Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Side 2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ANDRI ÓLAFSSON SITUR FYRIR SVÖRUM
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar
hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!
Ég er gleyminn. Ég er ekki viss um að ég sé endilega gleymnari en aðriren ég er gleymnari en ég kæri mig um.Of oft hef ég uppgötvað, mér (og oft öðrum) til mikillar ergju, að
húslyklarnir mínir liggi enn á stofuborðinu þegar ég er þegar mættur í vinn-
una, eða að viðburðurinn sem ég hugðist mæta á kláraðist í raun fyrir þrem-
ur tímum.
Ég kem af langri línu viðutan einstaklinga. Hvort gleymska mín sé arf-
geng, lærð hegðun eða einfaldlega svæsinn persónulegur galli veit ég ekki,
en ég veit að það er nokkuð sem ég vil helst laga.
Til að vinna gegn þessari þrálátu
gleymsku ákvað ég að kaupa mér
dagbók. Bókin var svört og lítil og
innihélt dagsetningar ársins svo ég
gæti skrifað hjá mér viðburði vik-
unnar, fundi, viðtöl, verkefni og
fleira.
Það liðu ekki nema nokkrir dagar
þar til ég gleymdi dagbókinni í
strætó og sá hana aldrei aftur.
Það felst ákveðin mótsögn í því að
þurfa að muna eftir því sem á að
hjálpa þér að hætta að gleyma hlut-
um.
Eftir að dagbókin glataðist hélt
lífið áfram sinn vanagang. Ef ég þurfti nauðsynlega að muna eitthvað skrif-
aði ég það á framhandlegginn á mér, annars mundi ég sumt og gleymdi öðru.
Þangað til ég fékk snilldarhugmynd.
Ég keypti mér nýja dagbók sem var stærri en sú gamla, þó var hún nægi-
lega nett til að passa í jakkavasa, og hún var skærgul á litinn. Það er nær
ómögulegt að gleyma dagbók sem er svo öskrandi gul á litinn að það er
ómögulegt að taka ekki eftir henni. Og það hefur svínvirkað.
Dagbókin liggur á skrifborðinu mínu enn í dag. Ég hafði reyndar notað
hana í nokkrar vikur þegar ég áttaði mig á að hún var frá árinu 2018 og allar
dagsetningarnar vitlausar – sem útskýrði hvers vegna hún var á svona góðu
verði þegar ég keypti hana í febrúar árið 2019. En ég lét það ekki stoppa mig
heldur krassaði út allar vitlausu dagsetningarnar og skrifaði þær réttu við
hlið þeirra; alveg pottþétt.
Ég er ennþá gleyminn, en nú gleymi ég bara því sem er ekki nægilega
merkilegt til að skrifa í dagbókina.
Dagbók í
óskilum
Pistill
Pétur
Magnússon
petur@mbl.is
’Það felst ákveðin mót-sögn í því að þurfa aðmuna eftir því sem á aðhjálpa þér að hætta að
gleyma hlutum.
Ágúst Jónatansson
Ég ætla að vera heima um helgina, síð-
an ætla ég að ferðast um næstu helgi.
SPURNING
DAGSINS
Hvað ætlar
þú að gera
um versl-
unar-
manna-
helgina?
Elísa Sveinsdóttir
Ég ætla á Snæfellsnes í bústað með
kærastanum mínum og vinum.
Adam Bauer
Ég er að fara að gera upp íbúðina
sem ég var að kaupa mér.
Agnes Sandholt
Ég þarf að vinna um helgina, en ég
ætla samt í afmæli vinkonu minnar.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
RAX
Hljómsveitin Moses Hightower kemur fram á stofutónleikum Gljúfra-
steins sunnudaginn 4. ágúst. Tónleikarnir hefjast klukkan 16. Miðar eru
seldir samdægurs í safnbúð Gljúfrasteins.
Við hverju má búast á
tónleikunum á sunnudaginn?
Mjög notalegri stofutónleikastemningu, nánd og spilagleði.
Hvernig tónlist munið þið aðallega spila?
Við ætlum að reiða okkur alfarið á órafmögnuð hljóðfæri, og
flest laganna fá allt annað yfirbragð við það. Flygill skáldsins
verður tekinn til kostanna og kontrabassi og kassagítar
styðja við.
Við spilum lög af öllum plötunum okkar. Nokkur sem væri
með góðum vilja hægt að kalla smelli og önnur sem eru valin
af því að þau smellpassa við tilefnið. Svo verður einn lítill
ópus frumfluttur.
Hvert er síðan planið um
verslunarmannahelgina?
Við erum í mikilli lagasmíðatörn sem spyr ekki um
vikudag, en auk Gljúfrasteinstónleika bregðum við okkur líka
aðeins frá og spilum rafmagnaðan hávaða-Moses á Innipúkanum úti
á Granda. Svo spila meðlimir með öðru fólki, bæði popp í stúdíóupp-
tökum og djass á öldurhúsum. Náum vonandi að grilla okkur ögn til
matar, en það er ekkert frí fyrir okkur.
Hvernig hefur sumarið farið með ykkur?
Alltof heitt, en annars ágætlega.
Hvað er svo á döfinni í haust?
Viðhafnartónleikar í Háskólabíói hinn 11. október eru það sem ber
hæst, en svo styttist í að við gefum út splunkuný lög, og um svipað leyti
verður sýndur í sjónvarpi stuttur þáttur þar sem við og tónlistin verðum
í forgrunni.
Flygill skáldsins
tekinn til kostanna