Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/RAX Á Trékyllisheiði er þetta dularfulla græna vatn, sem líkara er skýringarmynd úr handbók um örverufræði en heiðarvatni. VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Skinnhúfa kr. 19.800 Vargur kr. 37.000 Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Hálsmen kr. 13.900 Rými fyrir ráðstefnur í Hörpu Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur Nánar á harpa.is/radstefnur Eðlilega hafa þeir sem fjárfesthafa í ferðamennsku, stofnaðþjónustufyrirtæki, reist hót- el, opnað veitingastaði eða gefið út upplýsingarit áhyggjur af því hvað ætla megi að framtíðin beri í skauti sér. Mikið er í húfi. Mín ágiskun er sú að straumur ferðamanna til Íslands muni ekki réna heldur aukast þegar til lengri tíma er litið. Hví ræð ég að svo verði? Í fyrsta lagi á drjúgur hluti mannkyns eftir að verða á faralds- fæti, sennilega í vaxandi mæli, þrátt fyrir að umhverfiskröfur kunni – einnig í vaxandi mæli – að verka gegn eldsneytisfreku flugi, akstri og siglingum. Í öðru lagi verður Ísland, um ókomna framtíð sem til þessa, seg- ull á ferðamenn með sinni óviðjafnanlegu náttúrufegurð. Í þriðja lagi munu innviðir ferða- þjónustunnar halda áfram að styrkjast, aðkomufólk því leitt inn í sífellt fjölbreyttari og eftirsókn- arverðari afþreyingu, og það sem mest er um vert; lögð verður meiri rækt við það sem sérstakt er fyrir Ísland. Við þekkjum það af eigin reynslu þegar við ferðumst til annarra landa, að við viljum sjá það sem hér- uð, borgir og bæir státa helst af, það sem er einkennandi, sérstakt, og helst betra en gerist annars staðar. En það er í þessu eins og öðru að annaðhvort vill verða of eða van. Hingað er fólki boðið til að kynnast víðernum og kyrrð. Og svo þegar þetta tekst og ferðamennirnir streyma inn í hin rómuðu víðerni þá er kyrrðin þar að sjálfsögðu úti. Öllu eru takmörk sett. Þannig er því einnig varið með eðalhráefnin matarkyns, villilaxinn, vatnasilunginn og íslenska lambið. Það hefur sýnt sig að þennan mat kunna aðkomumenn vel að meta ekki síður en við sjálf. Þeir kunna að meta skyr í eftirrétt í Lónkoti með bragði úr bláberjum úr Sléttu- hlíð, silung úr Mývatni, nýdreginn þorsk úr sjó og hrygg af lambi sem líkt hefur verið við villibráð eftir að féð hefur hlaupið sumarlangt um brekkur og grundir. Þetta þykir sérstakt fyrir Ísland. Fólk sem að jafnaði borðar ekki lambakjöt heima fyrir pantar það á diskinn á veitingastaðnum á Íslandi. Ef innfluttir lambahryggir, sem for- svarsmenn innflutningsverslunar- innar vilja nú ólmir fá að flytja inn, rata á matarborðið á Holti, þá vona ég að það verði látið fylgja sögunni að hér sé ekki verið að bjóða upp á íslenskt villilamb heldur eitthvað allt annað. Annað væru vörusvik. Og það eru vörusvikin sem gætu grafið undan ferðaþjónustunni; þau eru nefnilega varasöm, ekki sér- staðan, hún er styrkurinn. „En hvað á ég þá að segja við Bretann sem vill beikon með egginu í morgunmat,“ spurði hótelhaldari mig þegar við ræddum innflutning á kjöti en hann vildi fá að flytja inn sitt beikon þegar innlend fram- leiðsla annaði ekki eftirspurn, og lambakjötið líka. Ég var ekki reiðubúinn að svara honum eins og hann helst vildi svo mér datt ekki í hug annað en að stinga upp á því að hann spyrði hvort ekki mætti bjóða upp á egg og síld eða þá skyr. Þetta þótti forpokað svar. En er það svo? Ekki held ég að Englendingnum, sem hingað var kominn í leit að sér- stöðu Íslands, hefði þótt tilboðið slæmt og þaðan af síður hinni ungu sænsku baráttukonu, Gretu Thun- berg, sem nú fer fyrir ungmenna- fjöld á heimsvísu og berst fyrir að- gerðum til verndar umhverfinu. Ég gef mér að hún, og þau sem eru sama sinnis, vilji gera nær- umhverfið sem sjálfbærast í mat- vælaframleiðslu sem þá væntanlega þýðir að við hættum að flytja naut, svín og kindur flugleiðis og sjóleiðis svo færa megi upp á matborð í fjar- lægum heimshornum. Áhugamönnum um innflutning á kjöti gæti verið að tæmast tímaglas- ið. Má bjóða þér upp á skyr Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Og það eru vörusvik-in sem gætu grafiðundan ferðaþjónustunni;þau eru nefnilega vara- söm, ekki sérstaðan, hún er styrkurinn. Fasteignir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.