Morgunblaðið - 06.06.2019, Page 64
64 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Þegar listamaðurinn Nasarus
kynntist nasaflautu árið 2016 um-
turnaðist líf hans.
„Þá gaf stórvinkona mín hún
Bergljót mér lítinn pakka og þar
var flautan. Ég hafði nú aldrei séð
svona verkfæri áður og fór bara
með þetta heim og prófaði að blása í
alla enda og svo loksins kom hljóð.
Við höfum eiginlega bara verið eitt
síðan, ég og þessi flauta.“
Nasarus opnaði nýverið stór-
skemmtilega fésbókarsíðu þar sem
hann tjáir sig um einkalífið og
tengsl sín við flautuna. Þar mun
hann birta sitt fyrsta frumsamda
lag á alþjóðlegum degi nasaflaut-
unnar fjórtánda júní.
„Eins og Bubbi sagði, þetta verð-
ur algjör bomba og nýmæli í tónlist-
arlífi Íslendinga. Ég held að þarna
verði hreinlega lagður grunnur að
nýrri tónlistarstefnu,“ segir Nas-
arus glaðbeittur en hingað til hefur
hann aðallega spilað lagið „Komdu
kisa mín“.
Hleypir almenningi inn
„Það má segja að flautan hafi haft
mjög umfangsmikil áhrif á mitt líf,
að hún hafi bara breytt því alveg,“
segir Nasarus en í persónulegri
færslu á fésbókarsíðu hans tjáir
Nasarus sig um það þegar konan
hans yfirgaf hann vegna flautunnar.
„Það er nú eitthvað sem ég vil
svona síður ræða en konan gaf mér
náttúrulega ákveðna kosti. Ég verð
að segja svona eftir á að hyggja að
það var ekki erfitt val af því að það
er bara eitt verkfæri í þessum heimi
sem á hjarta mitt og það er flaut-
an.“
Flautan virðist hafa heltekið Nas-
arus. Því er ekki úr vegi að spyrja
hann hvað það sé sem sé svo heill-
andi við nasaflautuna. „Það eru
ákveðin hughrif sem fara í gang
þegar maður blæs í hana. Ég hef oft
sagt að hún sé svona seiðandi, eins
og maður sé að sigla á bát á lygnri
tjörn og allt í einu heyrir maður í
sírenu syngja sem reynir að seiða
mann til sín. Hljóðheimur flaut-
unnar er þannig og hún hefur heill-
að alla sem ég hef spilað fyrir, sem
hafa reyndar ekki verið margir en
þessir tveir voru mjög ánægðir.“
Nasaflautan „tröðkuð niður“
Staða nasaflautunnar er Nasarusi
mikið hjartans mál. „Hún hefur í
raun verið tröðkuð niður í samfélag-
inu. Henni hefur verið haldið niðri
og hún ekki verið viðurkennd og
ekki hennar réttindi. Hún er með
stórt hjarta og hefur mikið að segja,
hún er með litla rödd og ég hjálpa
henni við að koma sínu á framfæri,“
segir Nasarus sem bætir því við að
staða þessarar sérstöku flautu sé
einstaklega slæm hérlendis.
Það er þó ekki alltaf dans á rós-
um fyrir Nasarus að spila á flaut-
una. „Ég er með skakkt miðsnes
sem er algengt og ég blæs í raun
bara með einni nös í flautuna. Ég
þurfti svolítið að berjast til þess að
koma mér af stað í þetta. Ég hef
náð mér vel á strik núna og hef í
raun náð einstöku lagi á að nota
bara aðra nösina við blásturinn.“
Stóri draumur Nasarusar er svo
að fá að spila á skemmtistaðnum
Nasa.
„Annað hvort myndi ég vilja spila
á Nasa við Austurvöll eða fyrir
starfsmenn NASA vegna þess að
það held ég að sé fólk sem skilur al-
veg hvað ég er að tala um og það
sem ég hef gengið í gegnum.“
Um það hvort ekki sé erfitt að
hleypa almenningi inn í einkalíf sitt,
eins og Nasarus gerir á Facebook,
segir hann: „Mér finnst ég vera að
opna ákveðið Pandórubox með því
að tala og ég veit að ég er náttúru-
lega á jaðrinum. Ég er bæði jaðar-
settur tónlistarlega séð og jaðar-
settur í samfélaginu sem einhleypur
karlmaður sem býr hjá móður sinni.
Ég lít á mig sem talsmann og rödd
þessa jaðarhóps.“
Nasarus þráir að spila á Nasa
Morgunblaðið/Eggert
Nasarus „Ég krefst þess að ríkisstjórn Íslands taki nám á nasaflautu inn í helstu menntastofnanir Íslands,“ segir nasaflautuleikarinn Nasarus.
„Eini alvörunasaflautulistamaður íslensku þjóðarinnar“ er heltekinn af hinni óvenjulegu flautu
Hyggst leggja grunninn að nýrri tónlistarstefnu Vill að nasaflautan hljóti meiri virðingu
Bandaríski rapparinn Jay-Z hefur
náð þeim áfanga að verða fyrsti
milljarðamæringurinn úr röðum
hip hop-listamanna í heimssögunni,
ef marka má úttekt viðskiptaritsins
Forbes. Er þá átt við milljarðamær-
inga í dollurum talið.
Jay-Z er 49 ára og er viðskipta-
veldi hans metið á milljarð dollara
hið minnsta, jafnvirði um 126 millj-
arða króna. Jay-Z á margvíslegar
eignir, m.a. fasteignir og verðmætt
safn listaverka. Þá á hann hlut í
kampavínsfyrirtækinu Armand de
Brignac og í D’Ussé sem framleiðir
koníak. Jay-Z hleypti líka af stokk-
unum Tidal-streymisveitunni og
fjárfesti í Uber. Þá er lagasafn hans
metið á um 75 milljónir dollara.
Fyrsti hiphop-milljarðamæringurinn
Auðug Jay-Z og eiginkona hans Beyoncé.
Dulur nefnist listaverkasýning
Önnu Þóru Karlsdóttur sem opnuð
verður í Galleríi Gróttu, sýning-
arsal Bókasafns Seltjarnarness, í
dag kl. 17. Anna Þóra líkir verkum
sínum við hálfgegnsæjar vatns-
litamyndir þar sem mjúk litalög
hleypa ljósi í gegn en þéttari flóki
sé hins vegar meira í líkingu við ol-
íumálverk.
„Flókarnir eru töfrandi og þétt-
leikinn einstaklega fjölbreyttur.
Ull er fyrst og fremst textíll. Lit-
urinn kemur meira að innan en ut-
an og sauðalitirnir í verkunum eru
miklu heldur dregnir fram en fald-
ir. Nafngiftin Dulur er lýsandi fyr-
ir verkin. Efnið er loftkennt en tog-
ið hrindir einmitt frá sér vatni á
sauðfénu. Þetta kallar fram hug-
hrif og endurspeglast í næf-
Anna sýnir í Galleríi Gróttu
Dulur Verk eftir Önnu Þóru Karlsdóttur.
urþunnu efni og gegnsæjum litum
verkanna á sýningunni. Yfirskrift-
ina má e.t.v. túlka sem léttlíðandi
áru; efni fegurðar og dulúðar,“
segir í tilkynningu.
Opið virka daga kl. 11-18, lokað á laugard. í sumarListhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050
LISTHÚSINU