Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 29
Valentína segir að það sé áskorun að vera í fyrirtækjarekstri á Íslandi enda sé samkeppnin mikil. „Samkeppnin er vissulega góð fyrir neytendur en það getur verið erfitt fyrir lítið íslenskt matvælafyrirtæki að mæta þessum mikla innflutningi sem hægt er að bjóða á betra verði í krafti stærðarinnar. En auðvitað fagna ég því að fólk hafi fleiri valmögu- leika. Við getum allavega verið stolt af okkar gæðaframleiðslu sem við leggjum líf okkar og sál í. Umhverfismálin eru ofarlega á baugi núna og umbúðamál mikið í umræðunni. Því miður hefur okkur ekki tekist enn að finna um- búðir sem ekki eru úr plasti og henta okkar framleiðslu, en við er- um að leita nýrra leiða og umhverfisvænna lausna og trúum því að við munum finna betri umbúðir. Að sjálfsögðu eru allar okkar um- búðir endurvinnanlegar.“ Baunir og bygg gera kraftaverk Maturinn frá Móður náttúru er að mestu leyti handgerður en þau framleiða mikið af græn- metisbuffum þar sem byggi og baunum er blandað saman þann- ig að samsetningin verði rétt. „Með byggi og baunum fáum við góð prótein og flókin kolvetni sem eru líkamanum lífsnauðsyn- leg. Vegan lasagnað okkar er mjög vinsælt, enda þægilegur tilbúinn hollusturéttur sem þarf aðeins að hita. Við höfum verið að uppfæra uppskriftirnar okkar og breyta umbúðum, núna nýlega breyttum við indversku pönnu- kökunum okkar, jukum grænmetið og gerðum þær aðeins sterk- ari. Þær hafa alveg slegið í gegn hjá þeim sem hafa smakkað. Einnig framleiðum við mikið af pottréttum en þeir eru einungis seldir á mötuneytamarkaði og það er aldrei að vita nema að þeir komi aftur í verslanir.“ Grænmetisréttir fara betur með jörðina en mikið kjötát. Hvað getur hinn venjulegi Magnús Magnús Magnússon gert til að bæta meira grænmeti inn í líf sitt ef hann er ekki vanur að borða græn- metisrétti? „Þeir sem eru ekki vanir grænmetisfæði gætu byrjað smátt og smátt með því að hafa meira grænmeti með sínum hefðbundna mat og minna kjöt og jafnvel inni á milli sleppt alveg kjötinu eins og t.d. að fá sér grænmetisborgara í stað kjötborgara. Ég skora á alla að prófa ef þeir hafa ekki smakkað og ef þú vilt fara fljótlegu leiðina þá eru Hamborgarabúllan og fleiri staðir með grænmet- isborgara frá Móður náttúru og hafa vinsældir þeirra aukist mikið undanfarin ár. Baunir eru góður próteingjafi sem getur komið í staðinn fyrir prótein úr kjöti. Flestir þurfa að venjast því að borða baunir og því er ágætt að byrja á litlu magni af þeim svo þær valdi ekki óþægindum. Það má nota réttina frá Móður náttúru á ýmsa vegu og eru þeir upplagðir með í nestispakkann á ferðalögum þar sem þeir eru allir fulleldaðir og má borða kalda. Indversku pönnukökurnar eru til dæmis frábært göngunesti enda bragðmiklar og nærandi. Vegan lasagne er alveg frábært með góðu grænu pestói og soðnu brokk- olíi, það er máltíð sem ég verð ekki leið á, alltaf jafn gott og sað- samt.“ Þegar Valentína er spurð út í vöruþróun segir hún að þau hjón- in hafi þróað alla sína rétti sjálf. „Við erum mjög hrifin af indverskum mat sem og Miðjarðar- hafsmataræði og sækjum svolítið innblástur þaðan. Flestar okkar uppskriftir eiga uppruna sinn á hugarflugsfundum sem eiga sér stað í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni. Svo tökum við hug- myndirnar og útfærum þær á blaði og gerum tilraunir í eldhús- pottunum. Þegar uppskriftin er tilbúin sendum við hana í Sýni sem er ráðgjafar- og þjónustu- fyrirtæki fyrir matvælaiðnaðinn. Þeir reikna út næringargildin fyrir okkur og koma með góðar ráðleggingar ef með þarf varð- andi samsetningu vörunnar.“ Hvernig er að vinna með mak- anum sínum alla daga, eru ein- hver skil á milli vinnu og einka- lífs? „Fyrstu árin einkenndust af botnlausri vinnu og það var lítið annað sem komst að en að hugsa um fyrirtækið og reyna að passa í þennan alltof stóra stakk sem við vorum búin að sníða á okkur. Það kom alveg fyrir á kvöldin að maðurinn minn bað mig um að hætta að tala um vinnuna og fara að sofa. Í dag erum við reynslunni ríkari og fyrirtækisreksturinn hefur náð góðu jafnvægi. En vissulega eru margir boltar á lofti og það fylgir því mikil ábyrgð að reka fyrirtæki, því er svo nauðsynlegt að taka sér gott frí inni á milli og hlaða batteríin og njóta samvista við fjölskylduna. Útivera er mér mjög mikilvæg og veit ég fátt betra til að endurnýja lífsorkuna en að taka góða göngu úti í nátt- úrunni. Starfið mitt er mjög fjölþætt. Það getur verið mjög krefjandi að bera marga ólíka hatta sama daginn, en þannig gengur það fyrir sig í litlum fyrirtækjum. Eigendur þurfa að geta gengið inn í mörg ólík störf. Ég hef sótt námskeið í stjórnun og það hefur gef- ið mér mikið. En mest hef ég farið þetta á hyggjuvitinu og reynt að gera mitt besta og vera sanngjarn vinnuveitandi, starfsmaður- inn er jú það dýrmætasta sem fyrirtækið hefur.“ „Ég þekki þetta líka á eigin skinni. Það er auðvelt að detta í sukkið þegar maður er þreyttur og varnarlaus. Þá getur léleg skyndibitamáltíð verið skammvin sæla sem gerir ekkert fyrir mann. Við erum mjög hrifin af indverskum mat sem og Miðjarðarhafsmataræði og sækjum svolítið inn- blástur þaðan. Flestar okkar uppskriftir eiga uppruna sinn á hugar- flugsfundum sem eiga sér stað í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni. Þ að heitasta sem er að gerast í íþrótta- fataheiminum akkúrat núna er sam- starf Victoriu Beckham og Reebok. Um er að ræða íþróttalínu sem er ætluð fyrir öll kyn. Í línunni eru klæðilegar íþróttabuxur sem smellpassa í lyftingar og jafnvel líka í jóga. Svo eru góðir íþróttatoppar í línunni sem bæði má nota við líkamsrækt en líka bara á djammið ef fólk er með hátt orkustig. Í línunni eru líka íþróttakór, bakpokar, vindjakkar og hlýrabolir svo eitthvað sé nefnt. Fötin í línunni eru í svörtu og gráu en líka í hlýjum og eftirsóknarverðum litum eins og kóralbleikum og appelsínugulum. Hægt er að kaupa línuna á netinu í gegnum síður eins og www.mytheresa.com. Allt öðruvísi íþróttaföt FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 29 ( HEIMA Heilsa Vellíðan Daglegt líf NÁNARI UPPLÝSINGAR: Sími 563 1400 Sóltúni 2, 105 Reykjavík soltunheima@soltunheima.is www.soltunheima.is PO RT hö nn un Endurheimtu fyrri styrk Styrktarþjálfun er lykillinn að bættum lífsgæðum á efri árum – aldrei of seint að byrja! SÓLTÚN HEIMAHREYFING Sérsniðnar æfingar tvisvar í viku á heimili eldri borgara með danska æfingakerfinu DigiRehab og aðstoð leiðbeinanda. Grunnáskrift felur í sér 3 mánuði en að því loknu er hægt að halda áfram æfingunum með aðstoð eða á eigin vegum í DigiRehab kerfinu. Sjá nánar áskriftarleiðir á www.soltunheima.is. Verð 37.600 kr. á mánuði. Fyrsta heimsókn ókeypis og án skuldbindingar! Skilar árangri á aðeins 12 vikum* Auðveldar einstaklingum að standa upp úr stól, stíga fram úr rúmi eða ganga upp stiga. Eykur gönguhraða og jafnvægi. Minnkar þörf á notkun hjálpartækja. Bætt andleg og líkamleg heilsa. Persónulegur leiðbeinandi mætir heim tvisvar í viku *Rannsóknir DigiRehab í Danmörku sýna að 60% þátttakenda öðlast marktækt betri hreyfigetu á 12 vikum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.