Morgunblaðið - 23.08.2019, Page 21
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 21
þig, fer líkaminn í svolítið sjokk yfir
öllu því sem er að gerast. Ég er dug-
leg að lesa mér til, þannig að ekkert af
því sem kom fyrir mig á þessum tíma
var eitthvað sem ég ekki gerði ráð
fyrir. Á Diet Doctor-síðunni (dietdoc-
tor.com), sem er eins og alfræðiupp-
lýsingasíða fyrir ketó-mataræðið og
lágkolvetnalífsstíl, er talað um marg-
ar leiðir til að passa upp á líkamann á
þessum tíma. Það er sem dæmi mikil-
vægt að drekka nógu mikið vatn og fá
inn í líkamann sölt og steinefni.“
Þetta kom úr öllum áttum
Halla segist hafa farið ein af stað í
þessa vegferð en smitað svo aðra í
fjölskyldunni á leiðinni. Hún hafði
heyrt svo marga tala um mataræðið.
„Ég heyrði talað um þetta úti um allt.
Þess vegna varð ég forvitin í upphafi.
Strax á öðrum degi á mataræðinu leið
mér betur. Þá varð ekki aftur snúið.
Ég var strax áberandi orkumeiri og
glaðari. Á þriðja og fjórða degi í ketó-
flensunni kom erfiður tími sem ég
vissi að myndi koma. Eftir það er tím-
inn á þessu mataræði búinn að vera
dásamlegur. Í heilt ár hef ég ekki
borðað hvítan sykur.“
– Hvað er jákvætt og skemmtilegt
við ketó og hvað er neikvætt og leið-
inlegt?
„Ég er svo heppin að hafa þessa
ástríðu fyrir matargerð þannig að ég
fagna þeirri áskorun að gera ketó-mat
og sneiða hjá unnum matvörum og
matreiða allt frá grunni. Þess vegna
verð ég að segja að það sem er já-
kvætt er hversu fjölbreytt og
skemmtilegt þetta er fyrir mig. Ég er
dugleg að finna hráefni sem ég get
notað til matargerðar og þótt úrvalið
sé ennþá takmarkað hérna heima fer
það hratt batnandi. Við erum samt
einstaklega lánsöm með íslenskar
landbúnaðarafurðir. Íslenskar mjólk-
urvörur og grænmetið er gott. Það er
ekkert betra en nýupptekið íslenskt
blómkál og svo má ekki gleyma kjöt-
vörum beint frá bónda. Ég sæki mitt
kjöt rétt fyrir utan borgarmörkin á
Sogn holdnautabýli en þar er uppá-
haldskjötbúðin mín.
Mér finnst ekkert neikvætt við
þetta nema þá helst viðbrögð sumra
sem hafa skoðanir á hvað maður er að
gera.“
Síþreyta og kvíði heyra sögunni til
Halla Björg segir í þessu samhengi
mikilvægt að minna sig á hvar hún
var og hvar hún er stödd núna. „Ég
hef að sjálfsögðu misst fullt af kílóum,
en það er aðallega þessi stöðugleiki og
vellíðan sem gerir þetta allt þess virði.
Síþreyta og kvíði heyra sögunni til og
mér finnst ennþá ótrúlegt hversu litlu
ég þurfti að breyta til að snúa við
blaðinu. Stundum fæ ég viðbrögð sem
mér finnst minna á fordóma. Eins og
sumum einstaklingum myndi líða bet-
ur ef ég væri ennþá vansæl að borða
óhollan mat. Margir á ketó tengja við
þetta.
Ég læt þetta ekkert á mig fá og
held ótrauð áfram að kynna það sem
ég er að gera á samfélagsmiðlum.“
Halla Björg segist beina athygli
sinni að þeirri staðreynd að flestir eru
jákvæðir á það sem hún er að gera og
þess vegna heldur hún áfram að deila
gleðinni áfram.
„Ég vil vera til staðar fyrir þá sem
langar að breyta lífsstílnum og eru að
prófa sig áfram tengt því. Ég svara
spurningum, deili hugmyndum og
uppskriftum. Engin spurning er vit-
laus og ég geri mitt besta í að svara.“
Loksins að stjórna sjálf
– Hvað viltu segja um það sem þú
ert að gera?
„Mig langar að segja að mér finnst
ég loksins stjórna í mínu lífi en ekki
eins og líkaminn sé að stjórna mér.
Það finnst mér svo skemmtilegt að fá
að upplifa. Síðan langar mig að segja
að ketó-mataræðið er ekkert nýtt af
nálinni. Það var notað hér á árum áð-
ur á sjúkrahúsum til að halda sem
dæmi flogaveiki í skefjum.“
– Hefur þú losnað við fleiri líkam-
leg einkenni?
„Já ég hef losnað við flest ofnæmis-
einkenni en hér áður var ég mjög við-
kvæm og endalaust á ofnæmislyfjum.
Önnur skrítin staðreynd er að ég hef
alltaf verið bitin á sumrin af mýi og
fengið mikil ofnæmisviðbrögð tengt
því. Ég lendi ekki lengur í því að vera
bitin. Þetta og fleira hef ég einmitt
lesið um á ketó-síðum.“
– Hvað með hreyfingu?
„Ég stunda meiri hreyfingu en ég
hef gert áður af því að ég er ekki með
þetta slen yfir mér lengur. Ég er létt-
ari á mér og léttari í lund. Mér líður
stundum eins og aðalpersónunni í
„Sound of Music“, sem syngur um að
hæðirnar séu lifnaðar við. Ég er loks-
ins að lifa lífinu sem ég á skilið.“
Halla segir að það finni allir þessar
breytingar á henni sem umgangast
hana daglega. „Eins sjást þessar
breytingar á mér langar leiðir.“
Ekki láta umhverfið stjórna þér
– Hvaða ráð áttu fyrir þá sem eru
að feta sín fyrstu skref í ketó-matar-
æðinu?
„Taktu stjórnina í þínu lífi og ekki
láta umhverfið segja þér hvað þú átt
að gera. Hvaða leið sem þú finnur er
leiðin þín. Ég hvet alla til að halda
áfram að prófa sig áfram og ekki gef-
ast upp þótt á móti blási.“
– Hvað borðar þú daglega?
„Suma dagana fasta ég í 17 klukku-
stundir og borða síðan í sjö klukku-
stundir á móti. Ég fasta fram til há-
degis, drekk þá kaffi með MCT-olíu,
smjöri og rjóma. Önnur sturluð stað-
reynd er að MCT-olía er einhver
orkuríkasta fæða sem þú getur neytt
og er notuð á spítölum sem næring
fyrir fyrirbura. Ég á alltaf góða osta í
ísskápnum og síðan fitubombur, sem
eru litlar kúlur t.d. úr kókosolíu eða
rjómaosti. Þessar kúlur eru til að við-
halda vellíðan og orku yfir daginn.
Suma daga fæ ég mér millimál og
aðra daga ekki. Ég borða kvöldmat-
inn minn snemma, eða um klukkan
fimm á daginn. Svo fer bara eftir
stemningu hvort ég fæ mér nasl eftir
kvöldmatinn.“
– Ertu ekki svöng inn á milli?
„Nei, matarlystin er ekkert rosaleg
og ég borða nóg af hitaeiningum yfir
daginn. Ég vanda það sem ég borða
og er full af orku og lífshamingju í
staðinn.“
„Ég vissi að svona vildi ég ekki eyða ævi
minni. Mig langaði að njóta þess sem eftir er
eins vel og ég gæti. En það var eitthvað að
plaga mig sem ég vissi ekki hvað var.