Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Page 22
Ljósmyndakeppni ferðavefjar mbl.is fórfram dagana 18. júní til 15. ágúst.Þema keppninnar var Ísland og birtu
keppendur ljósmyndir sínar á Instagram
með hashtaginu #ferdavefurmbl.
Í verðlaun fyrir bestu myndina var
tveggja nátta gisting á Fosshóteli á Vatna-
jökli, en einnig voru veitt verðlaun fyrir vin-
sælustu myndina sem var tveggja nátta gist-
ing á Fosshóteli í Reykholti.
Sigurvegari keppninnar var valinn af dóm-
nefnd, en í henni sátu Friðrika Hjördís
Geirsdóttir, Ragnar Axelsson (RAX) og Kol-
brún Pálína Helgadóttir.
Tæplega fjögur hundruð myndir voru
skráðar til leiks, en að lokum stóð Gísli Ein-
ar Árnason uppi sem sigurvegari með gull-
fallega mynd sem hann tók í höfninni við
Arnarstapa í fjölskylduferðalagi um Snæ-
fellsnes.
Vinsælustu myndina tók Helen María
Björnsdóttir af göngufólki á Skaftafelli.
Fannst augnablikið fallegt
„Myndin er tekin í höfninni við Arnarstapa,“
segir Gísli Einar Árnason, sigurvegari ljós-
myndakeppninnar. „Við vorum að rúlla um
Snæfellsnesið með fellihýsið og eitt kvöldið
fórum við svo út að sigla í höfninni. Veðrið
var stillt og gott. Strákarnir okkar reru á
róðrarbrettum út að gatklettinum. Það er
svo frábært umhverfi þarna. Frábært fyrir
þetta sport,“ segir Gísli.
„Mér fannst þetta mjög fallegt augnablik
þegar bræðurnir voru að róa út úr höfninni;
vatnið kyrrt, Stapafellið og Snæfellsjökullinn
í baksýn og sólin að setjast. Þetta er rosa-
lega fallegt mótíf á Arnarstapa.“
Gísli er búsettur á Akureyri og starfar
sem tannréttingasérfræðingur. Hann segir
ljósmyndun vera skemmtilegt áhugamál.
„Mér finnst gaman að taka myndir og þótt
ég sé ekki sá aktívasti tek ég mikið af mynd-
um. Sérstaklega þegar það er eitthvað
skemmtilegt að gera hjá fjölskylduni,“ segir
Gísli.
„Það kom mér á óvart að ég skyldi vinna
keppnina, það var fullt af flottum myndum.
Mér finnst myndin mín mjög falleg, en það
kom samt á óvart.“
Sigurmyndin er af sonum Gísla á róðrarbretti í höfninni við Arnarstapa. Í bakgrunni eru Arnarstapi og Snæfellsjökull.
Ljósmynd/Gísli Einar Árnason
Vinsælasta myndin, sem Helen María tók. Helen rekur leiðsögufyrirtækið Local Guide ásamt fjölskyldu sinni.
Ljósmynd/Helen María Björnsdóttir
Jöklar
báru
sigur úr
býtum
Sigurmyndir ljósmyndakeppni
ferðavefjar mbl.is voru
tilkynntar í síðustu viku, en
tæplega fjögur hundruð
myndir bárust í keppnina
sem fór fram á Instagram.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2019
LÍFSSTÍLL