Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.07.2019, Page 8
RAX
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.7. 2019
Happy Talk kertastjakar
kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Mikil spenna einkennirþjóðfélag okkar. Stöðugpressa að ná hinu og
þessu. Í þessu samhengi má segja
að það sé mikilvægt að gefa sér
tíma fyrir hreyfingu, góða sam-
veru og að læra nýja hluti.
Þrír hlutir eru sérlega mik-
ilvægir til að viðhalda grunn-
þáttum í heilastarfsemi ein-
staklinga sem tengjast grá og
hvíta efni heilans, þ.e.a.s. tauga-
kerfi heilans.
1. Líkamleg þjálfun
2. Góð samvera
3. Að læra eitthvað nýtt
Gefum okkur tíma til að sinna
líkamlegri hreyfingu 30-60 mín-
útur á dag. Líkamleg þjálfun er
algert lykilatriði í viðhaldi á
taugakerfi heilans. Fólk sem er
virkt á líkamlega sviðinu er oftast
einnig virkt á vitsmunalega svið-
inu. Finnum þá hreyfingu sem
passar fyrir okkur. Er það að
stunda sund, hjóla, skokka/hlaupa,
fara í göngutúra, golf, jóga eða að
fara í ræktina? Ef maður kíkir í
Laugardalslaugina snemma morg-
uns hittir maður iðulega ein-
staklinga sem stunda sund sem
þjálfunaraðferð og nota heitu pott-
ana til að ræða og leysa þjóð-
málin, fá góða samveru. Það er
líka mjög gaman að sjá heilu fjöl-
skyldurnar, afa, ömmur, börn og
barnabörn, fara saman í sund til
að njóta bæði hreyfingar, leiks og
samveru. Við megum ekki gleyma
því að þessi samverustund er líka
án allra snjallsíma og spjaldtölva
– og þær stundir verða æ mik-
ilvægari.
Gefum okkur tíma í samveru
með vinum, fjölskyldu og öðrum
sem okkur líður vel með. Góð
samvera er gulls ígildi. Þetta er
eitt af þeim atriðum sem fræði-
menn hafa dregið fram hjá þeim
sem hafa lifað löngu og góðu lífi.
Fræðimenn kalla þá staði þar sem
fólk lifir lengst „bláu svæðin“. Þau
eru: Íkaría (Grikklandi), Sardinía
(Italíu), Okinawa (Japan), Nicoya
(Kosta Ríku) og Loma Linda
(Kaliforníu). Ég fór sjálfur sum-
arið 2015 til eyjunnar Íkaríu í
Eyjahafi til að upplifa og skoða
hvað einkennir lífið á þeirri eyju.
Samvera fólks var mikil, eldra fólk
hafði hlutverk, passaði barnabörn-
in eða barnabarnabörnin, vann á
veitingastöðum, spilaði á spil eða
spjallaði í fleiri tíma við félagana á
hverjum degi. Dagleg hreyfing var
einnig mikilvæg og fólk bjó sem
oftast í bröttu landslagi sem
krafðist meira af því. Róleg
stemning, friðsæld og vingjarn-
leiki var það sem einkenndi þessa
flottu eyju sem liggur mitt á milli
Samos og Mykonos. Næstum eng-
ir ferðamenn voru sjáanlegir en
við hittum marga sem voru komn-
ir vel yfir 100 ára aldurinn í fullu
fjöri.
Gefum okkur tíma til að læra
eitthvað nýtt, taka nýjum áskor-
unum. Þegar áskoranir eru í réttu
samhengi við færni, þ.e.a.s. við er-
um í flæði, eru möguleikar á að
tileinka sér nýja hluti sem bestir.
Nýjar áskoranir geta tengst sviði
(t.d. tónlist, bókmenntum, íþrótt-
um), þema (t.d. H.C. Andersen,
Íslendingasögum, garðyrkju,
fluguveiði) og færni (t.d. að læra á
gítar eða læra nýtt tungumál).
Mikilvægt er að finna hvað mann
langar til að verða betri í og læra
meira um.
Einn norskur félagi minn, Arne
Kjell Foldvik, 84 ára, má segja að
uppfylli alla þessa þætti. Hann
stundaði skauta til 20 ára aldurs
og hóf þá að æfa ratleik. Þegar
hann hætti að vinna við háskólann
67 ára gamall byrjaði hann aftur á
skautum; sem sagt 47 árum
seinna. Tók áskoruninni að byrja
aftur og nú á nýrri gerð af skaut-
um (klappskautum). Nýju skaut-
arnir kröfðust öðru vísi tækni en
gömlu skautarnir, þannig að Arne
þurfti að læra nýja færni. Síðustu
17 árin hefur hann æft 10 til 12
tíma á viku. Hann er tífaldur
heimsmeistari (old boys) á skaut-
um. Hann sagði mér að hann æfði
með unglingunum í klúbbnum, 12-
16 ára, en hann gæti verið langafi
þeirra. Arne sagði mér einnig að
hann væri heppinn að gegnum það
að vera með á skautum eignaðist
hann nýja vini. Bæði yngri og
eldri. Hann hefur eignast góða
vini meðal keppinauta sinna í ald-
ursflokknum 80-84 ára og hann og
kona hafa farið bæði til Rússlands
og Hollands. Þannig að það er
aldrei of seint að æfa íþróttir, tak-
ast á við áskoranir og eignast nýja
vini.
Gefum okkur tíma
Vísindi og
samfélag
Hermundur
Sigmundsson
hermundur@ru.is
’Þannig að það eraldrei of seint að æfaíþróttir, takast á viðáskoranir og eignast nýja
vini.