Morgunblaðið - 26.08.2019, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 26.08.2019, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 6. Á G Ú S T 2 0 1 9 Stofnað 1913  199. tölublað  107. árgangur  MIKILVÆGT AÐ NÁ TIL YNGRA FÓLKS FJÖLMENNI Í BÆNUM DANÍEL ÁGÚST ER FIMMTUGUR MIKIL DRYKKJA, 2 FARSÆLL FERILL 22NÝTT LEIKÁR 28 Það er viðbúið að fólk sem er að ferðast þar í dag verði örmagna, þetta eru aðstæður sem kannski ekki allir þekkja.“ Björgunarsveitirnar fengu ann- ars fremur fáar hjálparbeiðnir í gær vegna hvass- viðrisins. Flest verkefnin voru minniháttar eins og að hemja fljúgandi trampólín á Eyrarbakka. Landeyjahöfn varð ófær upp úr hádegi Gamli Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar í dag tvær ferðir. Ástæða þess að gamla ferjan er notuð en ekki sú nýja er að ekki er búið að laga hafnarmannvirki í Þorlákshöfn að nýju ferjunni, samkvæmt síðu Herjólfs. Landeyjahöfn varð ófær upp úr hádegi í gær og féllu áætlunarferðir nýja Gul viðvörun er í gildi til miðnættis vegna hvass- viðris eða storms á miðhálendinu. Gul viðvörun var einnig gefin út vegna hvassviðris eða storms á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðaustur- landi í gær. Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út síðdegis í gær til að koma örmagna ferðamanni á Fimmvörðuhálsi til bjargar. „Hann var orðinn mjög kaldur og hrakinn,“ sagði Guðbrandur Örn Arnarsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Ferðamaðurinn gat gefið greinargóðar upplýs- ingar um hvar hann væri staddur og því gekk greiðlega að finna hann. „Það er leiðindaveður á Fimmvörðuhálsi, eins slæmt og það getur orðið. Herjólfs þangað niður það sem eftir var dagsins. Gamli Herjólfur fór til Þorlákshafnar frá Vest- mannaeyjum kl. 15.30 og frá Þorlákshöfn kl. 19.15. Fyrr í gær hafði verið tilkynnt að opnað hefði verið fyrir klefabókanir í gamla Herjólf ef sigla þyrfti til Þorlákshafnar í dag. Leik ÍBV og HK/Víkings í Pepsi Max-deild kvenna sem vera átti á Hásteinsvelli í Vest- mannaeyjum í gær var frestað vegna óveðursins. Þá samþykkti mótanefnd KSÍ ósk FH og Breiða- bliks um að fresta leik þeirra í Pepsi Max-deild karla sem átti að fara fram á Kaplakrikavelli kl. 18.15 í gær þar til klukkan 18.00 í dag. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Fyrsta haustlægðin lét sjá sig Rok og rigning höfðu áhrif á samgöngur og knattspyrnuleiki  Köldum og hröktum göngumanni var bjargað af Fimmvörðuhálsi í gær  Fremur fáar hjálparbeiðnir þrátt fyrir veðrið  Hvasst á miðhálendinu í dag Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fiskveiðinefnd Evrópuþingsins ætlar að ræða mögulegar við- skiptaþvinganir vegna „einhliða töku Íslands og Grænlands á makríl“ á fundi 4. september. Rússar eru hins vegar ekki nefnd- ir þótt staða þeirra sé sambærileg við stöðu Íslands og Grænlands hvað veiðarnar varðar. „Þeir geta lokað höfnum fyrir okkur og reynt að loka mörkuðum og eitthvað fleira,“ sagði Kristján Freyr Helgason, formaður samninga- nefndar Íslands um deilistofna strandríkja við N-Atlantshaf. Hann sagði að íslensk stjórnvöld hefðu haft samband við Evrópu- þingið í síðustu viku og boðið Chris Davies, breskum formanni fiskveiðinefndarinnar, og öðrum áhugasömum nefndarmönnum að koma hingað og heyra okkar hlið. Chris Davies hefur verið harðorð- ur í garð Íslendinga og Grænlend- inga vegna makrílveiða þeirra. Kristján kvaðst bíða eftir því að heyra hvort boðið verður þegið. Hann sagði að ESB hefði verið óánægt með ákvarðanir Íslend- inga, Grænlendinga og Rússa um kvótaaukningu. Ísland fékk bréf frá framkvæmdastjórn ESB þar sem lýst var miklum vonbrigðum með ákvörðunina. ESB kvaðst vera að fara yfir málin og skoða yrði hvort beitt yrði reglugerð um viðskiptaþvinganir. Ræða viðskiptaþvinganir  Fiskveiðinefnd Evrópuþingsins setur á dagskrá viðskiptaþvinganir gegn Íslandi og Grænlandi vegna makrílveiða en ekki gegn Rússlandi  Geta lokað höfnum MSkoða að beita … »4Makríll Rússar virðast sleppa.  Bakkaskemma hefur fyllst af ið- andi lífi á síðustu árum og til- gangur skemmunnar og ásjón breyst til muna. Skemman, sem er úti á Granda, er nú heimili sjávar- klasans, samfélags 50 framsækinna fyrirtækja sem líta til hafsins í sinni starfsemi, mathallar og veitinga- staðarins Bergssonar RE. Það er þó ekki bara Bakka- skemma sem hefur sprungið út heldur nánast Grandinn í heild sinni. Í húsum sem áður voru að mestu nýtt í tengslum við fisk- vinnslu er nú að finna veitingastaði, ísbúð, fatahönnuði, gleraugnabúð, kökubúð og kjötbúð. Sífellt bætast við ný tækifæri á Grandanum en verið er að innrétta nýjan veitinga- stað þar. »10 Grandinn hefur öðlast nýtt hlutverk  Sala bíla sem eingöngu ganga fyrir rafmagni hefur aukist um 52% á fyrri helmingi ársins hérlendis samanborið við fyrri helming síð- asta árs. Þetta kemur fram í nýjum samanburði vefritsins EV- Volumes.com. Þar kemur einnig fram að Íslend- ingar séu í öðru sæti meðal Evr- ópuþjóða þegar litið er til hlut- deildar seldra rafbíla af seldum nýjum bílum í hverju landi fyrir sig. Norðmenn sitja í efsta sætinu. Rafbílar og tengiltvinnbílar eru nú fjögur til fimm prósent af heild- arbílaflota Íslendinga. »14 Morgunblaðið/Ófeigur Rafmagn Hleðslustöðvar má finna víða. Sala á rafbílum næstmest á Íslandi  Ólafur F. Cucalon Rowell hafði ekki hug- mynd um að hann ætti föður í Ekvador fyrr en hann var 29 ára. Ólafur var tal- inn sonur Svía sem vildi ekkert af honum vita og alinn upp af móð- ur sinni á Íslandi. Bréf sem fannst í dánarbúi lang- ömmu hans kom af stað atburðarás sem leiddi til þess að faðir hans fannst í Ekvador og þeir feðgar tóku upp samband. Ólafur hefur aldrei upplifað sig sem Skandinava og fannst hann kominn heim þegar hann heimsótti föður sinn til Ekva- dor í fyrsta skipti. Í kaupbæti fékk hann tvo bræður og systur. »11 Fann pabba sinn í Ekvador 29 ára Feðgar Francisco Cucalon og Ólafur F. Cucalon Rowell.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.