Morgunblaðið - 23.08.2019, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. ÁGÚST 2019
LEIKFIMISYSTUR
Leikfimi og félagsskapur
Íþróttasal Fossvogsskóla eða Melaskóla
eftir því hvað hentar þér best.
Æfingar á þriðjudögum og fimmtudögum
kl: 17:00 -18:00 – Vorönn 3. sept.-12. des.
Aðeins 23.000 kr. – Ókeypis prufutími
Nánari upplýsingar og skráning:
asdishall@gmail.com / s 777 2383
H
vað gerir þú til að huga að heilsunni?
„Ég hef alltaf verið mjög meðvituð um
heilbrigðan lífsstíl og hreyfingu, og hversu
miklu máli það skiptir fyrir mann til að
geta tekist á við daglegt líf. Ég er alls
enginn keppandi í járnkarlinum eða járnkonunni og
myndi líklegast ekki ná inn í þá keppni. En ég hreyfi
mig markvisst 4-5 sinnum í viku og hugsa um hvað ég
borða. Ég er alls ekki fanatísk með þetta samt sem áð-
ur en ég finn bara hvað það er allt meira fókuserað hjá
mér þegar ég byrja daginn á æfingum.“
Hvað þýðir góð heilsa fyrir þig?
„Góð heilsa fyrir mér er ekkert endilega að vera
með 14% fitu og „sixpack“, heldur er góð heilsa fyrir
mér andlega hliðin. Því ef andlega hliðin er í topp-
standi fylgir hitt yfirleitt með. Lífið verður líka bara
aðeins auðveldara og skemmtilegra ef jákvæðni og
gleði fá að ráða ríkjum.“
Hvað borðar þú daglega?
„Ég byrja morguninn yfirleitt á grænu bombunni
sem er alveg geggjuð, en ef ég er á fleygiferð sulla ég
ab-mjólk og múslí í skál og skófla í mig.
Hádegismaturinn er yfirleitt flatkökur með alls kon-
ar áleggi, skyr, hrökkkex, súrdeigsbrauð eða eitthvað
þess háttar. Seinnipartinn fæ ég mér yfirleitt einhvern
ávöxt eða „smoothie“, til að klára daginn. Ég er týpan
sem þarf að borða á þriggja tíma fresti, annars verður
fjandinn laus. Ég reyni því að finna mér gott millimál,
svo að enginn lendi illa í mér. Ég er eins og sólskins-
barn nema þegar ég finn til svengdar. Þá halda mér
engin bönd.
Kvöldmaturinn er svo yfirleitt fiskur, kjúklingur eða
í raun það sem mér dettur í hug hverju sinni. Ég er
nú enginn meistarakokkur en ég er nokkuð góð að
herma eftir uppskriftum og mér finnst virkilega gaman
að elda þó að maturinn heppnist kannski ekki alltaf
eins og ég hafði ímyndað mér.“
Hvernig æfir þú?
„Ég hef æft hjá honum Robba í Bootcamp í að verða
13 ár. Ég hef alltaf haldið aðeins aftur af mér hjá hon-
um, því ég hef viljað leyfa Katrínu Tönju að eiga við
hraustasta konan-titilinn. En Bootcamp hefur allt sem
ég þarf; félagsskapinn, æfingarnar, fjölbreytnina og
þjálfara sem reyna alltaf að ýta manni aðeins lengra
en maður heldur að maður komist.
Svo fer ég reglulega til hennar Yesmine Olsen, vin-
konu minnar, í einkaþjálfun, þar sem við, eða öllu held-
ur hún lætur mig gera eitthvað allt
annað en ég geri í Bootcamp.
Þessi samsetning er að gera mikið
fyrir mig.“
Hvernig hugsarðu?
„Mamma segir að ég hafi sofið
þangað til ég varð 6 ára, þannig að
ég hef vaknað við grunnskólaald-
urinn úthvíld, því ég er alltaf full
af orku. Ég reyni yfirleitt að fók-
usera á það sem gerir mig glaða
og jákvæða og hef náð að prenta
það mjög langt inn í minn karakt-
er. Ef ég ætti að lýsa hugsunum
mínum dagsdaglega í lit mundi ég
segja gulur. Það er yfirleitt bjart í
mínum huga. Nema þegar ég er
svöng.“
Hvað gerir þú til að verða besta útgáfan af
þér daglega?
„Ég er glöð og jákvæð að eðlisfari, og ef ég finn nei-
kvæðni læðast að mér þá er ég fljót að slá hana frá
mér. Svo valhoppa ég út í daginn og nýt hans í tætl-
ur.“
Hvað ætti fólk að vita um þig?
„Að ég er búin að vera gríðarlega dugleg að fara út
að hlaupa í sumar. Mér finnst mikilvægt að deila því
með lesendum, því hlaup eru ekki mín sterkasta grein.
Ég er samt hrikalega lélegur hlaupari og gæti mögu-
lega ekki bjargað lífi mínu með hlaupi, en það er eitt-
hvað sem ég hef lært að lifa með. Læt það samt ekki
stoppa mig. Ég verð orðin eins og antílópa ef ég held
þessu áfram.“
„Góð nema hún finni til svengdar“
Skemmtikrafturinn Eva Ruza
hefur alltaf verið mjög með-
vituð um heilbrigðan lífsstíl
og hreyfingu. Hún keppir ekki
í járnkarlinum ennþá, þó hún
æfi mörgum sinnum í viku.
Hún er að verða að antílópu,
að eigin sögn, vegna hlaupa
sem hún byrjaði að ástunda
í sumar.
Elínrós Líndal |elinros@mbl.is
Ljósmynd/Aðsend
Eva Ruza er
mikið fyrir
hreyfingu og
hefur verið
að hlaupa
mikið að
undanförnu.
Eva Ruza segist ekki vera á leiðinni í
Járnkarlinn á næstunni. En hver veit?
„Ég er glöð og jákvæð að eðlis-
fari, og ef ég finn neikvæðni
læðast að mér þá er ég fljót að
slá hana frá mér.“
Eva Ruza er skemmtileg kona sem
tekur lífinu ekki of alvarlega.