Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Page 2
Hvað er Improv Ísland?
Improv Ísland er spunahópur þar sem fókusinn er á grín. Við erum búin
að þjálfa aðferð til að búa til sögur sem eiga að vera fyndnar og skemmti-
legar. Hópurinn er orðinn fimm ára og er alltaf að stækka. Við höfum verið
að sýna vikulega í Þjóðleikhúskjallaranum í fjögur ár.
Hvað ætlið þið að gera á menningarnótt?
Menningarnótt er eins og árshátíð Improv Íslands. Þetta er fimmta
árið sem við erum með spunamaraþon í Þjóðleikhúskjallaranum á
menningarnótt, þar sem við keyrum okkur út og spinnum í fimm
klukkutíma. Við byggjum þetta upp þannig að við erum með nýja
sýningu á 30 mínútna fresti og fólk getur komið inn á milli sýn-
inga, svo lengi sem húsrúm leyfir. Þetta er algjörlega
frítt.
Hverju getur fólk búist við ef það mætir
á sýningu?
Fólk verður að vera tilbúið að ganga inn í óvissuna.
Það er ekki hægt að segja hverju er við að búast því
við vitum ekki hvað við erum að fara að gera þegar við
stígum á svið. En við vitum að það verður fyndið og
skemmtilegt. Hvað sem er getur gerst og það er það
sem er svo heillandi við spunann. Það er áhættuþáttur.
Allir eru hræddir um að þetta verði ekki fyndið og svo er
það léttirinn sem allir finna fyrir þegar þetta tekst. Það er
eins og maður sé að hoppa út úr flugvél með áhorfend-
urna með sér og hjálpast að við að finna fallhlífina.
Hvað tekur síðan við hjá hópnum?
Það eru stöðug námskeið hjá okkur. Þegar maður hef-
ur tekið öll námskeiðin getur maður sótt um að verða
meðlimur í Improv Ísland. Núna í haust verðum við
með prufur þar sem fólk getur sótt um að vera með í
sýningarhópnum. Og þegar nýr sýningarhópur er
orðinn til byrjum við með sýningarnar okkar í Þjóðleik-
húskjallaranum.Morgunblaðið/Eggert
GUÐMUNDUR FELIXSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Gengið inn í
óvissuna
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar
hún hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!
Ég er með lélega undirskrift. Hún er svo sem ágætlega skiljanleg,en hún er hvorki fáguð né falleg. Í raun hef ég aldrei pælt sér-staklega mikið í undirskrift minni, hún er einfaldlega nauðsyn-
legur hluti skriffinnskunnar sem er allt í kringum okkur.
Það tekur mig rúmar sex sekúndur að skrifa nafnið mitt (já, ég tók
tímann við vinnslu þessa pistils) og ég hef ekki hugmynd hvort það er
mikið eða lítið. Ég veit, hins vegar, að þegar ég er að skrifa undir skjal
líða þessar sekúndur afar hægt. Það er yfirleitt einhvers staðar í kring-
um g-ið í Magnússon þar sem ég fer á taugum og klára undirskriftina
með sex til átta óreiðukenndum og gjörsamlega ólæsilegum öldum.
Ég hef prófað að skrifa undir með einskonar óæfðri og fljótlegri
tengiskrift og vona að það muni
láta undirskriftina mína líta út
fyrir að vera kúl og kæruleys-
islega, en þegar ég læt reyna á
slíkar æfingar verður útkoman
alltaf hálfgert krass sem svipar
afar lítið til nafnsins míns.
Ef litið er á undirskrift mína í
breiðara samhengi má sjá að það
er ekki aðeins undirskriftin sem
mætti bæta, heldur er rithöndin
almennt frekar léleg.
Það er kannski ekki að furða
að undirskrift mín, þessi tiltekna
samsetning stafa, skuli vera lé-
leg þegar efniviðurinn er stafir
sem eru upp á sitt eindæmi lé-
legir. Stafurinn „g“, til dæmis, hefur alltaf vafist fyrir mér. Ekki að
þetta sé endilega mjög flókinn stafur, en mér tekst aldrei að fá hann til
að koma rétt út. Það sama má segja um stafinn „æ“, sem mér þykir
skrítinn.
Ég er af kynslóð sem hefur verið umkringd skjáum frá fæðingu.
Tölvur, og síðar farsímar og snjalltæki, hafa alltaf verið hluti af lífi
mínu. Ég hef skrifað margfalt meira á lyklaborð heldur en nokkurn
tímann á blað með blýanti, og það hefur óneitanlega haft áhrif á hvern-
ig rithönd mín hefur þróast.
Mér þykir engu að síður erfitt, og jafnvel óheiðarlegt, að kenna sam-
félagslegum þáttum um rithönd mína. Ég á marga vini og kunningja
sem búa yfir gullfallegri og fágaðri rithönd. Auk þess þekki ég marga
sem eru töluvert eldri en ég og ólust upp fyrir tíma snjalltækja sem
eru með afskaplega slappa rithönd. Ég vona bara að rithönd segi ekki
eins mikið um persónuleika ritarans og sumir vilja halda fram.
(Rit)handahlaup
Pistill
Pétur Magnússon
petur@mbl.is
’Það er kannski ekki aðfurða að undirskriftmín, þessi tiltekna sam-setning stafa, skuli vera
léleg þegar efniviðurinn
er stafir sem eru upp á
sitt eindæmi lélegir.
Ásgrímur Guðnason
Já, en ég veit ekki hvað ég ætla að
gera þar.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú á
menning-
arnótt?
Logi Snær Stefánsson
Já, ég er mjög spenntur fyrir hipp-
hopphátíð menningarnætur.
Guðjón Kristófer Einarsson
Dagskráin mín er pökkuð á menn-
ingarnótt. Ég er spenntur að drekka
í mig ungmenninguna.
Salka Hermannsdóttir
Já. Ég ætla á tónleika og á brauð-
tertukeppnina.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Spunamaraþon Improv
Íslands fer fram í Þjóð-
leikhúskjallaranum á
Menningarnótt.