Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 25
„Ég hef alls ekki sloppið við mótlæti og það hefur þroskað mig og gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Árið 2015 seldum við fyrirtækið okkar og þá stökk ég út í djúpu laugina og byrjaði að vinna sem jógakennari og Thai yoga nuddari í fullu starfi.“ Í janúar 2016 hélt Gyða Dís til Taílands þar sem hún náði sér í 200 stunda kennararéttindi í Anusara jóga sem hún kennir mikið í dag. „Anusara jóga er jóga hjartans, að sjá allt það fallega í öllu sem er, sjá það að hver og einn leggur allt sitt í að ástunda og gera það 100% miðað við sína eigin getu og lík- amsburð. Við erum svo misjöfn, hver og einn er einstakur eða einstök og við verðum að bera virðingu fyrir því, bera virðingu fyrir líkama okkar og læra að elska hann ná- kvæmlega eins og hann er.“ Í haust er Gyða Dís að byrja með jógakennaranám- skeið. „Ástríðan mín er að kenna jóga, leiða jógatíma, leiða fólk áfram inn í mismunandi stöður og jóga snýst ekki endilega um að fara í alla vega vindur og fettur og krefj- andi jógastöður, alls ekki. Það snýst um umbreytinguna í raun og veru. Hver viltu vera? Aðalástæðan fyrir þessu er að það er svo gaman að sjá fólkið sitt vaxa og dafna, fylgj- ast með ferðalaginu þeirra þegar þau takast á við sinn innri mann. Í kennaranáminu förum við enn dýpra að sjálfsögðu. Ég hef undanfarin ár boðið upp á ýmiskonar jógaferðir hérlendis og erlendis. Þar er gríðarlega mikil viska og lærdómur sem jógarnir öðlast, finna sig og bera þessar ferðir oft saman við hinar ýmsu starfsmannaferðir sem eru í sama tilgangi, að bæta líf sitt og þekkingu í því sem starfað er við. Í framtíðinni sé ég fyrir mér einmitt að bjóða upp á starfsmannaferðir einnig. En jógakennara- námið á hug minn allan eins og er og það hefst 27. sept- ember með vikudvöl á dásamlegu hóteli í Bjarnarfirði. Þar er allt til alls, hreinn vegan grænmetismatur, dásam- leg náttúrusundlaug, flot því ég er einnig með flotþerapíu, já það er hægt að telja þetta endalaust upp. Í raun er hægt að lýsa náminu með þessum orðum. Hvað drífur þig áfram? „Ástríðan, fyrir öllu því sem ég er að gera. Fólk spyr mig hvernig nennir þú þessu, vakna alla morgna og fara að kenna? En jú, ástríðan flytur fjöll ásamt kærleikanum. Ég geri mitt besta og elska það að fá fólk með ýmiskonar vandamál og sjá það fá bata, styrkjast og verða heilbrigð- ara. Vegna þess að líkamar okkar eru gerðir til að hreyfa sig, ég er líka mikil anatomy- eða líffæranörd, það skiptir mig miklu meira máli að þú farir rétt í og úr jógastöðunni / asana heldur en hvernig þú lítur út í henni. Við erum ekki að stunda jóga til þess aðeins að fara í fallega jóga- stöðu. Jóga er svo miklu miklu miklu meira en það.“ Ljósmynd/Ásta Kristjánsdóttir „Yngsti sonur minn segir oft „hvað er að frétta, mamma, þú ert eins og Benjamin Button.“ Ég yngist með árunum, segir hún Gyða Dís yngist með hverju árinu. FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 25 Meðferðin/námskeiðið fyrirbyggir og læknar suma sjúkdóma. Staðsetning: Hótel Elf nálægt Gdansk. Lífsgæði allra byggja á heilsunni, heilsan byggir á erfðum, hugarfari, hreyfingu, mataræði, þekkingu og aga. Agann fær fólk á dásamlegu heilsuhóteli í þjóðgarði nálægt Gdansk. Um tvö mismunandi heilsuhótel er að ræða. Jónína Ben vinnur á þeim báðum. Meðferðin (mataræðið og hvíldin mest) vinnur gegn offitu, sykursýki 2, háþrýstingi, húðsjúkdómum, streitu, þunglyndi, gigt, vöðvabólgu, vefjagift og fleiri sjúkdómum. Detox heilsu- og SPAmeðferðir Jónínu Ben í Póllandi Til þess að bóka í heilsumeðferð hjá Jónínu Ben greiðir þú 70.000 inn á 0111 26 502603, kt. 260357-3879 en síðan restina til hótelsins við komu. Flugið kaupir fólk oftast með wizzair.com en mælst er til þess að fólk taki 14 nætur á heilsuhótelinu. Nánari upplýsingar veitir Jónína Ben í síma 822 4844 eða á joninaben@joninaben.is Jónína Ben er í háskólamenntuð í heilsufræðum fráMc Gill University. Hún hefur unnið í 16 ár með Detox- meðferðina ásamt læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki, á Íslandi og í Póllandi. Jónína Ben er með fræðslu- fyrirlestra og hvetur þig til að taka ábyrgð á eigin heilsu. Hún hefur verið frumkvöðull í heilsu síðan 1980. 14. september Sér dagskrá fyrir fólk í kulnun, síþreytu, þunglyndi og með kvíða, en allir velkomnir. 21. september Sér dagskrá fyrir AA fólk og aðra sem vilja skerpa á edrúmennskunni með öðrum, en allir velkomnir. 28. september Sér dagskrá gegn þyngdarvanda, offitu t.d. en allir velkomnir. 5. október Sér dagskrá fyrir 60 ára og eldri, en allir velkomnir. 4. janúar 2020 Sér dagskrá fyrir þá sem vilja hætta að drekka þá eftir jól og áramót, en allir velkomnir. 11. janúar 2020 Sér dagskrá fyrir þá sem vilja læra núvitund, hugleiðslu og að sofa án lyfja, en allir velkomnir 18. janúar 2120 Sér dagskrá fyrir þá sem þjást af stoðkerfisvandamálum, en allir velkomnir. Heilsa og skemmtun, allt í einum pakka! Laust er í eftirtaldar meðferðir:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.