Morgunblaðið - 26.08.2019, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. ÁGÚST 2019
Verð frá 94.990
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem
er. Búa til heita súpu
og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Byrjaðu haustið með stæl
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ascent serían frá Vitamix
» Nýtt gallerí, nomadstudio, var opnað á
Laugaveginum í miðbæ
Reykjavíkur á Menn-
ingarnótt, á neðri hæð
verslunarinnar nomad
sem er á horni Lauga-
vegar og Frakkastígs,
og er ljósmyndarinn
Páll Stefánsson fyrstur
til að sýna þar. Sýn-
ingu sína nefnir hann
1958 m.
Páll Stefánsson opnaði sýningu í nýju galleríi, nomad studio, á Menningarnótt
Á spjallinu Sýningin var vel sótt þegar hún var opnuð á Menningarnótt.
Gleði Páll Stefánsson ljósmyndari (t.v.), Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi ráðherra, og Vala Hafstað blaðamaður.
Morgunblaðið/Eggert
Starandi Þær virtust heillaðar af myndinni, konurnar tvær sem hér sjást.
Listunnendur Það virtist flest áhugasamt um verkin, fólkið á sýningunni.
Margt óvænt leynist ímyrkrinu og hryllings-sagan Stóri maðurinneftir Phoebe Locke
dregur ekki úr óvissunni. Frásögnin
er sérlega spennandi og eftir stendur
að víða er styttra í brjálæðið en marg-
an grunar.
Flökkusögur og
ímyndun geta ver-
ið eitruð blanda,
eins og berlega
kemur í ljós í
þessari spennu-
sögu. Annars veg-
ar snýst frásögnin
um mikilvægi
ungra breskra
kvenna að vera
útvaldar og þókn-
ast stóra mann-
inum í skóginum eða að komast und-
an valdi hans. Hins vegar er um að
ræða lýsingu á gerð heimildamyndar
um viðburðina, nálgun kvikmynda-
gerðarfólks við Amber Banner,
helstu sögupersónuna.
Sagan er ósköp saklaus til þess að
byrja með en þunginn og alvarleikinn
eykst jafnt og þétt. Margt er óljóst
enda ekki vilji til þess að greina frá
sannleikanum, sem veldur bæði innri
og ytri spennu. Óvissan eykur óör-
yggið og eftir stendur spurning um
hvað sé rétt og hvað sé rangt, sekt
eða sýknu.
Frásögnin er að mörgu leyti
óhugnanleg. Mikið er lagt á ungar
sálir og sú byrði er erfið viðureignar.
Hins vegar kemst Amber vel frá sínu
í samskiptum við kvikmyndagerð-
arfólkið og fyrir bragðið kemur upp
undarleg staða innan þess hóps.
Uppbyggingin er markviss og
helstu persónur eftirminnilegar. Höf-
undur blandar saman ólíku fólki, mis-
jafnlega andlega sterku, sem kallar á
að einhver verður óhjákvæmilega
undir. Það skýrist ekki fyrr en í lokin
hver nær yfirhöndinni, en hvað sem
því líður hefur Stóri maðurinn mikil
áhrif.
Konur verða frjálsar
á eigin forsendum
Spennusaga
Stóri maðurinn bbbbn
Eftir Phoebe Locke.
Árni Óskarsson þýddi.
Veröld 2019. Kilja, 373 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Spennandi „Höfundur blandar saman ólíku fólki, misjafnlega andlega
sterku, sem kallar á að einhver verður óhjákvæmilega undir,“ segir m.a. í
dómi um bók Phoebe Locke, Stóra manninn, sem Veröld gefur út.