Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019
LÍFSSTÍLL
GÓÐIR
FUNDIR
OGENNBETRI
FUNDARHLÉ
Upplýsingar og pantanir í síma 483 4700 | booking@hotelork.is | www.hotelork.is
Á Hótel Örk er allt sem þarf fyrir vel heppnaða fundi, sýningar,
námskeið og minni ráðstefnur. Hótelið býr yfir fundarsölum af
mörgum stærðum búnum nýjustu tækni, fyrsta flokks veitingastað
og fjölbreyttri afþreyingu fyrir skemmtilegri fundarhlé.
Superior herbergi
157
HERBERGI
7
FUNDARSALIR
VEITINGASTAÐUR
SUNDLAUGOG
HEITIR POTTAR
ágætis tími til að setja niður trjá-
plöntur.
Ungt fólk sækir í
inniplöntur
Þorvaldur segir inniplöntur hafa
aukist að vinsældum síðustu ár,
sérstaklega hjá ungu fólki.
„Við tökum eftir því að ungt fólk
er í auknum mæli farið að sækjast
eftir inniplöntum, enda gerir það
heimili manns huggulegri og
hreinsar loftið að vera með plöntur
inni hjá sér,“ segir Þorvaldur.
Ekki nóg með að starfsfólk Flóru
sé byrjað að undirbúa haustið,
heldur er jólaundirbúningur hafinn
í Hveragerði.
„Við erum byrjuð að rækta jóla-
stjörnurnar,“ segir Linda, „það er
nýbúið að toppa hana og við mun-
um halda áfram að rækta hana í
svolítinn tíma.“
Þorvaldur segir ræktunina vera
mjög árstíðaskipta, en við því megi
svo sem búast á Íslandi. „Á veturna
erum við líka með laukblóm eins og
túlípana svo og pottablóm,“ segir
Þorvaldur. „Við flytjum inn skraut-
runna og ávaxtatré frá Danmörku
og Hollandi sem þrífast hér á landi.
Þar sem við erum með heimasölu
er freistandi að vera með mikið úr-
val af tegundum, en við reynum
mest að rækta frá fræi eða græðl-
ingum.“
Garðyrkja í fjóra áratugi
Garðyrkjustöðin Flóra hét áður
fyrr Garðyrkjustöð Ingibjargar, og
var í eigu hjónanna Ingibjargar
Sigmundsdóttur og Hreins Kristó-
ferssonar.
„Þau voru hér í tæp fjörutíu ár
með rekstur þangað til við tókum
við fyrir þremur árum,“ segir Þor-
valdur. Við höfum reynt að halda
þessu svipuðu, með smávægilegum
breytingum á hverju ári.“
Þorvaldur telur áhuga á garð-
yrkju á Íslandi vera að aukast og
fólk sé meðvitaðra um kosti þess.
„Garðyrkja er góð fyrir sálina,“
segir hann að lokum, „það leikur
enginn vafi á því.“
Þau fáu sumarblóm sem eftir sitja eru á góðum prís.
Ljósmynd/Pétur Magnússon
Blómasalar segja að tíma sumarblóma sé að ljúka, sem verður að
teljast harkaleg áminning um að veturinn sé handan við hornið.
Ræktun á jólastjörnum er hafin í gróðurhúsum Flóru.