Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21 þig, fer líkaminn í svolítið sjokk yfir öllu því sem er að gerast. Ég er dug- leg að lesa mér til, þannig að ekkert af því sem kom fyrir mig á þessum tíma var eitthvað sem ég ekki gerði ráð fyrir. Á Diet Doctor-síðunni (dietdoc- tor.com), sem er eins og alfræðiupp- lýsingasíða fyrir ketó-mataræðið og lágkolvetnalífsstíl, er talað um marg- ar leiðir til að passa upp á líkamann á þessum tíma. Það er sem dæmi mikil- vægt að drekka nógu mikið vatn og fá inn í líkamann sölt og steinefni.“ Þetta kom úr öllum áttum Halla segist hafa farið ein af stað í þessa vegferð en smitað svo aðra í fjölskyldunni á leiðinni. Hún hafði heyrt svo marga tala um mataræðið. „Ég heyrði talað um þetta úti um allt. Þess vegna varð ég forvitin í upphafi. Strax á öðrum degi á mataræðinu leið mér betur. Þá varð ekki aftur snúið. Ég var strax áberandi orkumeiri og glaðari. Á þriðja og fjórða degi í ketó- flensunni kom erfiður tími sem ég vissi að myndi koma. Eftir það er tím- inn á þessu mataræði búinn að vera dásamlegur. Í heilt ár hef ég ekki borðað hvítan sykur.“ – Hvað er jákvætt og skemmtilegt við ketó og hvað er neikvætt og leið- inlegt? „Ég er svo heppin að hafa þessa ástríðu fyrir matargerð þannig að ég fagna þeirri áskorun að gera ketó-mat og sneiða hjá unnum matvörum og matreiða allt frá grunni. Þess vegna verð ég að segja að það sem er já- kvætt er hversu fjölbreytt og skemmtilegt þetta er fyrir mig. Ég er dugleg að finna hráefni sem ég get notað til matargerðar og þótt úrvalið sé ennþá takmarkað hérna heima fer það hratt batnandi. Við erum samt einstaklega lánsöm með íslenskar landbúnaðarafurðir. Íslenskar mjólk- urvörur og grænmetið er gott. Það er ekkert betra en nýupptekið íslenskt blómkál og svo má ekki gleyma kjöt- vörum beint frá bónda. Ég sæki mitt kjöt rétt fyrir utan borgarmörkin á Sogn holdnautabýli en þar er uppá- haldskjötbúðin mín. Mér finnst ekkert neikvætt við þetta nema þá helst viðbrögð sumra sem hafa skoðanir á hvað maður er að gera.“ Síþreyta og kvíði heyra sögunni til Halla Björg segir í þessu samhengi mikilvægt að minna sig á hvar hún var og hvar hún er stödd núna. „Ég hef að sjálfsögðu misst fullt af kílóum, en það er aðallega þessi stöðugleiki og vellíðan sem gerir þetta allt þess virði. Síþreyta og kvíði heyra sögunni til og mér finnst ennþá ótrúlegt hversu litlu ég þurfti að breyta til að snúa við blaðinu. Stundum fæ ég viðbrögð sem mér finnst minna á fordóma. Eins og sumum einstaklingum myndi líða bet- ur ef ég væri ennþá vansæl að borða óhollan mat. Margir á ketó tengja við þetta. Ég læt þetta ekkert á mig fá og held ótrauð áfram að kynna það sem ég er að gera á samfélagsmiðlum.“ Halla Björg segist beina athygli sinni að þeirri staðreynd að flestir eru jákvæðir á það sem hún er að gera og þess vegna heldur hún áfram að deila gleðinni áfram. „Ég vil vera til staðar fyrir þá sem langar að breyta lífsstílnum og eru að prófa sig áfram tengt því. Ég svara spurningum, deili hugmyndum og uppskriftum. Engin spurning er vit- laus og ég geri mitt besta í að svara.“ Loksins að stjórna sjálf – Hvað viltu segja um það sem þú ert að gera? „Mig langar að segja að mér finnst ég loksins stjórna í mínu lífi en ekki eins og líkaminn sé að stjórna mér. Það finnst mér svo skemmtilegt að fá að upplifa. Síðan langar mig að segja að ketó-mataræðið er ekkert nýtt af nálinni. Það var notað hér á árum áð- ur á sjúkrahúsum til að halda sem dæmi flogaveiki í skefjum.“ – Hefur þú losnað við fleiri líkam- leg einkenni? „Já ég hef losnað við flest ofnæmis- einkenni en hér áður var ég mjög við- kvæm og endalaust á ofnæmislyfjum. Önnur skrítin staðreynd er að ég hef alltaf verið bitin á sumrin af mýi og fengið mikil ofnæmisviðbrögð tengt því. Ég lendi ekki lengur í því að vera bitin. Þetta og fleira hef ég einmitt lesið um á ketó-síðum.“ – Hvað með hreyfingu? „Ég stunda meiri hreyfingu en ég hef gert áður af því að ég er ekki með þetta slen yfir mér lengur. Ég er létt- ari á mér og léttari í lund. Mér líður stundum eins og aðalpersónunni í „Sound of Music“, sem syngur um að hæðirnar séu lifnaðar við. Ég er loks- ins að lifa lífinu sem ég á skilið.“ Halla segir að það finni allir þessar breytingar á henni sem umgangast hana daglega. „Eins sjást þessar breytingar á mér langar leiðir.“ Ekki láta umhverfið stjórna þér – Hvaða ráð áttu fyrir þá sem eru að feta sín fyrstu skref í ketó-matar- æðinu? „Taktu stjórnina í þínu lífi og ekki láta umhverfið segja þér hvað þú átt að gera. Hvaða leið sem þú finnur er leiðin þín. Ég hvet alla til að halda áfram að prófa sig áfram og ekki gef- ast upp þótt á móti blási.“ – Hvað borðar þú daglega? „Suma dagana fasta ég í 17 klukku- stundir og borða síðan í sjö klukku- stundir á móti. Ég fasta fram til há- degis, drekk þá kaffi með MCT-olíu, smjöri og rjóma. Önnur sturluð stað- reynd er að MCT-olía er einhver orkuríkasta fæða sem þú getur neytt og er notuð á spítölum sem næring fyrir fyrirbura. Ég á alltaf góða osta í ísskápnum og síðan fitubombur, sem eru litlar kúlur t.d. úr kókosolíu eða rjómaosti. Þessar kúlur eru til að við- halda vellíðan og orku yfir daginn. Suma daga fæ ég mér millimál og aðra daga ekki. Ég borða kvöldmat- inn minn snemma, eða um klukkan fimm á daginn. Svo fer bara eftir stemningu hvort ég fæ mér nasl eftir kvöldmatinn.“ – Ertu ekki svöng inn á milli? „Nei, matarlystin er ekkert rosaleg og ég borða nóg af hitaeiningum yfir daginn. Ég vanda það sem ég borða og er full af orku og lífshamingju í staðinn.“ „Ég vissi að svona vildi ég ekki eyða ævi minni. Mig langaði að njóta þess sem eftir er eins vel og ég gæti. En það var eitthvað að plaga mig sem ég vissi ekki hvað var.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.