Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 27 NÁMSKEIÐ Í BOÐI: Mánudaga, miðvikudaga kl. 17.30 og föstudaga kl. 16.30 LEIÐIN AÐ BETRI LÍFSSTÍL 100 daga lífsstílsáskorun. Hefst mánudaginn 9. september. Mælingar á tveggja vikna fresti, ráðleggingar ummataræði (matardagbækur) og þrír fyrirlestrar. Leiðsögn í sal, aðhald og persónuleg aðstoð. Verð: 109.900 kr. Innifalið: Aðgangur að Spa, handklæði við komu, herðanudd í heitum pottum og kaffi á kaffistofu. Þjálfarar: Guðbjartur Ólafsson, Agnes Þóra Árnadóttir og Þórunn Stefánsdóttir. Skráning og nánari upplýsingar á spa@hiltonreykjavikspa.is og í síma 444 5090 100 DAGAR VIÐ VERÐLAUNUM GÓÐAN ÁRANGUR 1. verðlaun kvenna og 1. verðlaun karla: 6 mán. kort í Hilton Reykjavík Spa að verðmæti 186.000 kr. Aukaverðlaun: Nudd í Hilton Reykjavík Spa að verðmæti 13.900 kr. H vað gerir þú til að huga að heilsunni? „Ég legg áherslu á að lifa heilbrigðum og gefandi lífsstíl. Að stunda daglega hreyfingu, borða hollan og góðan mat, umgangast jákvætt fólk og stunda atvinnu og félagsstörf sem gleð- ur og gefur. Ég reyni helst að halda sykurneyslu í lágmarki og forðast óhollan skyndibita. Mikilvægt er að sniðganga þá þætti sem ógna heilsunni hvað mest í þessum heimi. Við vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér en það sakar þó ekki að vera meðvitaður um innihald þeirra mat- væla eða einhvers konar freistinga sem maður umgengst nánast daglega. Það er margt mjög gott í hófi og ég reyni þá frekar að verðlauna mig stöku sinnum. Ég reyni að njóta lífsins í dag en þó með það í huga að geta einnig notið þess á morgun.“ Hvað þýðir góð heilsa fyrir þig? „Fyrir mér er góð heilsa samspil góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu. Þetta helst mikið í hendur og það er nauð- synlegt að huga að báðum hliðum. Að vera ánægður/ hamingjusamur í eigin sál og líkama. Það virkar best fyrir mig að vera í einhvers konar rútínu og reyna að halda öllu því sem ég aðhefst í ákveðnu jafnvægi, þ.e. að reyna að halda streitu og kvíða í vissu lágmarki en jafnframt vera með drifkraft og setja mér raunhæf og krefjandi markmið. Síðast en ekki síst að láta utanaðkomandi áreiti ekki hafa of mikil áhrif á mig.“ Hvað borðar þú daglega? „Ég borða salat og avókadó daglega ásamt því að taka inn Omega 3 fiskiolíu og Kollagen frá Prot- is. Ég reyni að borða mjög fjölbreytta fæðu yfir daginn og út vikuna. Það eru vissar fæðu- tegundir sem ég reyni að koma reglulega fyrir í vikunni en aðallega eru það góðir og bragðmiklir fiskréttir sem eru í miklu uppáhaldi og gott meðlæti, samanber grænmeti og svo framvegis. Ég legg mikla áherslu á ferskar afurðir, íslenskt grænmeti og elda þær frá grunni. Bananar og hindber eru líka í miklu uppáhaldi.“ Hvernig æfir þú? „Ég stunda reglulega líkamsrækt og legg áherslu á fjöl- breyttar æfingar auk þess sem ég stunda hot yoga sem eru mínir uppáhaldstímar. Ég hef mjög gaman að því að fara í hóptíma í líkamsræktarstöðinni World Class. Þar er boðið upp á alls kyns hreyfiaðferðir sem taka á mismunandi lík- amssvæðum, en nýti mér reglulega snilldartímana í hot yoga, vaxtarmótun og hot hody toning ásamt því að kíkja af og til á tækin í tækjasalnum. Hluti að þessu er einnig úti- veran og sú hreyfing sem henni fylgir.“ Hvernig hugsarðu? „Gott er að eiga góðs að minnast. Ég reyni að lifa eftir þessum orðum. Ég reyni að setja jákvæðni og heilbrigt hugarfar inn í þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, hvort sem það er tengt atvinnu eða fjölskyldunni. Ég vil gjarnan trúa því að ef maður einbeiti sér við að vinna vel þau verkefni sem maður tekur sér fyrir hendur og skili þeim vel af sér, láti það vera að bera sig of mikið saman við aðra, verði útkoman frábær og dagurinn líka.“ Hvernig gerir þú til að verða besta útgáfan af þér daglega? „Með því að endurspegla þau gildi sem ég hef sett mér og ásamt því að taka skrefin út fyrir þægindarammann. Að vera óhrædd við að takast á við nýjar áskoranir. Það er margt utanaðkomandi sem spilar þó stórt hlutverk hér, það er auðvitað að umgangast eða vera umkringd þeim sem eru þér næstir og hafa sem best áhrif á þig, til dæmis fjöl- skyldan og góðir vinir. Það er fólkið sem dregur það besta fram í mér. Það er einnig gott að muna að við eigum ekki endalausan tíma. Við verðum að skipuleggja okkur og reyna að nýta tímann sem mest þar sem okkur líður sem best. Muna að njóta augnabliksins og lifa lífinu lifandi.“ Hvaða ráð áttu fyrir aðra? „Verið ófeimin við að takast á við nýjar áskoranir. Það er fullt af leyndum hæfileikum sem búa í hverju og einu okkar.“ „Reyni að njóta dagsins í dag“ Sjöfn Þórðardóttir, verkefnastjóri og fjölmiðlakona, veit að það skiptir máli að hugsa um heilsuna, hvort heldur sem er líkamlegt eða andlegt heilbrigði. Hún segir að réttur félagsskapur sé ekki ósvipaður góðri heilsurækt; hann næri og kæti andann. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sjöfn Þórðar- dóttir er alltaf í góðu formi. Ljósmynd/Aðsend

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.