Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2019
RODAM
Campa R15 Hönnun: Designschneider Berlin
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Borðstofuborð
DESALTO
Skin
NAVER COLLECTION
GM3200
Hönnun: Nissen & Gehl
Hönnun: Marco Acerbis
KNOLL INTERNATIONAL
TULIP borð Hönnun: Eero Saarinen
Hönnun: Nissen & Gehl
NAVER COLLECTION
GM7700
„Þegar ég var yngri var brauðterta alltaf á veislu-
borðum og ég held að allir Íslendingar eigi einhverja
minningu af brauðtertum í veislum eða þegar fólk
kemur saman og heldur upp á eitthvað,“ segir Tanja
Levý, listakona og einn skipuleggjenda brauðtertu-
samkeppninnar sem fer fram í Hafnarhúsinu á menn-
ingarnótt.
„Á tímabili fannst mér eins og brauðtertan væri að
hverfa af veisluborðunum og snitturnar að taka við. Ég
var dauðhrædd um að brauðtertan myndi falla í
gleymskunnar dá. En hún er að fá uppreisn æru.“
Keppnina heldur Tanja ásamt Valdísi Stein-
arsdóttur, í samstarfi við Brauðtertufélag Erlu og
Erlu, en viðburðurinn hefst klukkan 14:00.
„Það er mikill samhugur í brauðtertusamfélaginu og
við vildum skapa vettvang þar sem brauðtertuunn-
endur geta komið saman,“ segir Tanja. „Brauðtertan
er að koma til baka.“
Brauðtertukeppnin verður haldin í
Listasafni Reykjavíkur klukkan 14:00 til
16:00. Dómarar verða Siggi Hall, Mar-
grét Sigfúsdóttir og Erla Hlynsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Brauðtertan lifir
Brauðtertan fær uppreisn æru í brauðtertusamkeppninni á menningarnótt
Íslendingar sendu kapplið til Ess-
en í Þýskalandi fyrir réttum átta-
tíu árum. Ekki kemur fram í
frétt Morgunblaðsins 25. ágúst
1939 hvaða grein kapplið þetta
keppti í en gera má því skóna að
það hafi verið knattspyrna.
„Kappliðið, sem Íslendingar
fengu á móti sjer í Essen í fyrra-
dag, var mjög sterkt, og var talið
óhugsandi að landar fengi neina
rönd við reist. Þó var stundum
tvísýnt hvernig fara mundi.
Samt höfðu Þjóðverjar að leiks-
lokum 4 mörk á móti 2, og er
ástæðan sögð meiri hraði hjá
þeim í leiknum, og öruggur
markmaður.“
Það voru þeir Björgvin og
Gísli Kjærnested sem settu
mörkin fyrir Íslendinga, Björgvin
í fyrri hálfleik og Gísli í þeim
seinni. „Dómar þýsku blaðanna
um kappleikinn eru á þá leið, að
Íslendingar sje óþekkjanlegir frá
því sem þeir voru 1935, svo stór-
kostlega hafi þeim farið fram.“
Fram kom í fréttinni að dekr-
að hefði verið við landana síðan
þeir komu út, og hafði þeim ver-
ið sýnt allt hið markverðasta á
þeim stöðum þar sem þeir
komu, meðal annars fallbyssu-
verksmiðjur Krupps í Essen, en
þær fengu yfirleitt engir útlend-
ingar að sjá.
GAMLA FRÉTTIN
Miklar
framfarir
Frá kappleik á Melavellinum um miðja síðustu öld. Enn fór mönnum fram.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur
Skapti Hallgrímsson
blaðamaður og rithöfundur
Jón Ólafsson
píanóleikari