Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 19
að leiðbeina. Jógakennari í miklu
ójafnvægi, hversu vel sem hann er að
sér í fræðunum, er seint að fara að
koma einhverjum í að hugsa inn á
við.“
Hver var þín helsta heilsutengda
áskorun?
„Það sem ég veit núna er að það
hefur alltaf verið streita og að
draumar um ákveðna þyngd, pirr-
ingur á einhverjum aukakílóum eða
tiltekt í mataræði voru viðbrögð við
ástandi sem átti rætur að rekja til
streitu. Nú skil ég betur hvað ég get
gert og byrjað á réttum enda.“
Hvað er gott líf í þínum huga?
„Ég hef enga skilgreiningu á góðu
lífi, við fáum bara þau verkefni sem
eiga að koma til okkar í þessu lífi og
ef þau eru vel leyst ætli það sé ekki
gott líf, tilganginum náð.“
Hver er tilgangur þinn í lífinu?
„Flestir foreldrar deila því örugg-
lega með mér að mikilvægasta hlut-
verkið sem við veljumst í er að koma
börnunum okkar til manns og kenna
þeim eins vel og við getum. Ég er
mjög stolt af mínum strákum enda tel
ég mig hafa verið góða fyrirmynd.
Núna eru þeir að fylgjast með mér
elta mína drauma og velja verkefni
sem næra andann. Þeir hafa líka oft
heyrt mig tönnlast á því að mér sé
ætlað að þjálfa og leiðbeina fólki. Það
er bara eitthvað í kerfinu mínu sem
segir mér það.“
Hvers óskar þú þér fyrir veturinn?
„Ég vona að fólk setji sér lang-
tímamarkmið í haust og fari í vetur-
inn með skýra sýn á hvert það vill
vera komið í vor eða á sama tíma að
ári. Hafi á hreinu hvaða breytingar
það vill gera, finni heppilega leið til
þess og gleðjist yfir sérhverju skrefi í
rétta átt. Það er megininntakið í kerf-
inu sem ég hef hannað og vinir mínir í
stöðinni fylgja. Með því að gera þetta
skemmtilegt veit ég að fólk hlakkar
til og mætir hvort sem það er slydda,
kuldi, að dagurinn hafi ekki verið sem
bestur í vinnunni eða eitthvað annað
sem er svo auðvelt að láta slá sig út af
laginu.“
Ljósmynd/Andrea Ásmunds
Womens Health Magazine
vakti athygli á dögunum
með áhugaverðri umfjöllun
um líkama kvenna í formi.
Konur eru allskonar og
allar konur eru fallegar var
inntak greinrinnar sem
sýndi allskonar konur í mis-
jöfnu formi. Á meðal þeirra
sem komu fram var styrkt-
arþjálfarinn Angela Garg-
ano sem segir að hún hafi
oft notað víðan fatnað til að
hylja vöðvana sína.
Allar konur
eru
fallegar
Tabria Maj-
ors er sátt í
eigin skinni.
Angela Gargano vekur
athygli víða. Hún talar
opinskátt um hvernig er
að vera með stóra vöðva.