Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Síða 8
Morgunblaðið/RAX
Á Trékyllisheiði er þetta dularfulla
græna vatn, sem líkara er
skýringarmynd úr handbók um
örverufræði en heiðarvatni.
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Skinnhúfa kr. 19.800
Vargur kr. 37.000
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Hálsmen kr. 13.900
Rými fyrir
ráðstefnur
í Hörpu
Taktu næstu stóru ákvörðun hjá okkur
Nánar á harpa.is/radstefnur
Eðlilega hafa þeir sem fjárfesthafa í ferðamennsku, stofnaðþjónustufyrirtæki, reist hót-
el, opnað veitingastaði eða gefið út
upplýsingarit áhyggjur af því hvað
ætla megi að framtíðin beri í skauti
sér. Mikið er í húfi.
Mín ágiskun er sú að straumur
ferðamanna til Íslands muni ekki
réna heldur aukast þegar til lengri
tíma er litið.
Hví ræð ég að svo verði?
Í fyrsta lagi á drjúgur hluti
mannkyns eftir að verða á faralds-
fæti, sennilega í vaxandi mæli, þrátt
fyrir að umhverfiskröfur kunni –
einnig í vaxandi mæli – að verka
gegn eldsneytisfreku flugi, akstri og
siglingum.
Í öðru lagi verður Ísland, um
ókomna framtíð sem til þessa, seg-
ull á ferðamenn með sinni
óviðjafnanlegu náttúrufegurð.
Í þriðja lagi munu innviðir ferða-
þjónustunnar halda áfram að
styrkjast, aðkomufólk því leitt inn í
sífellt fjölbreyttari og eftirsókn-
arverðari afþreyingu, og það sem
mest er um vert; lögð verður meiri
rækt við það sem sérstakt er fyrir
Ísland.
Við þekkjum það af eigin reynslu
þegar við ferðumst til annarra
landa, að við viljum sjá það sem hér-
uð, borgir og bæir státa helst af, það
sem er einkennandi, sérstakt, og
helst betra en gerist annars staðar.
En það er í þessu eins og öðru að
annaðhvort vill verða of eða van.
Hingað er fólki boðið til að kynnast
víðernum og kyrrð. Og svo þegar
þetta tekst og ferðamennirnir
streyma inn í hin rómuðu víðerni þá
er kyrrðin þar að sjálfsögðu úti.
Öllu eru takmörk sett.
Þannig er því einnig varið með
eðalhráefnin matarkyns, villilaxinn,
vatnasilunginn og íslenska lambið.
Það hefur sýnt sig að þennan mat
kunna aðkomumenn vel að meta
ekki síður en við sjálf. Þeir kunna
að meta skyr í eftirrétt í Lónkoti
með bragði úr bláberjum úr Sléttu-
hlíð, silung úr Mývatni, nýdreginn
þorsk úr sjó og hrygg af lambi sem
líkt hefur verið við villibráð eftir að
féð hefur hlaupið sumarlangt um
brekkur og grundir. Þetta þykir
sérstakt fyrir Ísland.
Fólk sem að jafnaði borðar ekki
lambakjöt heima fyrir pantar það á
diskinn á veitingastaðnum á Íslandi.
Ef innfluttir lambahryggir, sem for-
svarsmenn innflutningsverslunar-
innar vilja nú ólmir fá að flytja inn,
rata á matarborðið á Holti, þá vona
ég að það verði látið fylgja sögunni
að hér sé ekki verið að bjóða upp á
íslenskt villilamb heldur eitthvað
allt annað. Annað væru vörusvik.
Og það eru vörusvikin sem gætu
grafið undan ferðaþjónustunni; þau
eru nefnilega varasöm, ekki sér-
staðan, hún er styrkurinn.
„En hvað á ég þá að segja við
Bretann sem vill beikon með egginu
í morgunmat,“ spurði hótelhaldari
mig þegar við ræddum innflutning á
kjöti en hann vildi fá að flytja inn
sitt beikon þegar innlend fram-
leiðsla annaði ekki eftirspurn, og
lambakjötið líka.
Ég var ekki reiðubúinn að svara
honum eins og hann helst vildi svo
mér datt ekki í hug annað en að
stinga upp á því að hann spyrði
hvort ekki mætti bjóða upp á egg og
síld eða þá skyr.
Þetta þótti forpokað svar.
En er það svo?
Ekki held ég að Englendingnum,
sem hingað var kominn í leit að sér-
stöðu Íslands, hefði þótt tilboðið
slæmt og þaðan af síður hinni ungu
sænsku baráttukonu, Gretu Thun-
berg, sem nú fer fyrir ungmenna-
fjöld á heimsvísu og berst fyrir að-
gerðum til verndar umhverfinu. Ég
gef mér að hún, og þau sem eru
sama sinnis, vilji gera nær-
umhverfið sem sjálfbærast í mat-
vælaframleiðslu sem þá væntanlega
þýðir að við hættum að flytja naut,
svín og kindur flugleiðis og sjóleiðis
svo færa megi upp á matborð í fjar-
lægum heimshornum.
Áhugamönnum um innflutning á
kjöti gæti verið að tæmast tímaglas-
ið.
Má bjóða þér upp á skyr
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’Og það eru vörusvik-in sem gætu grafiðundan ferðaþjónustunni;þau eru nefnilega vara-
söm, ekki sérstaðan, hún
er styrkurinn.
Fasteignir