Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019 MORGUNBLAÐIÐ 23
Ertu tilbúin?
Við tökum vel á móti þér!
Haustnámskeið JSB eru að hefjast
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
TT-námskeiðin
Frá toppi til táar
Námskeiðin eru sniðin að þörfum kvenna sem vilja losna úr
vítahring óheppilegs lífsstíls og „fá sjálfar sig til baka“. Núna
geturðu reiknað með meiri árangri fyrir minna verð! Kynntu þér
nýja hvatningarkerfið okkar sem sló svo rækilega í gegn í fyrra.
Morguntímar: mán, mið, og fös kl. 6:15 - 7:20 - 10:30
Eftirmiðdagstímar: mán, mið og fim kl. 14:20 - 16:40 - 17:40
FIT Form 60+ og 70+
Námskeiðin byggjast á sérvaldri og fjölbreytilegri þjálfun
sem eflir styrk, þol, liðleika og jafnvægisskyn. Sækjum
fram á hvaða aldri sem er og njótum tímans sem fer í hönd.
Tímar: Fit Form 60 + mán, mið og fös kl. 9:30
og á þri og fim kl. 10:30. Fit Form 70+ þri og fim kl. 9:30
Mótun BM
Árangursríkir 40 mín tímar. Byggjast á sérhönnuðu, heildrænu
þjálfunarkerfi sem eflir styrk og liðleika á vaxtarmótandi hátt.
Tímar: mán og mið kl. 16:50
Nýtt!
Topp Form
Námskeiðin eru fyrir þær sem vilja krefjandi lokaða tíma með
skýrum þjálfunarmarkmiðum. Stuðla að þínum besta árangri
og eru alveg tilvalin eftir TT.
Tímar: þri og fim kl 6:15 og 16:30 og mán og mið kl. 18:40
Opnir tímar:
1-2-3 æfingakerfið
Lítill tími fyrir ræktina? Opnu tímarnir okkar eru sniðnir að
þörfum þeirra sem eru oft í tímaþröng og vilja fá markvissa,
öfluga þjálfun í styttri lotum. Bjóðum 30 mínútna tíma í
samfelldri röð sem hægt er að nýta sér að vild.
Tímar: mán til fös kl. 6:30, 7:oo, 7:30 og 8:00 – 11:30, 12:00,
12:30 – 16:30, 17:00, 17:30
Nýtt! Yoga
Tímar: 60 mín. opnir tímar á þri og fim kl. 17:00
hef elskað að vera pabbi og börnin
mín hafa verið það dýrmætasta sem
ég á í lífinu. Þegar kom að ferðinni
hafði ég ekki undirbúið mig neitt. Ég
vissi bara að ég vildi fara þessa ferð
en ég vildi ekki skoða staðinn sem ég
var að fara á eða vita neitt hvað
myndi gerast í ferðinni. Ég vildi ekki
vera með neinar væntingar heldur
meira dvelja í því sem myndi mæta
mér þarna úti.“
Hefur upplifað mörg áföll
Hann segir ferðina hafa umbylt lífi
sínu. Að í raun hafi hann komið nýr
maður heim aftur.
„Á jógasetrinu var farið í jóga bæði
kvölds og morgna. Við borðuðum
ayurveda-fæði, hugleiddum og unn-
um í okkur á þessum fallega stað.
Þarna úti urðu einhver umskipti í
mínu lífi, ég varð allt annar maður.
Tilfinning sem erfitt er að útskýra
með orðum.“
Hvernig hafði lífið verið fyrir veik-
indi sonar þíns?
„Ég á langa áfallasögu að baki.
Sonur minn greindist með krabba-
mein árið 2017. Ég missti móður
mína úr krabbameini þegar ég var 19
ára. Síðan hef ég misst systur mína,
einnig úr krabbameini. Hún greindist
22 ára að aldri en lést 46 ára. Bróðir
minn, sem er klínískur sálfræðingur
og hefur veitt mér stuðning í lífinu,
greindist einnig með krabbamein á
sínum tíma. Hann lifði af veikindin.
Eins hefur faðir minn greinst með
krabbamein líka.“
Æðruleysisbænin er fyrir alla
Í gegnum þessa sögu, er eitthvað
sem þú hefur komist að sem þig lang-
ar að deila með lesendum?
„Já, ég hef komist að því að það er
eitthvað þarna úti sem er mér æðra.
Æðri máttur eða jákvæð orka sem er
ótrúlega friðsælt að tengjast. Þegar
ég leyfi mér að hugsa jákvætt finn ég
hvernig þessi jákvæði kraftur kemur
inn í líf mitt. Síðan hef ég lært það að
stundum hefur maður ekkert annað
en æðruleysið að grípa í. Æðruleysis-
bænin er svo mögnuð og hún er fyrir
okkur öll. Það góða sigrar alltaf hið
illa. Kærleikurinn hjálpar okkur að
finna aftur kraftinn. Áföllin hafa líka
kennt mér að forgangsraða í lífinu.
Að lífið er ekki hlutirnir sem ég á
heldur stundirnar sem ég upplifi.
Maður verður auðmjúkur og fús til að
breytast þegar verkefni lífsins eru
þannig að maður ræður ekki við þau
einn.“
Hvernig ertu til staðar fyrir fjöl-
skylduna þína og barn þitt í dag?
,,Með því að lifa. Með því að vera
jákvæður og með því að vera til stað-
ar. Ég gef mér tíma til að setjast nið-
ur með eldri syni mínum og hlusta á
hann. Ég er ekki alltaf með svörin
sem hann er að leita eftir en ég er til
staðar fyrir hann og ég dæmi hann
ekki.
Ég hef þurft að finna milliveginn í
þessu. Í fyrstu var ég alltaf að bregð-
ast við börnunum mínum. Ef sem
dæmi eldri sonur minn var með próf-
kvíða, þá var ég alltaf að spyrja hann
hvernig gengi og finna lausnir með
honum í stað þess bara að hlusta á
hann. Ég hef komist að því að ég þarf
ekki alltaf að vera með lausnirnar og
alls ekki að gagnrýna. Það finnst mér
svo mikilvægt í öllum samskiptum
mínum við annað fólk.“
Hörður segir að vegurinn að and-
legum þroska sé langur og það sem
hann geri sé vanalega að vera opinn
með það sem hann er að ganga í
gegnum hverju sinni.
„Ég er líka vinur Búdda á Face-
book. Það eru til dásamlegar leiðir til
að koma kærleikanum inn í lífið. Ég
hef alltaf sótt mikið í þekkingu og
mannrækt og leitað leiða til að líða
betur. Sumar leiðir hafa virkað betur
en aðrar fyrir mig. Ég get verið
þakklátur fyrir að hafa prófað alls
konar hluti, því þannig fann ég mína
leið í þessu lífi.“
Þakklátur fyrir að vita af honum
á góðum stað
Hvað viltu segja við þá sem eru að
fást við það sama og þú; að læra að
lifa með því að hafa misst barn?
„Mig langar bara að hvetja alla til
að halda áfram. Að vera og leyfa öllu
að koma til sín. Ég gerði það gagn-
vart öðru fólki í mínu lífi. Var algjör-
lega brynjulaus og leyfði því sem kom
að koma til mín. Að tala við vin, vera
algjörlega berskjaldaður og leyfa sér
að finna allar tilfinningar held ég að
sé eina leiðin til að halda áfram með
lífið eftir svona áfall. Ég hef ekki ýtt
neinu frá mér heldur leyft öllu að
koma. Ég hef fengið stingandi sárar
tilfinningar sem ég hef farið niður
með. Ég hef lifað í tilfinningu sem ég
hélt að væri óbærilegt að sitja með.
Þannig hef ég orðið sterkari og sterk-
ari og sorgartilfinningin er að minnka
með tímanum. Ég held að foreldrar
sem missa börnin sín læknist aldrei
almennilega af því. En þau geta lært
að lifa með því og orðið sterk fyrir sig
og aðra. Ég fór í gegnum þetta með
aðstoð sálfræðings og jóga. Síðan eru
til samtök, Ný dögun, sem bjóða upp
á meðal annars stuðning við foreldra
með svona reynslu.“
Er þakklæti hluti af þínu lífi?
,,Já, ég er þakklátur fyrir lífið og
að fá að vera lifandi í þessu lífi, þrátt
fyrir reynslu mína. Ég er þakklátur
fyrir að vera til staðar fyrir eldri son
minn og síðan er ég þakklátur fyrir
húsið sem ég er að byggja þótt hug-
myndin að baki því að byggja húsið
hafi verið sú að mig langaði að byggja
það með syni mínum sem dó. Ég er
þakklátur fyrir að húsið mun svo rísa
í hans minningu. Síðan er ég þakk-
látur fyrir að vita af honum á góðum
stað.“
„Þetta var stuttu eftir að ég hafði misst son minn og ég var al-
gjörlega búinn á því á líkama og sál. Ég upplifði alls konar til-
finningar, meðal annars djúpt þunglyndi, og var eins og eðlilegt
er bugaður af sorg og tilfinningum sem ég ekki skildi. Þar sem
ég hafði verið í jóga áður en þetta gerðist ákvað ég að fara í
gegnum sonarmissinn þannig að ég leyfði öllu að koma til mín.