobby
Fischer „Sérhverri melódíu fylgir sterk tilfinning,“ segir Mikael um lögin á plötunni
Bandaríski píanistinn Richard
Goode leikur píanókonsert nr. 25
eftir W.A. Mozart á loka-
tónleikum starfsárs Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands (SÍ) í kvöld
kl. 19.30. Goode hefur hlotið
Grammy-verðlaun fyrir hljóðrit-
anir sínar og nýverið skrifaði
tónlistarrýnir dagblaðsins New
York Times að tónleikar hans í
Carnegie Hall hafi einkennst af
stórbrotinni og djúpri túlkun, að
því er fram kemur í tilkynningu
frá SÍ. Á tónleikunum leikur
hljómsveitin einnig fyrstu sinfón-
íu Brahms undir stjórn hollenska
hljómsveitarstjórans Edo de Wa-
art en hann var óbóleikari í Con-
certgebouw-hljómsveitinni og hóf
stjórnandaferil sinn sem aðstoð-
armaður Leonards Bernsteins hjá
New York-fílharmóníunni.
Richard Goode á lokatónleikum SÍ
Píanisti Richard Goode leikur píanókonsert nr. 25 eftir Mozart í Eldborg í kvöld.
Hrönn Björnsdóttir opnar sýning-
una Þyt í dag kl. 18 í Mjólkurbúð-
inni, sal Myndlistarfélagsins, í
Listagilinu á Akureyri. Á sýning-
unni má sjá verk unnin á árunum
2016-19 með blandaðri tækni, ýmist
á striga eða pappír. Sýningin er
fimmta einkasýning Hrannar sem
hefur tekið þátt í fjölmörgum sam-
sýningum hér á landi og erlendis.
Opið verður daglega kl. 12-17.
Þytur í Mjólkurbúðinni á Akureyri
Litríkt Eitt af verkum Hrannar.
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á heimavorn.is