Morgunblaðið - 23.08.2019, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
þegar ég fer út með vinkonum mínum á salsaklúbba. Þar
mæta allir til að dansa og skemmta sér. Andrúmsloftið
er létt og skemmtileg. Þú sérð engan í fýlu að dansa og
það kann ég að meta.“
Saknar elsta sonarins mikið
Hvernig tilfinning er það að elsti sonurinn sé fluttur til
Ítalíu?
„Bara mjög góð. Ég sakna hans samt rosalega mikið.
Ég er mjög stolt af honum. Það gefur mér mestu ánægj-
una að hlúa að börnunum og sjá þau komast eins langt og
þeir geta í því sem þeir ákveða að leggja fyrir sig.“
Hvernig stendur þú best með börnum þínum?
„Með því að setja þau alltaf í fyrsta sætið. Mér finnst
það sjálfsagt. Ég geri það alltaf og hef alltaf gert það fyr-
ir fjölskylduna.“
Er það mikil vinna að fylgja drengjunum eftir í knatt-
spyrnu?
„Já það er mjög mikil vinna. Að skutla og sækja á æf-
ingar alla daga vikunnar og svo eru leikir allar helgar og
síðan mót þegar deildin er búin að spila í maí. Þetta er
harður heimur sem þeir eru í frá unga aldri ef börnin
spila í góðum klúbbum. Það þarf að hafa hugarfarið í lagi
og einnig mataræðið. Ég hef reyndar alltaf alið þá upp
við mikla hollustu svo ég er ekki mikið að predika mat-
aræði yfir þeim. Við borðum bara holla hreina fæðu og
ég kaupi aldrei skyndibita. Þeir reyndar biðja aldrei um
slíkt. Ég er yfirleitt bara með heimagerðan mat. Síðan
finnst mér jákvætt hugarfar koma manni langt. Það er
margt nógu erfitt í lífinu, svo ég æfi mig í að vera þakklát
og reyni að kenna þeim það áfram. Ef þeir vilja komast
þangað sem þeir stefna verða þeir að leggja mikið á sig.
Sem er einmitt það sem þeir hafa gert. Þeir eru einbeitt-
ir í sínu og hugsa vel um hvað þeir borða. Þeir eru að
spila í hörðum heimi.“
Hvernig undirbýr maður börn fyrir slíkt?
„Með því að kenna þeim að gefast ekki upp og að lífið
geti stundum verið eins og rússíbani. Stundum gengur
vel og stundum illa. Ef hausinn á okkur er í lagi og mað-
ur er sterkur andlega þá eru allir vegir færir.“
Hver er fyrirmyndin þín?
„Örugglega mamma og ömmur mínar. Þær eru allar
með mismunandi kosti sem ég hef tekið mér til fyr-
irmyndar. Kvenleggurinn í fjölskyldunni eru sterkar
konur sem kunna ekki að gefast upp. Þær kvarta aldrei
og halda alltaf áfram.“
Hvað með þá sem njóta mikillar velgengni en börnin
sitja eftir?
„Já ég hef ekki reynslu af slíku. Ég tók þá ákvörðun
þegar börnin voru lítil að setja fókusinn á þau. Ég er
heppin með hversu jarðbundnir og góðir strákarnir mín-
ir eru, en ég get ekki ímyndað mér að hægt sé að vera
hamingjusamur ef börnunum líður ekki eins.“
Ástin kemur þegar hún kemur
Hvað um ástina?
„Já, er ástin ekki yndisleg? Það er til fullt af sætum
mönnum þarna úti, en ég vil klára þennan kafla í lífi mínu
og er ekki að stressa mig á neinu. Ástin kemur bara þeg-
ar hún kemur.“
Hvað skiptir þig mestu máli í fari fólks?
„Það er fyrst og fremst heiðarleiki, hreinskilni, um-
burðarlyndi og góðmennska. Síðan finnst mér mikilvægt
að kunna að taka tillit til annarra og vera skilningsríkur.
Þegar kemur að karlmönnum finnst mér einnig jákvætt
að vera fyndinn og skemmtilegur og með húmor fyrir
sjálfum sér.“
Verður sterkari með árunum
Ragnhildur varð fertug fyrir tveimur árum og þegar
hún er spurð að því hvernig henni finnist að eldast segist
hún bara vera ánægð með það.
„Mér finnst æðislegt að eldast og finnst ég mýkjast
með aldrinum, en á sama tíma verða miklu sterkari. Ég
hef góða tilfinningu fyrir því að vera sjálfstæð og finnst
ég í raun og veru geta flutt fjöll. Ég vil vera sjálfri mér
nóg. Ég er hamingjusöm í eðli mínu og kann betur og bet-
ur að meta hlutina í kringum mig.“
Hvað veit enginn um þig?
„Ég held það sé ekkert sem enginn veit. Kannski eru
margir sem ekki vita hvað ég hef mikla ástríðu fyrir
börnunum mínum. Að koma þeim áfram á góðan stað í líf-
inu.“
Hver er uppskriftin að því að líta vel út að þínu mati?
„Ég held það sé ekki til nein leyniuppskrift að því,
nema bara að hugsa jákvætt til sín og sjá að maður er
bara fínn eins og maður er eða í það minnsta alltaf að
reyna sitt besta. Að vera ekki að rífa sig niður og muna að
maður er ekki verri en hver annar. Vera hamingjusamur
því hamigjan skín í gegn og svo er mikilvægt að brosa.
Hreyfing bætir og kætir og léttir lundina. Jákvæð hugs-
un kemur manni langt og síðan að borða hreinan mat og
allt í hófi.“
Er orðin þreytt á því að búa ein erlendis
Heldurðu að þú komir heim til Íslands aftur?
„Já, ég hugsa að ég komi heim eftir nokkur ár. Þegar
börnin eru komin á réttan aldur. Ég er orðin smávegis
þreytt á því að búa ein erlendis og langar að hafa lífið svo-
lítið einfaldara,“ segir hún og játar að það geti tekið á að
pússla dagskránni saman þannig að allt smelli.
Hvað gætirðu hugsað þér að leggja fyrir þig hér
heima?
„Ég er opin fyrir svo mörgu. Ég elska allt sem tengist
líkamsrækt og hreyfingu þannig að kannski verð ég á
þeirri línu. Ég er opin fyrir svo mörgu og til í að leyfa
hlutunum að koma í ljós.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ragnhildur
þekkir ekkert
annað en að líf
hennar snúist
um fótbolta.
Verð frá 94.990
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem
er. Búa til heita súpu
og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Byrjaðu haustið með stæl
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ascent serían frá Vitamix