Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 66

Morgunblaðið - 06.06.2019, Side 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JÚNÍ 2019 Gruna en ekki sjá. Skynja en ekkiskilja.“ Þannig hljómar bókartextium andrúmið sem ríkir í ljósmynda-bókinni Allt eitthvað sögulegt eftir Báru Kristinsdóttur ljósmyndara. Hún sýnir okkur inná járnsmíðaverkstæðið Nælonhúðun í Garðabæ þar sem vinna tveir menn, eigandinn Elías og Baldur. Bókin hefst á mynd af sterk- legum stól úr járni með gatslitinni og saman- hnýttri tausessu; færir sig síðan frá smáatriðum í umhverfinu yfir að sögu- persónunum Elíasi, Baldvini og kisa. Svo birtist okkur sjálft verkstæðið þar sem Baldvin situr við vél og vinn- ur. Það er létt að skynja að hér eiga allir hlutir sinn stað og hver og einn hefur sitt hlutverk. Í gegnum alla bók- ina skiptist sjónin frá um- hverfi að persónum. Í sögu- lok sést hvar verkfærum fækkar á vegg og innanstokksmunir greinilega farnir. Snemma í bókinni sést Elías, gagnrýninn og svipsterkur á mynd en síðar birtist hann dauflegur í fasi með auðan verkstæðisvegginn að baki sér. Bára heimsótti verkstæðið á þriggja ára tímabili og myndar á síðustu starfsárum þess. Þannig myndar hún hægan dauðdaga vinnu- staðarins. Sagan í þessu verki Báru er mjög sterk í einfaldleika sínum en samt full af örsög- um og útúrdúrum sem gæðir hana mikilli dýpt. Hver mynd sýnir hve lúið og slitið allt umhverf- ið er þar sem verkstæðisrykið skilur eftir för á hverri mynd. En það segir ekki alla söguna því þreytulegt umhverfið er innrammað af járni, þungum vinnuvélum og „herklæðum“ iðn- armannsins sem vottar um styrk og stöð- ugleika. Bára leyfir tímanum að líða hægt í sögunni, jólakaktus í blóma er seinna búinn að fella blóm og brauðkringla víkur fyrir banana í nestispoka á vegg. Líkast löngu ljóði sjáum við endurtekin stef í sögunni eins og skítugir veggir, verkfæri og járn en einnig látlausari atriði líkt og hendur Elíasar og auðir stólar. Bára og fleiri samtímaljósmyndarar hafa undanfarin ár verið ötulir við að mynda mann- laus manngerð rými. Þar sem myndir af hýbýl- um utan sem innan og innanstokksmunir fá að segja sögu fólks án nærveru þeirra í myndfleti. Í þessari sögu er það hins vegar nærvera Elías- ar og Baldvins sem skiptir sköpum fyrir áhrifa- mátt bókarinnar og tilfinningaupplifun. Fram- setning Báru á þeim er tilgerðarlaus og hæglát sem undirstrikar hvernig tíminn og þeir sjálfir hafi staðið í stað. Ein áhrifamesta mynda bók- arinnar er aftur á móti mannlaus og sýnir groddalega hlífðargrímu hanga úr lofti tengda með slöngu við fyrirferðarmikla vél. Þarna þarf maðurinn ekki að vera í myndfleti til að við skilj- um samsvörun vélar og iðnaðarmanns. Á eftir koma myndir af Baldvini í þykkri leðursvuntu og með grímu. Sú myndaþrenna gæti staðið ein og sér sem ljósmyndaverk og er gott dæmi um sögu innan í sögunni. Texti eftir Jón Kalman Stefánsson og texta- brot úr samtali Báru við Elías fléttast saman við ljósmyndirnar. Textagerðin er ákaflega vel gerð, stutt og vel dreifð um bókin. Það er mikill vandi að texta ljósmyndabækur því textinn þarf að þræða þann gullna veg að elta ljósmynd- arann; vera sjálfstæður án þess að ræna áhrif- um myndarinnar og ekki svo ákafur að hann stýri upplifun um of. Þessu nær Jón Kalman ákaflega vel. Hann fangar bæði hið ljóðræna í myndverkinu sem og færir Báru sjálfa sterkt inn í söguþráðinn. Hönnun bókarinnar í höndum Ármanns Agn- arssonar er virkilega vönduð. Bókarkápa er appelsínugul og strigakennd prýdd ljósmynd af grímuklæddum járniðnarmanni í háglans. Með- an liturinn er skírskotun í litaveröld verkstæðis er textíláferðin ákveðinni mótsögn svo úr verð- ur samspil mýktar og hörku. Svipuð leið er farin í sjálfri bókinni þar sem ólík áferð er á blaðsíð- um bókarinnar. Textinn ásamt einhverjum myndum birtast á möttum fölgrænum pappír sem gefur bókverkinu ákveðna mýkt meðan stærsti hlutinn er prentaður á glanspappír sem fellur vel að efnisheimi verkstæðis. Þessi leið í hönnun er, eins og textinn, leið til að auka áhrifamátt bókarinnar. Prentun og litgreining er með sóma. Eitthvað sem vert er að nefna sér- staklega nú á dögum. Allt eitthvað sögulegt kom út síðasta haust og hluti verksins var sýning í Hafnarborg í Hafn- arfirði. Bára vann einnig vídeóverk samhliða myndatökum. Bókverkið er með sanni ein besta ljósmyndabók sem sést hefur lengi, falleg og áhrifarík. Bára hefur frábær tök á söguforminu og hefur ótrúlega næmni fyrir smáatriðum án þess að nokkurn tímann tapa sjónar af stóru sögunni. Engu er ofaukið og allar myndir virð- ast jafn mikilvægar. Þetta er saga sem hefur upphaf, miðju og hjartnæman endi. Vinnu- klæddir karlar og verkstæðið sem leið undir lok verða táknræn fyrir hverfulleikann eða eins og Jón Kalman færir svo vel í orð: „Því fyrr eða síð- ar þurfum við að standa upp og tæma skrif- borðið, tæma húsið. Uns ekkert verður eftir nema auðir veggir, og fjarveran.“ Að- alsöguhetjan Elías Guðmundsson lést árið 2017 og er bókin tileinkuð minningu hans. Þegar ljósmynd er ljóð verður allt sögulegt Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ljósmyndari Bára hefur tvisvar áður fest horfinn veruleika á filmu líkt og hún gerir í búðinni. Ljósmyndabók Allt eitthvað sögulegt bbbbb Ljósmyndari: Bára Kristinsdóttir. Texti: Jón Kalman Stefánsson. Hönnuður: Ármann Agnarsson. Prentun: Prentsmiðjan Oddi. Ramskram gallerí, 2018. LINDA ÁSDÍSARDÓTTIR BÆKUR Járnsmíðaverkstæði Bára tók ljósmyndir á járnsmíðaverkstæðinu Nælonhúðun á þriggja ára tímabili, á síðustu starfsárum þess, og myndaði þannig hægan dauðdaga vinnustaðarins. Lagið „Sýnir“ með hljómsveitinni Kælan mikla er upphafslag Gösta, nýrrar gamanþáttaraðar eins þekktasta leikstóra Svía, Lukas Moodysson sem á m.a. að baki kvik- myndirnar Lilya 4-Ever og Fucking Åmål. Lagið hljómar í byrjun þátt- anna og gleðst Sólveig Kristjáns- dóttir, ein liðskvenna Kælunnar, yf- ir því á Facebook og segir virkilega spennandi að lagið hafi verið valið í þættina. Þættina framleiðir HBO Nordic, hinn norræni armur stór- fyrirtæksins HBO og má sjá stiklu úr þáttunum á YouTube. Moo- dysson skrifar bæði handrit þátt- anna og leikstýrir þeim og hefjast sýningar í september á þessu ári. Kælan á upphafslag þátta Moodysson Tríó Kæluna skipa Sólveig Matthildur, Margrét Rósa og Laufey Soffía Þórsdóttir. Myndlistarmaðurinn Gunnar Jónsson veitir leiðsögn í kvöld kl. 20 um sýningu sína Gröf í D-sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Í verkum sínum rann- sakar hann eigin uppruna, sjálfsmynd og umhverfi og vinnur meðal annars með vídeó, ljósmyndir og tónlist. Gunnar er 37. listamaðurinn sem sýnir í sýning- arröð D-salar. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012. Aðgöngumiði á safnið gildir á leiðsögnina en frítt er fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. Gunnar veitir leiðsögn um Gröf í D-sal Gunnar Jónsson Frístunda- og atvinnufatnaður frá REGATTA Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.