Morgunblaðið - 23.08.2019, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
H
örður hefur í rúm 15 ár
starfað á fyrirtækja-
sviði Brimborgar þar
sem han selur bíla til
fyrirtækja og iðnaðar-
manna.
Fyrir rúmu ári keypti hann hús í
Þingholtunum sem hann er að láta
rífa. Hann átti sér draum um að end-
urbyggja húsið með yngri syni sín-
um, sem var handlaginn og hafði
gaman af því að smíða.
Hörður átti tvo syni. Annar þeirra,
sá eldri, býr hjá móður sinni og er á
leiðinni í nám erlendis. Sá yngri lést
fyrir ári úr krabbameini. Hörður er
fyrirmynd margra í því að takast á
við sorgina.
Af Sjóminjasafninu í jóga
„Ég hef alltaf verið mikið fyrir
hreyfingu. Í tugi ára stundaði ég
hlaup. Síðan skildi ég fyrir sjö árum
og jók þá aðeins við hlaupin. Síðar
fékk ég álagsmeiðsl tengd hlaupun-
um og þurfti að hvíla samkvæmt
læknisráði. Ég man einn sunnudags-
morgun fyrir nokkrum árum, þar
sem ég sat heima og var að velta fyrir
mér á hvaða safn ég gæti farið til að
njóta morgunsins. Þá sá ég að eina
safnið sem var opið svona snemma
var Sjóminjasafnið í Reykjavík á
Grandagarði. Ég fór á safnið, sem er
einstaklega fallegt og langaði síðan í
kaffibolla eftir það. Það var ekkert
kaffihús opið nema Kaffivagninn úti á
Granda og ég var ekki í skapi fyrir
það. Ég keyrði um á þessu svæði og
sá þá húsnæði sem var fallega merkt
og fullt af fólki á leiðinni þangað inn.
Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að
vera kaffihús og var þá eins og
teymdur inn í Sólir jógastöð. Það er
upphafið að því að ég byrjaði að
stunda jóga. Frá þessum tíma hef ég
stundað jóga reglulega.“
Það var síðan fyrir ári í upphafi
september sem hann komst að því að
það væri skipulögð jógaferð áætluð
til Srí Lanka. „Þetta var stuttu eftir
að ég hafði misst son minn og ég var
algjörlega búinn á því á líkama og sál.
Ég upplifði alls konar tilfinningar,
meðal annars djúpt þunglyndi, og var
eins og eðlilegt er bugaður af sorg og
tilfinningum sem ég ekki skildi. Þar
sem ég hafði verið í jóga áður en
þetta gerðist ákvað ég að fara í gegn-
um sonarmissinn þannig að ég leyfði
öllu að koma til mín. Ég vildi ekki
loka á sorgina, eða flýja hana, heldur
leyfa henni að dvelja í mér. Ég vildi
ekki fara á flótta heldur ná tökum aft-
ur á lífinu.“
Hörður skráði sig í ferðina á þess-
um tíma sem var síðan farin í mars á
þessu ári.
,,Ég hef alltaf verið mjög náinn
börnunum mínum. Sá eldri bjó með
mér en sá yngri með móður sinni. Ég
Hörður Guðjónsson er hógvær maður
sem hefur tekist á við þá sorg að missa barn
á einstakan hátt. Hann notar jóga og hug-
leiðslu til að takast á við tilfinningarnar og
segir að ef maður flýr ekki aðstæður verði
sársaukinn til þess að gera mann sterkari.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson
Ljósmynd/Aðsend
„Ég hef
setið með
stingandi
sárar til-
finningar“
Hörður Guðjónsson
hefur gengið í gegn-
um mörg áföll í lífinu.
Hörður Guðjónsson
fljótandi á Sri Lanka
fyrr á þessu ári.