Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 14

Morgunblaðið - 23.08.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 Í Mýrinni í Garðabæ er í boði vatnsleikfimi ætluð fólki með ýmis konar líkamleg óþægindi sem hamla fólki í hreyfingum. Í vatninu verður allt svo miklu auðveld- ara og hægt að gera eitt og annað sem ekki er gott á þurru landi. Leikfimin hentar vel fólki með gigtar- sjúkdóma, verki í baki, stirðleika í liðum og ýmis önnur einkenni. Þetta er hressandi leikfimi semmiðar að því að auka úthald og styrk, liðka og veita ánægju af hreyfingu. Við bæði göngum og hlaupum í vatninu, gerum æfingar fyrir stóra sem smáa vöðva og njótum þess að vera í skemmtilegum félagsskap. Æfingarnar eru bætandi fyrir líkamann og nærandi fyrir sálina. Næstu námsskeið byrja 11. september. Margir hópar í boði. Langar þig að prófa hressandi VATNSLEIKFIMI? Nánari upplýsingar veitir Guðríður Jóna, íþróttakennari netfang g-jona@internet.is facebook - Mýrin vatnsleikfimi Fjölbreytt og hressandi G uðni segir neysluna vera fíkn og að fjarvera sé eina raunverulega fíknin, hvort sem við notum efni, áfengi, mat eða afþreyingu til að yfirgefa okkur sjálf og hverfa. Til að tengjast þurfum við að næra okkur á líkama og sál, læra að þiggja blessanir tilverunnar, vera þakklát. Það sé ákvörðun sem flestir ættu að taka. Að vakna til vitundar er tilgangurinn okkar hér á jörðinni. Guðni Gunnarsson hefur komið sér vel fyrir í Rope Yoga-setrinu í Garðabæ. Þegar ég heimsæki hann á fal- legu skrifstofunni hans er eins og tíminn standi í stað. Ég byrja á því að spyrja hann um fortíðina og æskuna. „Ég átti yndislega móður sem kenndi mér allt um ást og þakklæti ásamt fyrirlitningu og vanmætti. Mamma er minn meistari. Hún var heiðarleg og hjartahlý kona sem gaf mér allt sem hún átti og jafnvel meira. Hún kenndi mér ást í gegnum það hvernig hún elskaði og síðan fyr- irlitningu og vanmátt í gegnum það sem hún hafði ekki stjórn á.“ Móðir Guðna skildi við þessa jarðvist þegar hann var 20 ára að aldri í sjálfsköpuðu slysi þegar hún féll af svölum úr mikilli hæð. Það tók hann mörg ár að skilja að þessa móður hafði hann valið og allt sem hún gerði var reynsla sem hann þurfti að læra af. Enda trúir hann því að við veljum okkur foreldra til að öðlast þann þroska sem við höfum val- ið okkur að ná í þessari jarðavist. Guðni sjálfur var alinn upp við kristin gildi og heiðarleika. Hann segir að for- eldrar sínir hafi kennt honum fyrst og fremst að vera góð manneskja. Lærði að vera góðmenni Faðir hans kenndi honum einnig ýmislegt en notaðist mest við málshætti sem hann sáði í undirmeðvitund hans. Það var síðan í gegnum afa sinn, Guðna, sem hann lærði að vilja vera góðmenni. „Ég hef alltaf haft mikla stjórn í lífinu og haft aga. En þegar ég varð 40 ára að aldri stóð ég frammi fyrir því að velja hvað mig langaði að gera við restina af lífinu. Hvort ég vildi mig viljandi eða ekki og hver væri tilgangur minn í þessari jarðvist. Þá var ég búsettur í Los Angeles, sem ég flutti til 35 ára eftir að hafa nýverið skilið við fyrri eig- inkonu mína sem ég átti einn son með,“ segir hann og bæt- ir við: „Þegar við viljum okkur, þá fyrirgefum við okkur og af- neitum eineltinu á okkur sjálf. Við getum ekki fyrirgefið í fortíðinni heldur fyrirgefið í núinu, stigið inn í kærleikann og afsalað okkur vanmætti og ótta gagnvart lífinu. Að fyrirgefa er að sleppa, láta frá sér viðhorf eða sögu sem skilgreinir tilvist þína, yfirleitt á neikvæðan hátt. Það ert þú sem sleppur þegar þú sleppir og fyrirgefur; þú frelsast úr viðjum hryllingssögunnar sem þú samdir og viðhélst með því að endursegja aftur og aftur til að þjóna skortdýrinu. Fyrirgefningin er forsenda frelsis og rýmis og rýmið er áunnin heimild, traust og styrkur sem gerir þér kleift að láta frá þér skjöldinn og opna hjartað, vera einlægur og aðgengilegur orkunni og ljósinu – að vera full- valda valfær skapari.“ Ákvað að snara heiminn Guðni notaði umbreytingarsálfræði á þessum tímamót- um í lífinu. Hann sagði skilið við allt sem þjónaði ekki til- ganginum, m.a. lagði hann áfengi og önnur hugbreytandi efni á hilluna. Hann ákvað að snara heiminn með rope yoga og hélt stóra veislu til að halda upp á vegferðina. Hvernig var að skilja við áfengi? „Ég er feiminn að eðlisfari og hafði neytt áfengis til að tengjast öðrum og gera mig aðgengilegri fyrir fólkið í kringum mig. Ég var ekki í stjórnleysi en þetta þjónaði mér illa. Þegar ég lét af þessu fann ég hvernig ég varð meira til staðar í lífinu. Mér fannst hins vegar fólk verða meira upptekið af þessu en ég var, svo ég fann mér leið til að útskýra þetta með orðum. Ég sagði við fólk að ástæða þess að ég væri hættur að drekka væri út af hjartanu og lagði lófann á hjartað um leið og ég útskýrði þetta. Ég gaf síðan fólki frelsi til að túlka hvað ég væri að meina. Ég vildi hætta að drekka til að hlúa að hjartanu og opna hjarta- stöðina en fólk spurði mig vanalega ekki meira út í það.“ Seinna las Guðni áhugaverða setningu í bók sem lagði áherslu á að það væri ekki annarra að skemmta honum. ,,Það var þá sem ég ákvað að taka ábyrgð á eigin skemmt- un og minnka útsækni mína á þessu sviði.“ Það er áhugavert að ræða við Guðna um neyslu því hann segir að við séum neytendur. „Eðli málsins samkvæmt þýðir þetta að við séum að neyta og þar af leiðandi „í neyslu“. En það þýðir líka að við höfum val og vald til að neita því sem er verið að selja okkur á hverjum tíma, öllu dótinu og lausnunum sem er ýtt að okkur og við erum hvött til að kaupa í nafni skortins til að verða betri mann- eskjur. Sem neytendur höfum við alltaf neitunarvald. Neytandinn hefur öll völd. Um leið og við segjum nei stoppar vitleysan. Markaðskerfið er því ekki sökudólgur, ekki frekar en brennivín og skyndibiti. Þetta er ekki vin- sæl fullyrðing en ég stend við hana: Það er ekki til fitandi matur og fyllandi brennivín, aðeins fitandi fólk og fyllandi manneskjur. Ég þekki ekki marga einstaklinga sem kunna að drekka án þess að yfirgefa sig. Þeir búa flestir erlendis.“ Þegar við yfirgefum okkur sjálf Guðni segir efnin sem við getum notað til að yfirgefa okkur af alls konar tagi, þau eru meðal annars hvítur syk- ur, annað fólk og eiturlyf. ,,Andstæðan við neyslu er nær- Morgunblaðið/Arnþór Birkisson „Viltu þig jafnvel þegar þú vilt þig ekki?“ Guðni Gunnarsson er á því að ást sé eina tilfinningin og að allt annað sé blekking. Að við mannfólkið leitum ólíkra leiða til að hafna okkur sjálfum og afneita ljósinu. Hann segir að við getum valið að vera vínber eða uppþornaðar rúsínur. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.