Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 29
langt fer hann út fyrir svið sitt fram að þeim tíma. Platan var til- nefnd sem besta plata ársins á Grammy-verðlaunahátíðinni og lag- ið sem besta lag ársins á sömu há- tíð. Vinsælasta lag hans kom hins vegar út á síðasta ári. Lagið This is America, og myndbandið sem því fylgdi, olli miklum usla. Mynd- bandið er vægast sagt mikil ádeila á lífið í Bandaríkjunum og má finna í því vísanir í kynþáttamisrétti, skotárásir, samfélagsmiðla og of- beldi lögreglu svo eitthvað sé upp talið. Þegar þetta er skrifað hefur verið horft 575 milljón sinn- um á myndbandið á You- Tube. Óreyndir handritshöfundar Glover hefur ávallt farið sínar eigin leiðir í listsköpun. Tónlist hans er til að mynda á öndverð- um meiði við flesta aðra rapp- ara. Í stað þess að textasmíð hans snúist um að upphefja sjálfan sig vill Glover vera í góðum takti við eigin tilfinningar og endurspegla lögin það. Eftir að hafa gengið frá borði í þáttunum Comm- unity hefur Glover leikið ýmis auka- hlutverk í kvikmyndum og nefna má sem dæmi leik hans sem Lando Calrissian í myndinni Solo: A Star Wars Story, lítið hlutverk í stór- myndinni The Martian og áður- nefnt hlutverk hans sem Simbi í Konungi ljónanna. Árið 2016 hófu þættirnir Atlanta, sem gerast í samnefndri borg, göngu sína en Glover er höfundur þeirra, aðalleik- ari og leikstýrir einstaka þáttum. Þættirnir eru drama- og gaman- þættir og snerta á ýmsum sam- félags- og efnahagslegum vanda- málum eins og kynþætti, sambandsmálum, fátækt og for- eldrahlutverkinu. Atlanta er heimabær Glovers sem fór ótroðnar slóðir í undirbún- ingi þáttanna. Hann réð aðeins blökkumenn sem handritshöfunda sem margir hverjir höfðu aldrei skrifað fyrir sjónvarp áður. Það var því ekki einfalt mál að fá sjón- varpsstöð til að samþykkja slíkt reynsluleysi í gerð nýrra þátta. En það hafðist og þættirnir, og Glover sjálfur, hafa hlotið mikið lof. Ofan á allt saman gaf Glover út klukkutímalangan uppistandsþátt árið 2011 sem kom út á Comedy Central og má finna á Netflix. Líður eins og Jesú Árið 2017 var nafn Glovers á lista tímaritsins Time yfir 100 áhrifa- mestu einstaklinga í heimi. Hann virðist geta allt, í heimsklassa í öllu því sem hann tekur sér fyrir hend- ur. Í viðtali við New Yorker í fyrra var hann spurður hvort það væri eitthvað sem hann væri lélegur í. „Í sannleika sagt, nei,“ svaraði Glover en bætti við: „Líklega bara fólki. Því líkar ekki að vera skoðað eða aðrir hafi betur en það.“ Hann hélt áfram. „Mér finnst það allt í lagi. Mér líkar ekkert svo vel við annað fólk. Fólk sættir sig við mig núna því ég er frægur en það hugsar í rauninni: „Oh, hann heldur að hann sé svo sérstakur,““ sagði hann og hló. „En ég er það! Mér líður eins og Jesú. Mér líður eins og ég sé útvalinn. Mitt verkefni er að nýta mennsku mína til að búa til klassísk verk – en ég veit ekki hvort mennskan sé þess virði,“ sagði Glover, áhuga- verður einstakl- ingur svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Childish Gambino kemur iðulega fram ber að ofan og lifir sig mikið inn í tónlist sína. Donald Glover var vel til fara á frumsýningu nýrrar kvikmyndar um konung ljónanna. 4.8. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 KVIKMYNDIR Ný stikla fyrir kvikmynd Martins Scorseses, The Irishman, kom út á dögunum. Myndin er byggð á bók eftir Charl- es Brandt og fer yfir líf og feril leigumorð- ingjans Franks Sheerans sem Brandt segir hafa átt þátt í máli verkalýðsleiðtogans Jimm- ys Hoffa sem hvarf sporlaust árið 1975. Með aðalhlutverk í myndinni fara Al Pacino, Robert DeNiro og Joe Pesci en þetta er í fyrsta sinn sem þeir Pesci og DeNiro leika saman í Scorsese-mynd síðan þeir léku í Cas- ino sem kom út 1995. Myndin verður sýnd á New York-kvikmyndahátíðinni í haust og hægt verður að sjá hana á Netflix í nóvember. Scorsese snýr aftur í haust Scorsese veifar til almúgans. AFP BÓKSALA 24.-30. JÚLÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Svört perla Liza Marklund 2 Annabelle Lina Bengtsdotter 3 Independent People Halldór Laxness 4 Iceland – Visual Explorer Guide Chris McNab 5 Sumareldhús Flóru Jenny Colgan 6 Sagas of The Icelanders Ýmsir höfundar 7 Niceland Kristján Ingi Einarsson 8 Gagn og gaman, 2. hefti Helgi Elíasson/Ísak Jónsson 9 Iceland in a Bag Ýmsir höfundar 10 Gullbúrið Camilla Läckberg 1 Ljóð 2007-2018 Valdimar Tómasson 2 Vökukonan í Hólavallagarði Guðrún Rannveig Stefáns- dóttir/Sólveig Ólafsdóttir 3 Limrubókin Pétur Blöndal 4 Líkn Hildur Eir Bolladóttir 5 Gamanvísnabókin Ýmsir höfundar 6 Ljóð muna rödd Sigurður Pálsson 7 Þröskuldur hússins er þjöl Arnfríður Jónatansdóttir 8 Vammfirring Þórarinn Eldjárn 9 Vellankatla Þórður Sævar Jónsson 10 Íslensk úrvalsljóð Guðmundur Andri Thorsson valdi Allar bækur Ljóðabækur Bók sem ég hef lesið: Nýlega las ég bókina Allt sundrast eftir Chinua Achebe, sem er ein þekktasta skáldsaga Afríku. Hún gerist í Nígeríu og fjallar um ævi óttalausa stríðs- mannsins Okonwo í upphafi nýlendutím- ans. Hann varð fræg- ur í þorpi sínu og víð- ar fyrir að fella Köttinn Amalinze sem var ósigrandi glímukappi. Sag- an markar upphafið að því að rit- höfundar Afríkulanda fara að segja sögu sína sjálfir og gefur áhuga- verða innsýn í líf og gildi ættbálka á þessum tíma. Bók sem ég er að lesa: Skömmin eft- ir Guðbrand Árna Ísberg sálfræðing. Áhugaverð bók um margslungið fyr- irbæri sem á sér ótal birtingar- myndir og getur haft alvarlegar afleiðingar. Meðal annars þykir mér áhugaverð skipt- ingin í rauða og hvíta skömm en sú hvíta, þar sem við stirðnum upp og finnum fyrir niðurlægingu, er sögð alvarlegri en sú rauða. Bókin vekur athygli á því að skömm geti legið að baki mörgu því sem fólk gerir, með- al annars kappsemi og ofbeldi. Bók sem mig langar til að lesa: Cancer ward eftir Alexandr Solzhenit- syn. Þetta er tæp- lega 800 blaðsíðna rússnesskur klassíker um daglegt líf mismun- andi fólks sem dvelur á sjúkrahúsi í Úsbekistan árið 1955. Áleitnar spurninga vakna um líf og dauða, tilgang lífsins og stalínismann. SÓLEY DRÖFN ER AÐ LESA Skömmin liggur að baki mörgu Sóley Dröfn Davíðsdóttir er forstöðusál- fræðingur við Kvíðameðferð- arstöðina. Bókin The Coddling of the American Mind kemur út á kilju þann 20. ágúst næstkomandi. Bókin var á metsölulista New York Times í fyrra og hafa höfund- arnir, Greg Lukianoff og Jonathan Haidt, hlotið mik- ið lof gagnrýnenda. Í bókinni reyna höfundarnir að komast að því hvað er að baki þeirri þróun sem hefur átt sér stað í há- skólum í Bandaríkjunum síðustu árin. Fyrirlesarar eru kallaðir niður og prófessorar eru hræddir við að segja skoðun sína. Á sama tíma eykst þunglyndi og kvíði í sífellu. Höfundarnir segja um að kenna því að foreldrar verndi börnin sín of mikið, sam- félagsmiðlum sem taki yfir líf ungmenna og aukinni skiptingu fólks í fylkingar þegar litið er til stjórnmálaskoðana. Þrjá þætti segja höf- undar ná of miklu flugi í samfélaginu og brjóta í bága við grundvall- arreglur sálfræðinnar. Það sem drepi þig ekki geri þig veikari; þú eigir alltaf að treysta tilfinningum þínum; lífið sé barátta góðs fólks og ills fólks. Penguin gefur út. ÁHUGAVERÐAR BÆKUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.