Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Síða 5
3
Formáli endurútgáfu.
í júlí 1972 gaf hagrannsóknadeild út fjölrit meö
heitinu ÞJÖÐARBÖSKAPURINN - Yfirlit 1970-1971 og horfur
1972. Meö þessari skýrslu má telja, aö hefjist á vegum
deildarinnar regluleg útgáfa yfirlitsskýrslna um þjóöar-
búskapinn tvisvar á ári, því í október 1972, í júlí og
desember 1973 komu út prentaöar skýrslur, sem í aðal-
atriöum fylgja því formi, sem ákveéiö var meö fyrstu
skýrslunni.
Upplag fyrstu skýrslunnar var mjög takmarkað auk
þess sem hún var í ööru broti en þær, sem á eftir hafa
fylgt. Margir lesendur seinni skýrslnanna þriggja hafa
spurt eftir þeirri fyrstu án þess að hægt væri aö anna
þeirri eftirspurn, þar sem upplagið er þrotiö. Af þessari
astæðu og til þess aö unnt veröi aö halda röðinni til
haga frá upphafi í sama broti birtist þessi fyrsta skýrsla
hagrannsóknadeildar um þjóðarbúskapinn hér í endurútgáfu.
Skýrslan er að öllu leyti óbreytt, burt séö frá því, aö
nokkrar prentvillur hafa verið leiöréttar og gallar í
fj.ölritun lagfærðir.
Reykjavík í febrúar 1974.
FRAMKVÆMDASTOFNUN RÍKISINS
Hagrannsóknadeild
Jón Sigurösson