Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Blaðsíða 6
HEIMURINN
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2019
„Ég harma sársaukann og
þjáninguna sem ég hef valdið
og vona að dauði minn dragi
úr kvölum ykkar. Mig langar
líka að segja móður minni að
ég iðrast gjörða minna. Það er
hræðilegt að þurfa að upplifa
það að sonur manns sé kall-
aður ófreskja. Ég biðst innilega
forláts. Svona átti líf mitt aldr-
ei að verða. Maður vaknar
ekki einn morguninn og
ákveður að verða raðmorð-
ingi.“
Þannig komst hinn 57 ára
gamli Gary Ray Bowles að orði
í handskrifaðri yfirlýsingu
áður en hann var tek-
inn af lífi í fangelsi í
Flórída í vikunni.
Hann hafði beðið
örlaga sinna á dauða-
deild í meira en tvo
áratugi en morðæði
rann á hann árið 1994.
Teygði það anga sína
frá Maryland í
norðri til
Flórída í
suðri.
Bowles var kallaður I-95-
morðinginn, þar sem hann
virtist beina sjónum sínum að
karlmönnum sem bjuggu ná-
lægt þjóðveginum við strand-
lengjuna í austri. Fórnarlömbin
voru öll samkynhneigð en
Bowles hafði um tíma starfað
sem vændiskarl. Talið er að
æðið hafi runnið á Bowles þeg-
ar unnusta hans komst að
þessu og yfirgaf hann.
Alls voru fórnarlömb hans
sex talsins og talið er að Bow-
les hafi vingast við þau áður en
hann lét til skarar skríða. Öll
fundust fórnarlömbin
með hluti sem morð-
inginn hafði troðið
niður í kokið á
þeim; svo sem kyn-
lífstæki, lauf og
handklæði. Aðferð-
irnar voru mismun-
andi en eitt fórnar-
lambið myrti hann
með því að láta
steypuklump
falla á and-
lit þess.
RAÐMORÐINGI TEKINN AF LÍFI VESTRA
Svona átti lífið ekki að verða
Gary Ray Bowles
Þeir ruddust inn til hennar aðkvöldi síðasta miðvikudags,þrír grímuklæddir menn, og
sögðust vera frá lögreglunni. Þeir
löðrungu hana og þvinguðu hana síð-
an á nærfötunum út og upp í pallbíl
sem beið fyrir utan. Þaðan var ekið
sem leið lá á stað sem hún bar ekki
kennsl á.
Þannig lýsir skemmtikrafturinn
og háðsádeiluhöfundurinn Sam-
antha Kureya lífsreynslu sem hún
varð fyrir heima í Simbabve í vik-
unni. Kureya, sem kallar sig Gony-
eti, er einn vinsælasti skemmtikraft-
ur landsins og þekkt fyrir beitt spé
af pólitískum toga.
Við höfum verið að
fylgjast með þér
„Þeir byrjuðu á að segja: „Þú dregur
dár að ríkisstjórninni og við höfum
verið að fylgjast með þér,““ lýsir hún
í breska blaðinu The Guardian. „Þeir
skipuðu mér að leggjast niður og
velta mér eftir jörðinni. Ég fékk fyr-
irmæli um að velta mér í aðra áttina
og síðan hina og um leið var ég bar-
in. Síðan byrjuðu þeir að traðka á
bakinu á mér,“ bætir hin 33 ára
gamla Kureya við.
Síðan skipuðu mennirnir henni að
gera heræfingar og drekka skólp-
vatn áður en þeir fóru að spyrjast
fyrir um maka hennar, sjónvarps-
stöðina sem hún vinnur hjá og koll-
ega hennar. Að því búnu var henni
gert að afklæðast og síminn hennar
var leystur upp í frumeindir sínar
með AK-47 riffli.
„Þeir sögðu: „Ef þú segir frá
þessu þá setjum við byssukúlu gegn-
um höfuðið á móður þinni.“ Maður
er ekki óhultur í þessu landi, það er
ógnvekjandi. Þegar menn af þessu
tagi mæta og nema á brott konu eins
og mig er það óhugnanlegt,“ sagði
hún á felustað sínum á fimmtudag-
inn.
Mannréttindasamtök halda því
fram að sama bifreið hafi verið notuð
í tíu sambærilegum málum undan-
farna daga, sex í höfuðborginni
Harare og fjórum í Bulawayo.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
höfð eru afskipti af Kureya en hún
var handtekin ásamt öðrum háðfugli
fyrr á þessu ári eftir að þau komu
fram í lögreglubúningum í grín-
skissu í sjónvarpi.
Fyrstu viðbrögð stjórnvalda við
frásögn Kureya voru á þann veg að
hún hefði sett mannránið á svið – í
þágu grínsins. „Við látum ekki
gabba okkur,“ sagði Energy Mutodi,
aðstoðarupplýsingamálaráðherra.
Spenna fer nú vaxandi í Simbabve
en lögregla stöðvaði mótmælafund
stjórnarandstæðinga í seinustu viku
með kylfum og táragasi. Efnahagur
ríkisins stendur á brauðfótum og
hefur þegnunum verið gert að herða
sultarólina svo um munar. Fyrir
helgina bárust svo fregnir af því að
lykilmaður úr röðum helsta stjórn-
arandstöðuflokksins væri í haldi lög-
reglu grunaður um að hafa lagt á
ráðin um fjöldamótmæli.
Undir smásjá umheimsins
Nokkur hundruð manns voru hand-
tekin þegar ástandið nálgaðist suðu-
mark í janúar síðastliðnum en flestir
hafa verið látnir lausir. Þó bíða um
tveir tugir manna, stjórnarandstæð-
ingar og verkalýðsfólk, réttarhalda
sem gætu leitt til fangavistar.
Ríki heims hafa sameinast í mót-
mælum gegn ofríki stjórnvalda í
Simbabve og nýlega sagði Andrew
Stephenson, Afríkumálaráðherra
Bretlands, að stjórnvöld þar syðra
yrðu að taka með hraði á mannrétt-
indabrotum ætluðu þau sér að öðlast
trúverðugleika í baráttu sinni fyrir
bættum stjórnháttum í landinu.
Stjórnvöld í Simbabve hafa þrátt
fyrir allt lagt áherslu á að bæta sam-
skipti sín við umheiminn eftir að Ro-
bert Mugabe var steypt af stóli fyrir
tveimur árum, en sem frægt er bar
einræðisherrann litla virðingu fyrir
almennum mannréttindum.
Fimm milljónir líða skort
Núverandi forseti Simbabve, Emm-
erson Mnangagwa, hefur þó tak-
markaðan smekk fyrir umvöndunum
af þessu tagi ef marka má orð hans á
opnum fundi á dögunum. Þar sagði
hann að svokölluð hlýðnilög væru
ekki til þess fallin að ganga í augun á
öðrum ríkjum, heldur til að styrkja
lög og reglu í Simbabve. Hart verði
tekið á fólki sem ögri lýðræðinu.
Sameinuðu þjóðirnar telja að um
þriðjungur íbúa Simbabve líði skort
og þurfi á bráðri matvælaaðstoð að
halda, það eru um fimm milljónir
manna.
Neydd til að
drekka skólp
Einn þekktasti háðfugl Afríkuríkisins Simbabve,
Samantha Kureya, er farin í felur eftir að hafa ver-
ið numin brott af vopnuðum mönnum í vikunni
sem hún telur tengjast ráðamönnum landsins.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Samantha Kureya varð fyrir óskemmtilegri lífsreynslu í vikunni. Hún býður mannræningjunum birginn, þrátt fyrir hót-
anir sem beindust meðal annars að móður hennar. Mannréttindasamtök hafa miklar áhyggjur af ástandinu í landinu.
Hararelive.com
Stuðningsmenn Emmerson Mnangagwa forseta stíga dans á svokölluðum
Hetjudegi í Harare á dögunum. Ekki eru allir eins hrifnir af forsetanum.
AFP
ÚTSÖLUDAGAR
Rökkva.isFrí heimsending
Höfðabakki 9 (Edda heildverslun) • Sími 561 9200 • rokkva@rokkva.is
Allt að
40%
afsláttur