Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 14
ÍÞRÓTTIR 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019 S tórkostlegt getur verið að fylgjast með íþróttamönnum sem endur- skilgreina íþrótt sína, þeim sem breyta leiknum. Sumir búa yfir svo miklum hæfileikum að forsvars- menn íþróttarinnar neyðast til að breyta regl- unum. Aðrir setja markið fyrir þá sem á eftir koma með ótrúlegu afreki. Enn aðrir finna betri leið til að spila leikinn sem aðrir taka svo upp. Svo eru þeir sem heyja baráttu sína utan íþróttarinnar sjálfrar en hafa þó meiri áhrif en nokkurn hefði órað fyrir. Oftast eru þetta íþróttamenn sem fært hafa ótal fórnir til að komast á topp sinnar greinar og við getum lítið annað gert en hallað okkur aftur og notið þess að fylgjast með. Handóðir áhangendur Körfuknattleiksíþróttin hefur tekið miklum breytingum frá því íþróttakennarinn James Naismith fann upp leikinn 1891. Í fyrstu var ekkert spjald fyrir aftan körfuna líkt og er staðalbúnaður í dag. Í þá daga voru áhorfendur oft aftan við körfunar og urðu upp- vísir að því að slá boltann í burtu er leikmenn reyndu að hitta í körfuna. Árið 1893 var brugð- ið á það ráð að setja spjald úr hænsnavír fyrir aftan körfuna. Æstir áhorfendur héldu áfram að reyna að slá boltann og meiddu margir sig á vírnum. Því var skipt yfir í tréspjald og síðar glerspjald sem hægt var að horfa í gegnum. Engin fráköst voru leyfð áður en spjaldið var sett upp og því hægt að spyrja hvort þróun íþróttarinnar hefði orðið allt önnur hefðu áhangendur setið annars staðar. Nú, eða haft einhvern vott af sjálfstjórn. Tröll á meðal manna George Mikan, sem lék sem atvinnumaður í Bandaríkjunum á fimmta og sjötta áratugnum, lengst af með Minneapolis Lakers, var mikill brautryðjandi á sviði körfuboltans. Mikan, sem var 208 sentimetrar á hæð, endurskilgreindi íþróttina sem leik stóra mannsins. Hann gat tekið fráköst, varið skot og skotið yfir varnar- menn mun betur en aðrir. Að auki var hann jafnvígur á báðar hendur þegar hann skaut yfir mótherja sína og lagði grunninn að krók- skotinu (e. hook shot) sem Kareem Abdul- Jabbar gerði ódauðlegt síðar. Mikan var svo ólíkur öllum öðrum leik- mönnum sem komið höfðu fram áður en hann hóf að hrella varnarmenn að breyta þurfti reglum leiksins. Þegar menn skutu að körfunni stóð Mikan undir henni, hoppaði upp og sló boltann einfaldlega í burtu. Menn voru sam- mála um þetta væri nú heldur ósanngjarnt svo sett var á ný regla þar sem bannað var að snerta bolta á leið að körfunni ef hann væri á niðurleið (e. goaltending). Einnig þurfti að stækka teiginn við körfuna, svæði þar sem sóknarmenn mega aðeins dvelja í þrjár sekúndur í senn. Fyrir breytinguna gat Mikan fengið boltann rétt við körfuna og skor- að auðveldlega svo teigurinn var tvöfaldaður að breidd. Svo mikla yfirburði hafði Mikan á sínum tíma að setja þurfti á skotklukku því lið voru farin að tefja leikinn til að halda boltanum frá okkar manni. Eftir tap Lakers gegn Ft. Wayne Pistons árið 1950 sögðu menn hingað og ekki lengra. Leikurinn fór 19-18, vandræða- lega fá stig. Mikan skoraði 15 af 18 stig- um Lakers. Mikan var gríðarlega vinsæll á þessum tíma; var andlit alls kyns auglýsingaherferða og prýddi forsíður allra vinsæl- ustu blaða Bandaríkjanna. „Í gamla daga mætti ég oft einum eða tveimur dögum fyrr í leiki til að vekja athygli á þeim,“ sagði Mikan í viðtalið árið 1997. „Ég var settur á hótel og fór í viðtal eftir viðtal til að fá fólk á völlinn.“ Mikan bar sig þó ekki aumlega yfir þessu heldur var ánægður með að hafa sett mark sitt á leikinn. Aðrir sem ruddu leiðina fyrir stóra leik- menn voru til að mynda Kareem Abdul- Jabbar og Wilt Chamberlain. Reglum var einnig breytt vegna hæfileika þeirra. Árið 1967 þegar Abdul-Jabbar, sem þá gekk undir nafninu Lew Alcindor, átti of auðvelt með að troða í körfuna með háskólaliði sínu var ákveðið að banna troðslur í háskólabolt- anum. Reglunni var ekki breytt fyrr en níu árum síðar. Þegar Chamberlain tók víti skaut hann ekki að körfunni eins og aðrir heldur kastaði boltanum að körfunni, tók tvö skref áfram, stökk upp, greip boltann og tróð. Þetta gekk að sjálfsögðu ekki svo sett var regla sem bannaði leikmönnum að stíga yfir vítalínuna áður en boltinn snerti körfuna. Ef þessir þrír sem nefndir hafa verið hér á undan gerðu körfuboltann að leik stóra manns- ins eru þær breytingar að ganga til baka um þessar mundir. Hagkvæmnivæðing körfuboltans Árið 2004 var gerð reglubreyting í NBA- deildinni sem gerði það að verkum að varn- armenn gátu minna notað hendurnar þegar varist var utan teigs en áður. Leikmenn áttu því mun auðveldara með að skjóta að körfunni án þess að andstæðingurinn kæmi vörnum við. Þremur árum seinna réð Houston Rockets tölvunarfræðinginn Daryl Morey sem fram- kvæmdastjóra. Morey hafði starfað áður með NBA-liðum en aldrei hafði lið ráðið mann með engan bakgrunn í körfubolta í stöðu fram- kvæmdastjóra. Markmið Moreys var að nota tölfræðigreiningu til að vinna körfu- boltaleiki. Ein niðurstaðan var að taka fleiri þriggja stiga skot, sem nú var ein- mitt auðveldara vegna reglubreyt- ingarinnar frá 2004. Tvö stig fást vanalega fyrir hverja körfu í körfubolta en árið 1979 tók NBA-deildin þriggja stiga línuna í gildi og því hægt að fá þrjú stig fyrir heppnað skot fyrir aftan hana. Mo- rey komst að því að mjög óhagkvæmt væri að taka skot rétt innan þriggja stiga línunnar, svokallað miðskot (e. middle range jumper). Mun hagkvæmara væri að skjóta oftar utan þriggja stiga línunnar, því þar fengjust fleiri stig fyrir hverja körfu, og taka fleiri skot rétt við körfuna, þar sem miklar lík- ur væru á að boltinn færi ofan í. Lágmarka ætti fjölda skota sem féllu ekki í þessa tvo flokka. Þótt Houston Rockets hafi náð feikigóðum árangri síðustu árin undir handleiðslu Moreys hefur annað lið tileinkað sér þriggja stiga skot- ið með enn betri árangri. Golden State Warri- ors hefur komist fimm ár í röð lokaúrslit NBA- deildarinnar og unnið þrjá titla á þeim tíma. Á síðustu árum hafa Klay Thompson og Stephen Curry skipað hjarta liðsins. Curry og Thomp- son hafa tekið ástfóstri við þriggja stiga skotið og endurskilgreint leik bakvarða í deildinni. Curry hefur á 10 ára ferli sínum skorað fleiri þriggja stiga körfur en allir nema tveir leik- menn í sögu deilarinnar, Ray Allen og Reggie Miller, sem léku báðir í 18 ár í deildinni. Curry mun bæta metið innan tveggja ára, svo lengi sem hann meiðist ekki. Thompson er 16. á lista yfir flestar þriggja stiga körfur eftir aðeins átta ár í deildinni, þrátt fyrir að hafa ver- ið um tíma aðeins þriðji mikilvægasti leikmaður liðsins. Sömu sögu má segja um James Harden, leikmann Rockets, sem er áttundi á listanum og hefur leik- ið í 10 ár í deildinni. Warriors hafa ráðið lögum og lofum í NBA-deildinni síðustu árin og til að veita þeim keppni hafa önnur lið þurft að einbeita sér enn frekar að þriggja stiga skotum. Á síðustu níu árum hefur fjöldi þriggja stiga skota sem hlut- fall heildarskota allra liða aukist ár hvert, farið úr 22,2% í 35,9%. Breytingin hefur verið hvað mest áberandi hjá Rockets sem hefur farið að ráðum Moreys og síðustu tvö ár tekið meirihluta skota sinna fyrir aftan þriggja stiga línuna. Liðið er það fyrsta í sög- unni sem gerir slíkt. Þessi breyting á leiknum hefur orðið til þess að hlutverk stóra leikmannsins, sem George Mikan gerði að veruleika og aðrir sem á eftir komu gerðu ódauðlegt, hefur sífellt minna vægi. Unga iðkendur dreymir ekki lengur um að troða boltanum ofan í körfuna heldur hitta ofan í hana langt fyrir aftan þriggja stiga lín- una. Latasti ólympíumeistari heims Að hoppa klofvega yfir rána var lengi vel talið besta aðferðin í hástökki. Hinn ungi Dick Fos- bury átti hins vegar erfitt með að tileinka sér tæknina og byrjaði því að prófa sig áfram við ýmsar aðferðir. Hástökksgreinin varð aldrei söm. Í menntaskóla hóf Fosbury að hoppa afturá- bak yfir rána, með hausinn á undan og sveigja svo líkamanum yfir hana. Þetta gerði honum kleift að halda þyngdarpunkti líkamans undir ránni á meðan hann fór yfir hana. Aðferðin krafðist þess að hann lenti á bakinu og því var lán að um sama leyti var byrjað að notast við mjúkt lendingarefni fyrir keppendur. Fosbury meiddist þó eitt sinn í baki við lendingu því ekki höfðu allir menntaskólar efni á efninu mjúka. Til að byrja með hoppuðu þó ekki allir af kæti yfir nýju aðferðinni. Eitt dagblað birti texta við mynd af Fosbury er sagði: „Latasti hástökkvari heims.“ Þegar komið var í háskóla árið 1965 var Fos- bury bannað að notast við tæknina nýju af þjálfara sínum sem þó leyfði honum að notast við aðferðina, sem kölluð var „Fosbury flop“, á mótum fyrir fyrsta árs nema. Eftir að Fosbury fór yfir 208 sentrimetra á fyrsta móti ársins dró þjálfarinn þó bannið til baka. Á háskólaárunum gerði Fosbury breytingar Tröll, letingjar og launadeilur Stundum koma fram íþróttamenn sem eru svo áhrifamiklir að þeir breyta því hvernig leikurinn er spilaður. Þegar þeir hverfa íþróttaunnendum sjónum er íþróttin óþekkjanleg frá því sem áður var. Sunnudagsblaðið fjallar um nokkra sem falla í þennan hóp. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is AFP Lawrence Taylor lætur hér einn leikstjórnandann hafa það óþvegið. Eliud Kipchoge ætlar undir tvo tíma í maraþoni. Roger Bannister ruddi leiðina í einnar mílu hlaupi. George Mikan gnæfði yfir aðra leik- menn.Stephen Curry hatar ekki að taka þriggja stiga skot.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.