Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 30
þjálfun á gólfinu, fyrir utan alla aðra vinnu sem er í kringum þetta, sem er hellingur. Það tekur til dæmis tíma að sinna farþjálfun, fitness-þjálfun, matardag- bókum, heilsueflingu á vinnustöðum og fleira. Þar sem ég kenni aðallega konum að betrumbæta lífsgæði sín og slaka á ofurkonuheilkenninu þarf ég einnig að vera fyrir- mynd og hugsa um mína heilsu og keyra mig ekki út.“ Hún segir að tíminn sé dýrmætur og það þurfi að nýta hann skynsamlega. En það skipti líka máli að rækta sig og huga að andlegu hliðinni. „Það er auðvelt að brenna út í þessu starfi ef þú stýrir ekki þeim tíma sem þú ræður við. Og það er í raun eigin- lega allt of algengt að það gerist í geiranum, þar sem það er oft erfitt að segja nei. En gæði umfram magn er mitt mottó,“ segir hún. Síðasta ár er búið að vera krefjandi í lífi hennar, en hún keppti tvisvar í fitness og fór yfir mörkin sín að mörgu leyti. „Ég er á uppleið eftir annasamt ár sem var fullt af alls konar áskorunum í einkalífi og starfi. Það má kannski segja að ég hafi verið búið að vera of lengi á hnefanum og því fór ég í hálfgerða kulnun í vor sem ég hef markvisst verið að vinna mig út úr. Ásamt því að glíma við mörg misskemmtileg verkefni, þá endaði ég einnig „óvart“ í fitness-undirbúning í næstum níu mánuði samfleytt. Það tók mikinn toll að ná sér eftir það. En eftir þessa reynslu hef ég lært margt og ég get ekki kennt neinum um nema sjálfri mér. Ég tek það samt fram að ég hef alltaf verið skynsöm í undirbúningi fyrir fitness-keppnir en þetta einhvern veginn vatt upp á sig. Það að taka tvö fit- ness-mót á níu mánuðum er ekki sniðugt því ég náði svo lítið að hvíla mig inni á milli og þá klárast batt- eríin. Næst mun ég halda mér við skynsamlegan tíma,“ segir hún. Til þess að vinda ofan af sér tók Lilja sér gott sumarfrí innanlands og segir að það hafi verið dásamlegt að fá svona gott sumar. „Ég var mikið með fjölskyldu og vinum á ferðalagi um landið og breytti einnig til í hreyfingu og dreif mig í Crossfit. Það hef ég stundað í allt sumar og er alveg að elska það. Ég mun svo sannarlega halda áfram í því. Auk þess henti ég mér í golfkennslu og labbaði á nokkur fjöll. Það var alveg það sem ég þurfti, enda fann ég þörf- ina að takast á við eitthvað nýtt og þetta er allt eitthvað sem ég mun halda áfram með. Það gefur mér fullt af nýj- um hugmyndum sem þjálfari og fullt af nýjum mark- miðum að ná,“ segir Lilja, sem segist fá mikla orku úr út hreyfingunni. „Ég hugsa skýrar þegar ég hreyfi mig og ég passaði að detta aldrei úr hreyfingu þótt ég væri alveg búin á því. Galdurinn er að ef þú missir neistann í einhverju þarf bara að taka af skarið og breyta til, gera eitthvað nýtt og vera ekki hræddur við það.“ Þ að var kominn tími á breytingar hjá mér og mig langaði að gera eitthvað nýtt eftir tíu ár í Sporthúsinu. Ég þráði að breyta um umhverfi og fá nýjar áskoranir. Allt hefur sinn tíma í lífinu og ég er þakklát Sporthúsinu fyrir þann farsæla tíma sem ég hef átt þar og fyrir því frábæra fólki sem ég hef kynnst og vinnur þar,“ segir Lilja, sem er byrjuð að þjálfa í World Class. „Þar er glæsileg aðstaða og nóg af flottum stöðvum að velja úr sem mér finnst spennandi sem þjálfari. Það er gott að fara í nýtt umhverfi og fá nýja innspýtingu í lífið og starfið,“ segir hún. Hvernig mun starfið breytast? „Starfið sem slíkt er svipað og ég hef náð að þróa með mér síðustu ár, þar sem ég hef aðallega verið með litla hópa af konum sem eru allar með það sama að markmiði, að auka lífsgæði sín og koma sér í dúndurform án öfga. Ég mun einblína sérstaklega á það og vera með færri í hóp og fleiri tíma. Hugsanlega mun ég setja upp lokaðan hópatíma í sal ef hægt er þegar líður á veturinn eða í byrjun næsta árs. Það er stefnan. Annars er ég að þjálfa í tækjasal,“ segir hún. Lilja ætlar að þjálfa á morgnana og þegar hún er spurð út í þetta fyrirkomulag segist hún gera þetta til að hlúa betur að eigin heilsu eftir að hafa nánast brunnið út síðasta vor. „Ég byrja að þjálfa klukkan sex á morgnana og er fram yfir hádegi. Þá eru þegar komnir sjö tímar í beinni Breytir um takt eftir þrotlausa vinnu Lilja Ingvadóttir, einka- þjálfari og fitness-drottn- ing, fór fram úr sjálfri sér í fyrra þegar hún keppti á tveimur fitness-mótum á níu mánuðum. Að hennar sögn er það allt of mikið og vont að ná ekki al- mennilegri hvíld inni á milli. Nú er hún að byggja sig upp og liður í því er að skipta um vinnustað. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Lilja Ingvadóttir, einkaþjálfari í World Class, er að byggja sig upp eftir að hafa fundið fyrir kuln- unareinkennum. 30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.