Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 R agnhildur Sveinsdóttir er búsett í Madríd á Spáni um þessar mundir þar sem hún býr með börnum sínum þremur; þeim Andra Lucasi, Daníel Tristan og Thalíu. Andri og Daníel spila fyrir spænska stór- veldið Real Madrid. Sveinn Aron Guðjohn- sen, elsti sonur hennar, er hins vegar orðinn 21 árs og starfar sem atvinnumaður í knattspyrnu með AC Specia á Ítalíu. Ragnhildur var ung að árum þegar hún flutti frá Ís- landi með fyrrverandi eiginmanni sínum, Eiði Smára Guðjohnsen. Hún er uppalin í Kópavogi og á að eigin sögn dásamlega fjölskyldu sem stendur saman. „Ég var 21 árs að aldri og ófrísk að fyrsta barninu mínu þegar við fluttum til Hollands á sínum tíma. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fótbolta enda var ég sjálf í fót- bolta á mínum yngri árum.“ Ragnhildur hefur undanfarin ár verið að fóta sig ein í útlöndum með börnin eftir að hún skildi. Hún segir það reyna á en hún viti að ekkert næri sig betur en að vera með börnum sínum að láta þeirra drauma rætast. „Ég hef alltaf verið mikill nærandi í mér. Ég hef alltaf verið til staðar fyrir fjölskylduna mína og annað fólk. Það finnst mér rosalega gaman. Ætli það sé ekki í eðli mínu að vilja sjá öðrum ganga vel og ef ég get aðstoðað við það þá er ég glöð.“ Finnst skemmtilegast að dansa Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? „Mér finnst skemmtilegast að dansa. Útivist og heyf- ing heillar mig líka, en tónlist og dans eru í uppáhaldi hjá mér. Það skiptir mig miklu máli að hafa gaman af lífinu. Það er mikið um salsaklúbba þar sem ég bý erlendis og ég veit fátt skemmtilegra en að fara á þá og dansa. Það eru allir glaðir og brosandi þegar þeir dansa og það segir svo mikið um þessa listgrein,“ segir Ragnhildur og bætir við: „Síðan er fótbolti áhugamál hjá mér, þannig að þeg- ar ég fylgi börnunum eftir úti er ég líka að gera það sem ég hef áhuga á sjálf.“ Hvernig heldurðu þér í góðu formi? „Ég er mjög virk að eðlisfari og finn mér alltaf eitt- hvað skemmtilegt að gera. Svo æfi ég sirka fimm sinnum í viku þar sem það er rækt á staðnum þar sem við búum núna. Síðan er ég dugleg að finna mér prógrömm á net- inu ef ég nenni ekki í líkamsræktina þannig að það er engin afsökun fyrir að hreyfa sig ekki. Tuttugu mínútur á dag er nóg að mínu mati. Síðan reyni ég að fara út í göngur. Ég dansa mikið heima með dóttur minni. Eins Morgunblaðið/Árni Sæberg Ragnhildur Sveinsdóttir er fótboltamamma sem kennir börnum sínum að gefast ekki upp. Hún er bú- sett í Madríd þar sem synir hennar æfa með spænska stórveldinu Real Madrid. Elsti sonur hennar, Sveinn Aron Guðjohnsen, er at- vinnumaður í knattspyrnu á Ítalíu. Hún segir heiminn sem börnin alast upp í harð- an en hún hafi trú á að rétt hugarfar komi fólki alla leið. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Elur upp knattspyrnu- stjörnur í fremstu röð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.