Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2019 LESBÓK MÁLMUR Núverandi og fyrrverandi söngvari Kills- witch Engage, Jesse Leach og Howard Jones, sameina krafta sína í einu lagi á nýjustu breiðskífu Massachu- setts-málmbandsins, Atonement, sem kom út á dög- unum. Lagið heitir The Signal Fire og fjallar um sam- stöðu og bræðralag og að missa ekki vonina þegar þyrmir yfir. Leach samdi lagið sem dúett og með Jones í huga en báðir hafa þeir glímt við geðraskanir gegnum tíðina. Ef einhver er hér ringlaður þá erum við ekki að tala um popparann Howard Jones, sem gerði garðinn frægan á níunda áratugnum, heldur allt annan mann. Þessi var í Killswitch Engage frá 2002-12 en frontar nú annað málmband, Light the Torch. Annar gestasöngv- ari er á nýju plötunni, Chuck Billy úr Testament. Sameinaðir í söng Howard Jones í ham. Wikipedia UPPRUNI Breska óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet er komin af sænsku alþýðufólki í móðurætt. Þetta kemur fram í bresku útgáf- unni af hinum sívinsæla þætti Hver heldurðu að þú sért? Leikkonan fagnar þessu í þættinum enda er hún þar að fá gamlan orðróm stað- festan. „Ég er engin glamúrdrós,“ segir Winslet í þættinum og kveðst vera fegin að vera af al- þýðu- en ekki aðalsættum. Sjálf ólst hún upp ásamt systkinum sínum fimm hjá foreldrum sem aldrei bárust á í fásinninu í Reading á Englandi. Winslet kveðst vera fegin að hafa lagt upp í ferðalagið. „Ég veit meira um sjálfa mig núna.“ Leikkonan Kate Winslet í sínu fínasta pússi. Reuters Michelle Williams á rauða dreglinum. Tók á honum stóra sínum TÚLKUN Bandaríska leikkonan Michelle Williams kveðst í samtali við breska blaðið The Telegraph hafa þurft að taka á honum stóra sínum þegar hún lék leikkonuna og dansarann Gwen Verdon í nýlegri smáseríu, Fosse/Verdon. Þar er hermt af stormasömu hjónabandi og samstarfi Verdon og leikstjór- ans og danshöfundarins Bobs Fosse sem Sam Rockwell leikur. „Hún var besti túlkandi hans verka og hann besti leiðbeinandi hennar í listinni,“ segir Williams í viðtalinu. Þar kem- ur einnig fram að fengi hún hundr- að líf væri hún meira en til í að verja einu þeirra í hjónabandi Verdon og Fosse. Í einu af skemmtilegustu ogáhrifamestu atriðum OnceUpon a Time … in Hollywood heimsækir áhættuleikarinn eit- ursvali Cliff Booth Spahn- kvikmyndabúgarðinn í Los Angel- es-sýslu ásamt blómabarninu Pussycat sem húkkað hefur far með honum. Hvorugt þeirra var til í raun og veru; Booth er hreinn og klár uppspuni enda þótt Quentin Tarantino byggi persónuna á áhættuleikurum sem í eina tíð settu svip á sinn samtíma. Þá eru óljósar heimildir fyrir því að stúlka sem kölluð var Pussycat hafi dvalist á búgarðinum í tíð Manson- fjölskyldunnar. Í bókinni The Fa- mily eftir Ed Sanders kemur við sögu stúlka með því nafni og þar er því haldið fram að hún hafi gengist undir andasæringu í San Francisco að Charles Manson viðstöddum. Skírnarnafn Pussycat kemur þó hvergi fram. Mögulega vísar Tar- antino í þá persónu eða þá Kathryn nokkra Lutesinger, sem þeir Man- synir kölluðu jafnan Kitty. Hver veit? „Við elskum öll Pussy!“ Hvort Kitty var eins ástsæl innan Hvaða Spahn er á þér? Quentin Tarantino lónar á landamærum skáld- skapar og veruleika í nýjustu mynd sinni, Once Upon a Time … in Hollywood. Meðal þess sem á sér stoð í sögunni er Spahn-búgarðurinn, þar sem Manson-fjölskyldan kom sér makindalega fyrir. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is George Spahn var orðinn gamall og hrumur sumarið 1969. Bettmann Archive Hver var og hver var ekki? Þar er efinn í Once Upon a Time … in Hollywood. Einn af karakterunum sem raunverulega voru til er umboðs- maður Ricks aðalsögu- hetju Daltons, Marvin Schwarz, sem Al Pac- ino leikur. Ekki fer svo sem mörgum sögum af þeim ágæta manni en hann starfaði sann- arlega sem umboðsmaður og almannatengill í Hollywood á þess- um árum. Kúrekarnir sem Timothy Olyphant og Luke heitinn Perry túlka í einu atriði voru líka raunverulegir, James Stacy og Wayne Maunder. Riðu um héröð í kúrekaþáttunum Lancer frá 1968-70. Unga stúlkan sem einnig kemur við sögu í því atriði, Trudi Fraser, er á hinn bóginn hugarfóstur Tarantinos. Forfrömuð í met- hod-leiklist. Sömu sögu má segja um konuna sem gengur að eiga Rick Dalton í myndinni, Francescu Capucci. Hún er ekki til en bygg- ist á bombum á borð við Sophiu Loren og Claudiu Cardinale. Hver var og hver var ekki? Pitt, DiCaprio og Pacino í Once Upon a Time… Reyndist vera af sænskum ættum PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 2. september SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Börn & uppeldi Víða verður komið við í uppeldi barna í tómstundum, þroska og öllu því sem viðkemur börnum frá fæðingu til 12 ára aldurs. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 7. sept.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.