Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.08.2019, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.8. 2019
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
07.00 Strumparnir
07.25 Tindur
07.40 Mæja býfluga
07.55 Víkingurinn Viggó
08.05 Latibær
08.30 Blíða og Blær
08.55 Lukku láki
09.20 Dagur Diðrik
09.45 Skoppa og Skrítla á
póstkorti um Ísland
10.05 Ævintýri Tinna
10.30 Ninja-skjaldbökurnar
10.55 Friends
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Strictly Come Dancing
14.50 Strictly Come Dancing
15.30 Seinfeld
15.55 I Feel Bad
16.20 Masterchef USA
17.05 Sporðaköst
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 Steindinn okkar – brot
af því besta
19.40 Rikki fer til Ameríku
20.10 Who Killed Garrett
Phillips?
21.35 The Victim
22.35 Absentia
23.20 The Righteous
Gemstones
00.20 Snatch
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Skapandi fólksfækkun
(e)
20.30 Eitt og annað af fólki
21.00 Heimildarmynd – Heið-
arbýlin
endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
20.00 Sturlungar á Þingvöll-
um
21.00 Saga flugsins í 100 ár
endurt. allan sólarhr.
16.00 Malcolm in the Middle
16.20 Everybody Loves Ray-
mond
16.45 The King of Queens
17.05 How I Met Your Mother
17.30 Top Gear
18.30 George Clarke’s Old
House, New Home
18.30 Top Gear: Extra Gear
18.55 Alone Together
19.15 Ný sýn
19.45 Speechless
20.10 Madam Secretary
21.00 The First
21.50 Jamestown
22.40 Kidding
23.10 SMILF
23.40 Escape at Dannemora
00.40 The Walking Dead
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Þjóðlagahátíð á Siglu-
firði.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Ljóðabókin syngur II.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta á Hóla-
dómkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Tengivagninn.
15.00 Grár köttur.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar evr-
ópskra útvarpsstöðva.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Listin að brenna bækur.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Begga og Fress
07.28 Minnsti maður í heimi
07.29 Sara og Önd
07.36 Hæ Sámur
07.50 Letibjörn og læmingj-
arnir
07.57 Hvolpasveitin
08.20 Alvin og íkornarnir
08.31 Ronja ræningjadóttir
08.55 Disneystundin
08.56 Tímon & Púmba
09.17 Sígildar teiknimyndir
09.24 Líló og Stitch
09.45 Flökkuhópar í nátt-
úrunni
10.35 Hið sæta sumarlíf
11.05 Innlit til arkitekta
11.35 Ingmar Bergman: Bak
við grímuna
12.30 Menningin – samantekt
13.00 Sumartónleikar í
Schönbrunn
14.35 Reykjavík í öðru ljósi
15.35 Hjá Fridu Kahlo
16.30 Getur Egill Skalla-
grímsson sagt ókei?
17.00 Haförninn: Hinn helgi
örn
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Gleðin í garðinum
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Veröld sem var
20.20 Viktoría
21.10 Íslenskt bíósumar: Út-
laginn
22.55 Góða nótt, mamma
14 til 16 Tónlistinn Topp40
Eini opinberi vinsældalisti Íslands er sendur út á
K100 alla sunnudaga. Siggi Gunnars telur niður 40
vinsælustu lög landsins.
16 til 19 Pétur Guðjóns
Góð tónlist og spjall á sunnudags síðdegi. Pétur fylgir
hlustendum heim úr fríinu á sunnudögum, nú eða
skemmtir þeim sem eru svo heppnir að geta verið
lengur í fríi.
Hljómsveitin
The Knack
komst í topp-
sæti bandaríska
smáskífulistans
á þessum degi
árið 1979 með
lagið „My
Sharona“. Lagið
sat á toppnum
samfleytt í
fimm vikur en
það komst hæst
í sjötta sætið í
Bretlandi. „My
Sharona“ var eini toppslagari sveitarinnar en söngv-
arinn Doug Fieger sagði innblásturinn hafa komið frá
17 ára stúlku að nafni Sharrona Alperin. Hún varð síð-
ar kærasta söngvarans en ástin kulnaði þeirra á milli.
Þrátt fyrir sambandsslitin og að bæði giftust öðrum
áttu þau afar sterkt vinasamband.
Topplagið 1979
Tommy gamli Lee, trommuleikari
glysmálmbandsins Mötley Crüe, er
vandur að virðingu sinni, eins og
menn þekkja og þegar þjónn bað
hann að taka ofan hattinn á hinum
víðfræga veitingastað Emeril’s í
New Orleans í Bandaríkjunum í vik-
unni fauk í okkar mann með þeim af-
leiðingum að honum var gert að yf-
irgefa staðinn, ásamt spúsu sinni.
Í samtali við sjónvarpsstöðina
TMZ, sem sveif á þau skötuhjúin á
LAX-flugvellinum í Los Angeles eft-
ir atvikið, sagði Brittany Furlan, eig-
inkona Lees: „Þetta var eiginlega
mjög kjánalegt. Við komum inn á
staðinn og settumst niður. Við vorum
bæði með hatt á höfðinu og geng-
ilbeinan, gestgjafinn eða hvað það nú
kallast, bað Tommy um að taka af
sér hattinn. Hvað um hattinn minn?
spurði ég þá. Þá svaraði hún: „Það er
allt í lagi með hattinn þinn en hann
verður að taka sinn ofan.“
Í spjallinu kom fram að Lee hefði
verið með derhúfu og það samræm-
ist víst ekki stefnu veitingastaðarins.
„Æ, rækallinn, sagði þá Tommy, tók
af sér húfuna og lagði hana í gaupn-
ir sér. Þá mætti einhver dúddi við
borðið hjá okkur. Málið er úr sög-
unni, húfan er farin og allir sultu-
slakir hérna, sögðum við. Þá sagði
dúddinn: Fyrirgefðu en ég heyrði
þig nota blótsyrði hérna,“ sagði For-
lan. Þá mun „dúddinn“ hafa beðið
Lee um að yfirgefa staðinn. Og það
var auðsótt: „Veistu hvað? Hoppaðu
upp í rassgatið á þér! Við erum að
fara,“ sagði trymbillinn, skýrt og
skorinort.
Var að „trumpa sér“
„Við viljum hvort eð er ekki vera á
einhverjum leiðindastað, þar sem
manni er sagt að taka ofan hattinn,“
bætti Furlan við sem stóð greinilega
þétt við bakið á bónda sínum.
Lee fylgdi viðtalinu eftir með
beittu tísti á Twitter-reikningi sín-
um, þar sem veitingastaðurinn var
ekki látinn eiga neitt inni.
Fyrr í þessum mánuði komst
Tommy Lee í fréttirnar vegna
færslu á Twitter þar sem hann for-
mælti Donald Trump Bandaríkja-
forseta og flokki hans, Repúblik-
anaflokknum. Lauk hann færslunni
með því að segjast vera að „trumpa
sér“ og hnýtti við lyndistákninu fyr-
ir saurlát.
Kappinn hefur greinilega engu
gleymt. Og líklega ekkert lært held-
ur. orri@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Tommy Lee fær
skömm í hattinn
Tommy Lee er Íslandsvinur
fram í fingurgóma, eins og svo
margir rokkarar. Þessi mynd
náðist af kappanum þegar
hann þeytti skífum á Nösu
heitinni árið 2008. Ekki
fylgir sögunni hvort
þetta er sama der-
húfan og kemur
fyrir í fréttinni.
22. ágúst verður hér eftir Layne
Staley-dagurinn í rokkborginni
Seattle í Bandaríkjunum. Þetta
kunngjörði borgarstjórinn, Jenny
Durkan, á fimmtudaginn en þá
hefði hinn ástsæli söngvari Pearl
Jam orðið 52 ára. Staley lést sem
kunnugt er árið 2002 eftir langvar-
andi glímu við fíkniefni, þar á
meðal heróín.
Fram kom að auk þess að
heiðra minningu söngvarans hefði
dagurinn þann tilgang að beina
sjónum að Minningarsjóði Laynes
Staleys, sem foreldrar hans settu
á laggirnar árið 2002. Sjóðnum er
ætlað að fræða og styðja fólk sem
glímir við heróínfíkn og hefur
löngun til að ná bata.
„Layne var einstakur náungi;
hver kynslóð býr ekki að nema ör-
fáum slíkum hæfileikamönnum,“
sagði Jerry Cantrell, gítarleikari
Alice in Chains, við The Pulse Of
Radio í Seattle af téðu tilefni.
„Margir átta sig á hvað hann lagði
af mörkum til tónlistarinnar og
sækja innblástur til hans.“
Laynes Staleys er
sárt saknað af unn-
endum góðs gröns.
Loudwire.com
Staley-dagurinn í Seattle