Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.08.2019, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.8. 2019
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.35 Mæja býfluga
07.45 Víkingurinn Viggó
07.55 Blíða og Blær
08.20 Dagur Diðrik
08.45 Skoppa og Skrítla á
póstkorti um Ísland
09.05 Latibær
09.25 Lukku láki
09.50 Ævintýri Tinna
10.10 Ninja-skjaldbökurnar
10.35 Friends
10.55 Friends
11.20 Ellen
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Strictly Come Dancing
15.10 Strictly Come Dancing
15.55 I Feel Bad
16.20 Masterchef USA
17.05 Sporðaköst
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.05 Bangsi og þjófaborgin
20.10 The Curious Case of
Benjamin Button
23.00 Brekkusöngur 2019
00.20 The Son
01.05 Snatch
01.50 Shameless
02.45 Shameless
03.40 Shameless
04.35 Stolen Daughters: Kid-
napped By Boko Haram
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
21.00 Nágrannar á norð-
urslóðum (e)
21.30 Eitt og annað frá Borg-
arfirði eystri (e)
endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
20.00 Ísland og umheimur
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta
21.00 Smakk/takk
21.30 Suður með sjó
endurt. allan sólarhr.
12.00 Everybody Loves Ray-
mond
12.20 The King of Queens
12.40 Ísl. tal – The Sponge-
Bob Movie: Sponge
Out of Water
14.10 Turbo – ísl. tal
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 How Not To DIY
18.25 George Clarke’s Old
House, New Home
19.15 Strúktúr
19.45 The Terminal
21.50 Saving Private Ryan
00.35 Collateral
02.30 Old School
04.00 Síminn + Spotify
06.55 Morgunbæn og orð
dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ljóðabókin syngur I.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.13 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Húsa-
víkurkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Tengivagninn.
15.00 Grár köttur.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar evr-
ópskra útvarpsstöðva.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Hyldýpi.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.28 Minnsti maður í heimi
07.29 Sara og Önd
07.36 Hæ Sámur
07.43 Söguhúsið
07.50 Letibjörn og læmingj-
arnir
07.57 Hvolpasveitin
08.20 Alvinn og íkornarnir
08.31 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.17 Sígildar teiknimyndir
09.24 Líló og Stitch
09.45 Reikningur
10.00 Skollaeyja
10.25 Hið sæta sumarlíf
10.55 Sue Perkins í Kolkata
11.50 Brotið
13.00 Sælkeraferðir Ricks
Stein – Palermo
14.00 Þrjár stjörnur í Münc-
hen
15.30 Ísland í öðru ljósi
16.20 Tónlistarsaga Evrópu
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Fuglabjargið Hornøya
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.30 Veður
19.40 Íslendingar
20.35 Viktoría
21.25 Íslenskt bíósumar:
Borgríki 2
23.00 Ást af hæstu gráðu
00.35 Dagskrárlok
10 til 14 Þór Bæring
Þór vaknar með hlustendum á þessum hálfgildings
laugardegi. Við hækkum í gleðinni um versló!
14 til 16 Tónlistinn Topp 40
Siggi Gunnars fer yfir vinsælustu lög landsins á K100.
Eini opinberi vinsældalistinn á Íslandi.
16 til 19 Pétur Guðjónsson
Góð tónlist og létt spjall um verslunarmannahelgi á
K100.
19 til 22 Algjört skornster versló
mix með Ásgeiri Páli
Í tilefni þess að við fáum frí á morgun mætir partý-
stjórinn Ásgeir Páll og stýrir þriggja klukkustunda
dansveislu.
Á þessum degi árið 1901
fæddist ein af helstu goð-
sögnum djassins í New Or-
leans, Louis Armstrong,
söngvari og trompetleikari.
Mörg af lögum hans slógu í
gegn og má þar nefna top-
plögin „Hello Dolly“ og
„What A Wonderful World“.
Auk þess urðu „When The
Saints Go Marching In“,
„Ain’t Misbehavin“ og „We Have All the Time in the
World“ gríðarlega vinsæl. Armstrong lagði leið sína til
Íslands árið 1965 og hélt ferna tónleika í Háskólabíói.
Hann lést sex áum síðar, hinn 6. júlí 1971, og var bana-
meinið hjartaáfall.
Djassperla fæddist
Charleville-Mézières. AFP. | Tvisvar
til þrisvar í viku kemur bréfberinn í
kirkjugarðinn í franska bænum
Charleville-Mézières með bréf til
ljóðskálds, sem enn vekur ástríður
127 árum eftir andlátið.
Í sumum bréfanna til Arthurs
Rimbauds er að finna játningar um
ódauðlega ást á skáldinu, sem lést 37
ára eftir viðburðaríkt líf, allt frá
stuttu sambandi í ópíumvímu við
skáldið Paul Verlaine til örferils í
vopnasölu.
„Rimbaud, jafnvel þótt þú sért
ekki lengur meðal okkar máttu vita
að ég mun elska þig að eilífu,“ segir í
einu bréfanna, sem stungið var inn í
gulan póstkassann með nafni ljóð-
skáldsins við hliðið inn í kirkjugarð-
inn.
Í öðru fær hann fyrir heit um „sól-
ina, tunglið og stjörnurnar“.
Sumir þeirra sem reyna að ná sam-
bandið við skáldið heitna virðast fá
huggun í að skrifa annarri þjáðri sál,
sem á táningsaldri setti bókmennta-
lífið í París á annan endann með til-
raunum sínum til að rata um undir-
meðvitundina í ljóðum, sem eru
sláandi fyrir hvað þau eru módernísk.
Bernard Colin sér um kirkjugarð-
inn. Hann rótar í skókössum sem
hann notar undir bréfin og dregur
fram handskrifað blað frá manni sem
heitir Philippe og veltir fyrir sér
„dreggjum æsku minnar, síðasta
fyrirheiti ömurlegar tilveru minnar“.
Hann segist alltaf vera snortinn af
tilfinningum bréfritara.
„Fólkið trúir Rimbaud fyrir von-
brigðum sínum. Hann er trún-
aðarvinur þess. Það talar við hann
eins og hann sé enn á lífi,“ segir Col-
in.
Bréfin og fjöldi gesta sem koma í
garðinn bera vitni endurnýjuðum
áhuga á Rimbaud, sem ákvað að snúa
baki við skáldskap og gerðist fyrst
málaliði, síðan kaupmaður og loks
vopnasali.
37 ár eru liðin frá því að Colin flutti
inn í íbúð umsjónarmanns kirkju-
garðsins og sagði forveri hans honum
að enginn hefði áhuga á Rimbaud.
„Það hefur sannarlega breyst,“
segir Colin og brosir.
Rimbaud er sömuleiðis í meiri met-
um á heimaslóðum sínum en áður.
Þegar hann var unglingur fáraðist
hann yfir takmörkunum smábæjar-
lífsins í Charleville, smábæ skammt
frá landamærum Belgíu, sem löngum
hefur haft á sér orð fyrir að þar gerð-
ist fátt, og skipulagði flótta sinn
þaðan.
Þó sneri hann ávallt heim ef eitt-
hvað bjátaði á, eins og þegar Verlaine
dró fram byssu í miðju rifrildi í
Brussel og skaut hann í handlegginn.
Viðurkenning lét hins vegar á sér
standa í heimabænum allt þar til á
sjöunda áratugnum þegar rokk-
stjörnur á borð við Jim Morrison,
söngvara The Doors, gerðu hann að
átrúnaðargoði sínu. Árið 1969 var
opnað Rimbaud-safn í bænum og
2004, þegar 150 ár voru liðin frá and-
láti skáldsins, var húsinu, sem hann
bjó í breytt í minnisvarða um hann.
„Rimbaud er Jim Morrison
Charleville-Mézières,“ segir Lucille
Pennel, stjórnandi safnsins, og ber
aðdráttarafl skáldsins saman við
söngvarann, sem grafinn er í París og
fjöldi manns vitjar í Pere Lachaise-
kirkjugarðinum á degi hverjum.
Sumir gestir í Charleville skilja
eftir tómar flöskur af absint eða
sígarettupakka á gröf Rimbauds.
Aðrir ganga lengra. Colin segist hafa
komið að pörum í samförum bak við
hvítu legsteinana tvo í fjölskyldugraf-
reitnum. Annar er merktur Rim-
baud, hinn Isabelle, systur hans, sem
lést 17 ára.
Meðal aðdáenda sem nýlega hafa
vitjað grafar Rimbauds eru söng-
konan Patti Smith, sem skildi eftir
rauða gítarnögl, franski rokkarinn
Hubert-Felix Thiefaine og Dom-
inique de Villepin, fyrrverandi for-
sætisráðherra.
Colin fagnar öllum gestum að leiði
Rimbauds. „Eftir öll þessi ár finnst
mér ég þekkja hann jafn vel og fjöl-
skyldu mína,“ segir hann.
RIMBAUD DREGUR Í AUKNUM MÆLI AÐ AÐDÁENDUR
Bernard Colin stendur við legstein Arthurs Rimbauds í kirkjugarðinum í
Charleville-Mézières í Frakklandi. Hann hefur gætt garðsins í 37 ár.
AFP
Enn berast
skáldinu bréf
Við garðinn er póstkassi merktur
Rimbaud og berast oft í hann bréf.
AFP