Morgunblaðið - 27.08.2019, Side 7
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
TIL LEIGU
Bolholt 4 – 105 Reykjavík
Stærð: 505 m2 / 148 m2 / 178 m2
Gerð: Verslunar-, lager- og skrifstofuhúsnæði
Jarðhæð: Vel staðsett verslunarhúsnæði sem er 235 m² ásamt 270 m²
lagerrými, samtals um 505 m². Húsnæðið skiptist í 235 m² verslunarhúsnæði
á jarðhæð og er að mestu opið rými með góðum sýningargluggum og góðri
lofthæð. Kaffi- og skrifstofuaðstaða ásamt opnu rými er í bakhluta húsnæðisins
sem er um 90 m². Úr bakrými er innangengt í 180 m² vörugeymslu með
innkeyrsludyrum. Möguleiki er á að leigja verslunar- og bakrýmið sér.
Næg bílastæði. Húsnæðið er laust strax.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
2. hæð: Um 148 m² skrifstofuhúsnæði sem skiptist upp í hol, stórt opið
vinnurými, eina lokaða skrifstofu, kaffistofu, eina geymslu og snyrtingu.
Á gólfum er parket. Skrifstofan getur verið laus fljótlega.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
5. hæð: Um 178 m² gott og bjart skrifstofuhúsnæði sem skiptist upp í opið
rými/ hol, 3 lokaðar skrifstofur þ.a. ein stór, eitt fundarherbergi og rúmgóða
kaffistofu. Á gólfum er parket. Glerveggir eru til staðar sem veita rýminu
skemmtilegt og bjart yfirbragð. Snyrtingar eru í sameign á hæðinni. Lyfta
er í húsinu. Glæsilegt útsýni í átt til Esju og sjávar. VSK leggst ekki við
leigufjárhæðina. Húsnæðið er laust strax.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali, s. 897 7086, hmk@jofur.is
TIL SÖLU
Álfhella 12-14 – 221 Hafnarfirði
Stærð: 2.707 m2
Gerð: Lager-, verslunar- og iðnaðarhúsnæði
Verð: Óskað eftir tilboði
Tilvalin eign fyrir aðila sem þarf mikið útisvæði og lager-/
iðnaðarrými með mikilli lofthæð.
Fasteignin skiptist upp í 4 megin rými auk útisvæðis:
Verslun á jarðhæð: Verslunarrými á jarðhæð með epoxy gólfefni,
söluskrifstofur og opið rými, skráð 259,8 m².
Skrifstofur á 2. hæð: Ofan við verslunarrýmið er steypt
milligólf þar sem er rúmgott skrifstofurými, skiptist upp í opið
vinnuumhverfi, lokaðar skrifstofur, matsal og fundaherbergi.
Skráð 245,2 m².
Upphitað lagerrými: Lagerrými með steyptu slípuðu gólfi,
upphitað með gólfhitalögn. Lofthæð um 9 metrar.
Stór iðnaðarhurð um 5 metrar á hæð. Skráð 706,2 m².
Lagerrými: Lagerrými með steyptu slípuðu gólfi, rýmið er upphitað með hitablásara. Lofthæð um 10 metrar.
Tvær stórar iðnaðarhurðir um 5 metrar á hæð. Skráð 1.495,8 m².
Útisvæði: Húsið er á tveimur lóðum, nr. 12 og nr. 14 og því fylgir því mjög stórt útisvæði. Stórt malbikað plan með niðurföllum.
Húsið stendur í raun á lóð nr. 14 og er lóð nr. 12 notuð sem útisvæði. Heildarstærð lóðar nr. 12-14 er 9.932,5 m².
Grunnflötur húss er um 2.462 m² og er því heildarstærð útisvæðis um 7.470 m².
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, s. 861 0511, magnus@jofur.is
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Bergsveinn
S: 863 5868
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Magnús
S: 861 0511
Ólafur
S: 824 6703