Morgunblaðið - 23.08.2019, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
É
g ákvað að láta gamlan
draum verða að veruleika
og opna mína eigin heilsu-
rækt sem byggist á minni
eigin sýn á heilbrigði lík-
ama og sálar. Yama heilsurækt verð-
ur opnuð fljótlega og það hefur verið í
mörg horn að líta. Standsetning á
húsnæði og svo að taka við miklum
fjölda skráninga hefur tekið mestan
tíma. Ég raða fólki saman í litla hópa
til að tryggja árangur og ánægju.
Kerfið hefur verið í þróun í nokkurn
tíma og fjöldi fólks sem hefur náð ár-
angri nú þegar. Allir hlakka til að
mæta í næsta tíma. Á sama tíma er ég
að bæta við Hot&Strong-æfingakerf-
ið sem konur hafa aðgang að á mjög
sanngjörnu verði í fjarþjálfun.“
Hvað þýðir góð heilsa fyrir þig?
„Að vera við góða heilsu er mats-
atriði og að mínu mati er það auðvitað
góð heilsa að geta sofið vel, geta
hreyft sig og teygt í allar áttir, en góð
heilsa er líka andleg. Ef mér líður vel,
og finn að ég er tengd sjálfri mér og
streitan er í lágmarki, þá finnst mér
ég vera heilsuhraust. Það er samt
bara svo erfitt þegar streitan er mik-
il, en því miður eru langflestir að
glíma við það ástand og ég þar á með-
al. Það er ýmislegt sem ég kann til að
draga úr streitu, með jóga, æfingum,
göngutúrum og með því að tryggja
góðan svefn, sem tekst nú því miður
ekki alltaf.“
Hvernig mataræði ertu á sjálf?
„Ég er ekki á neinu sérstöku mat-
aræði og orðin leið á því að fylgja ein-
hverju sérstöku. Stundum tek ég
föstu og borða frá 12-19, þrjár mál-
tíðir, en í miklum vinnutörnum finnst
mér betra að borða oftar og minna í
einu. Ég finn mig alltaf best þegar ég
borða hreina fæðu sem ég útbý sjálf.
Góður chia-grautur er t.d. eitt það
besta sem ég fæ. Allir kúrar eru sölu-
vara sem með öflugri markaðs-
setningu eiga að skapa tekjur fyrir
fólk og fyrirtæki. Í öllum hraðanum
erum við ginnkeypt fyrir lausnum og
alltaf til í að prófa eitthvað nýtt. Á
meðan heldur þessi iðnaður áfram að
stækka og blómstra. Þótt þessir kúr-
ar hafi kennt mér margt gott og gefið
mér hugmyndir að nýjum uppskrift-
um hef ég líka staðfest að þeir virka
ekkert sérstaklega vel og eru alls
ekki fyrir alla.
Það er svo áhugavert hvernig við
hugsum. Núna eftir þetta frábæra
sumar þegar margir eru búnir að
borða og drekka meira en venjulega
er rokið á ketófæði til að græja hlut-
ina í stað þess bara að borða meira
hollt. Þetta er auðvitað galið. Ég er
ekki að segja að ketó virki ekki en
það er samt áhugavert hvað margir
beita sig hálfgerðu ofbeldi í mataræði
með því að vera á kúrum sem þeir
þurfa ekki að vera á.“
Af hverju byrjaðir þú að starfa við
heilsurækt í upphafi?
„Fyrsta stöðin sem ég æfði hjá var
Baðhúsið og þau auglýstu hóptíma-
kennaranámskeið sem ég skellti mér
á og ég var með í maganum yfir því
að þurfa að kenna sjálf á námskeiðinu
en eitt leiddi af öðru og Sævar bróðir
Lindu Pé gaf mér tækifæri og þannig
hófst þetta allt saman.“
Hefurðu alltaf verið í svona góðu
formi?
„Ég hef alltaf hreyft mig mikið og
hef þurft á því að halda en nei, ég hef
ekki alltaf verið í góðu formi. Eftir að
ég átti elsta strákinn minn fyrir 21 ári
var ég í mjög lélegu formi, alltof
þung, og þá fór ég af stað og hef ekki
stoppað síðan en ég hef ekki alltaf æft
eða kennt eins.“
Hvað gerir fólk almennt rangt þegar
heilsan er annars vegar?
„Grunnvandinn er streita, en léleg-
ur svefn, mikil drykkja, næringarlaus
matur og annað óhóf er afleiðing af
streitu. Það er kominn tími til að
skoða vandlega hvað þetta þýðir og
skilja rót vandans. Það eru til dæmis
fjölmargar konur sem þrá að losna
við aukakíló sem sitja sem fastast
vegna streitu en ekki endilega rangs
mataræðis. Streita hefur áhrif á mat-
aræði sem setur hormónakerfið úr
skorðum og þegar það gerist fer
mjög margt úrskeiðis, t.d. meltingin.
Það er samt ánægjulegt hversu
margir eru orðnir meðvitaðir um
mikilvægi þess að hreyfa sig, njóta
náttúrunnar og þeirra jákvæðu áhrifa
sem hreyfing hefur á andlega líðan.
En betur má ef duga skal. Ég skora á
fleiri vinnustaði til að hvetja starfs-
fólk sitt til dáða. Styðja fólk til að
stunda hreyfingu, hvort sem er á
morgnana, í hádeginu eða á kvöldin.
Betri líðan skilar sér í betri afköstum
og andinn verður léttari fyrir vikið.“
Aðeins á persónulegum nótum –
hvaða lífsreynsla hefur breytt
þér mest?
„Ég varð ólétt 17 ára og á sama
tíma var ég rekin úr FB fyrir mæt-
ingu, sem var ákveðinn skellur en
mjög fyndið eftir á. Sem betur fer tók
annar skóli við mér og ég hugsaði
þarna að ég yrði bara að nota hvern
dag og hvert ár af viti. Þannig að ég
ákvað að hætta að vera „tossi“ í fullu
starfi, tók mig á og byrjaði að læra af
fullri alvöru.“
Hvað þýðir andleg góð
heilsa fyrir þig?
„Fyrir mig persónulega hefur hún
jafn mikla þýðingu og líkamleg
heilsa. Við getum glímt við líkamleg
veikindi og andleg og það er enginn
munur þar á þótt við dæmum oftar
fólk sem á við andleg veikindi að
stríða. Mín heilsa er undir mér kom-
in. Auðvitað spyrja veikindin ekki um
stétt eða stöðu eða það sem á undan
er gengið. Því er ég óendanlega þakk-
lát fyrir mína líkamlegu og andlegu
heilsu. Sjálf hef ég náð miklum tökum
á líkamlegri heilsu og alltaf betur á
andlegu hliðinni þar sem ég nota
jóga, slökun, öndunaræfingar og önn-
ur tól sem hjálpa mér að rækta hug-
ann, ræð betur við tilfinningar og hef
þannig bætt andlega heilsu. Með öllu
því jóganámi sem ég hef bætt við mig
er ég vel í stakk búin til að huga að
eigin heilsu annarri en þeirri íkam-
legu og það sem meira er hjálpa öðr-
um með bæði líkamlega og andlega
líðan.“
Af hverju jóga og hugleiðsla?
„Í gegnum jógalífsspeki hef ég öðl-
ast betri skilning á lífið, mig sjálfa og
aðra sem ég finn ekki annars staðar.
Hugleiðsla eða öndunaræfingar
koma svo ró á öll kerfin okkar og ég
finn bara svo mikinn mun þegar þetta
tvennt er hluti af mínu lífi. Ekki mis-
skilja, ég er langt frá því að vera full-
komin og dett inn og út. Ég er núna í
800 klukkustunda jógaþerapíunámi
hjá Kristbjörgu Elí og það er eitt það
magnaðasta sem ég hef lært lengi en
ég á um 12 mánuði eftir í því námi.
Þetta er líklega öflugasta verkfæri
sem ég hef kynnst til að vinna með
líkama fólks sem t.d. er að kljást við
streitu.“
Er eitthvað sem þú ert að
vinna í persónulega núna?
„Stærsta verkefni mitt þessa
stundina er að hafa stjórn á eigin lífi
þannig að ég nái jafnvægi á milli
vinnu og einkalífs. Það verður víst
enginn hamingjusamur af því að bara
vinna!“
Hafa kennarar eitthvað að
gefa nema þeir hafi yfirunnið
sömu áskoranir sjálfir?
„Öll höfum við eitthvað að gefa þar
sem við höfum jú hvert um sig upp-
lifað hluti hver á sinn hátt. Að mínu
mati eiga þjálfarar og kennarar að
vera fyrirmynd þeirra sem þeir eru
„Allir
kúrar eru
söluvara“
Guðríður Erla Torfadóttir eigandi
Yama heilsuræktar er að láta
gamlan draum verða að veruleika;
að opna sína eigin heilsurækt.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Kramhúsið
ORKUSTÖÐ Í MIÐBÆNUM
SKRÁNING HAFIN Á NÝ NÁMSKEIÐ
Sími 551 5103 · kramhusid.is
Gengið inn frá Bergstaðastæti –
Litríkt port við hliðina á Rauða Kross búðinni.
Tryg gðu þér pláss!
Sérsniðnir einkatímar í hópefli og dansstuði
fyrir vina- og vinnuhópa, steggi og gæsir
– og allt þar á milli.
ORKA
Y Pilates Y Hatha YVinyasa Y Scaravelli
YHerra Yoga YHádegisleikfimi Y Zumba
Y Músíkleikfimi Y Freestyle fusion
DANS
YAfró Y Ballett Y Beyoncé Y Burlesque
Y Bollywood Y BalkanY Contemporary Y Flamenco
YMagadans YNostalgía Y Jallabína Y Tangó
BÖRN&UNGLINGAR
Y Breikdans Y Fortnite
Y Leikur og skapandi hreyfing
GLEÐI–GLEÐI–GLEÐI
K
V
IK
A