Morgunblaðið - 13.06.2019, Qupperneq 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Hveragerði er
nú að taka svip
gróanda og
blóma, en þar
verður um
helgina viðburð-
urinn Blóm í bæ.
Efnt verður til
fjölbreyttra
uppákoma þar
sem inntakið eru
blóm, ræktun,
endurvinnsla og vistvænt líf. „Við
bjóðum fólki í bæinn til að njóta og
upplifa,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir
bæjarstjóri. Hún leggur áherslu á
að enn sem fyrr sé Hveragerði
blómabær, þótt gróðrastöðvunum
þar hafi fækkað. Hvergi á landinu
sé meira framleitt af sumarblómum,
menntasetur garðyrkjunnar á land-
inu sé í næsta nágrenni og yfir sum-
arið sé bærinn svo sannarlega í
miklum blóma.
„Veðurspáin fyrir helgina er frá-
bær, nú fara í hönd dagar sem
verða væntanlega einhverjir þeir
bestu á sumrinu. Við höldum Blóm í
bæ annað hvert ár og höfum aldrei
lagt okkur eftir því að telja fjölda
gesta, enda er það aukaatriði. Vit-
um þó að þeir skipta þúsundum og
bros á hverju andliti.“
Hátíðin í Hveragerði verður sett
á morgun kl. 17 og þá tekur við fjöl-
breytt dagskrá. Sýningarsvæði
verður við Lystigarðinn, í gróð-
urhúsinu Eden við Þelamörk verða
afurðir græna geirans til sölu, fjöl-
breytt sýning og sala á pottablóm-
um, markaðir, sýning á páfagaukum
og svo mætti áfram telja. Við
Breiðumörk verður markaðstorg
með nýjum og ferskum afurðum
beint frá býlum, vistvænum vörum
og svo framvegis. Þá verður sýning
á rafbílum og öðrum vistvænum
farartækjum við Hótel Örk.
Einnig má nefna að á morgun
verður undirritaður samningur
Hveragerðisbæjar og embættis
landlæknis um að bærinn bætist í
hóp heilsueflandi bæja. Í því felst
að heilsuefling í víðustu merkingu
verður áherslumál í sveitarfélaginu
og starfsemi þess. Þá verður síð-
degis á morgun opið hús á Heilsu-
stofnun NLFÍ, hvar fólki gefst
kostur á að kynna sér fjölbreytta
þjónustu. sbs@mbl.is
Blómahjól Allt er skreytt fyrir Blóm í bæ í Hveragerði, sem þar verður um helgina skv. hefð annað hvert ár.
Njóta blóma í bænum
Aldís
Hafsteinsdóttir
Viðburður og veðurspáin er góð Notið og upplifað
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bændur keyptu alla fimm aberdeen
angus-holdakálfana sem losna úr ein-
angrun síðsumars. Kálfarnir seldust
á ríflega tvöföldu lágmarksverði og er
verðið sagt ásættanlegt.
Nautgriparæktarmiðstöð Ís-
lands (Nautís) sem annast innflutn-
ing á fósturvísum nýs holdanauta-
kyns og rekur einangrunarstöðina á
Stóra-Ármóti í Flóahreppi auglýsti
eftir tilboðum í fimm arfhreina an-
gus-nautkálfa af fyrstu kynslóð kyn-
bótastarfsins. Tilboðin voru opnuð í
gær.
Tólf buðu í alla kálfana
Tólf bændur gerðu tilboð og
buðu allir í alla fimm kálfana. Hæstu
tilboð voru á bilinu 1.350 þúsund til
2.065 þúsund, án virðisaukaskatts.
Tekið var hæsta tilboði í hvern
kálf en þó þannig að enginn fékk fleiri
en einn. Niðurstaða útboðsins varð sú
að fjórir kálfanna fara í hjarðir á Suð-
urlandi og einn í hjörð í Þingeyj-
arsýslu.
Sveinn Sigurmundsson, fram-
kvæmdastjóri Nautís, segir að ekki
hafi verið miklar væntingar um verð
umfram það lágmark sem sett var.
Því hljóti verðið sem fæst að teljast
ásættanlegt. Fjármunirnir verði not-
aðir í þetta mikla og dýra verkefni, að
kynbæta holdanautastofninn og auka
framleiðslu á nautakjöti.
Sóttkvíartíma kálfanna lýkur 4.
júlí næstkomandi. Sveinn segir að þá
verði tekin úr þeim sýni til rann-
sóknar í Noregi. Ef kálfarnir reynast
heilbrigðir, eins og búist er við, verða
þeir afhentir nýjum eigendum síð-
sumars. Áður verður þó tekið úr þeim
sæði til notkunar hér innanlands.
Starfið heldur áfram. Ellefu kýr
bera á næstunni og er það önnur kyn-
slóð arfhreinna angus-kálfa. Þá er
verið að kaupa fósturvísa fyrir þriðju
umferð. Þeir verða settir upp í kýr í
lok ágúst.
Angus-kálfarnir
fóru á tvöföldu
lágmarksverði
Sá eftirsóttasti seldist á 2 milljónir
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stóra-Ármót Kálfunum verður
sleppt úr sóttkví síðar í sumar.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™