Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Blaðsíða 43
41
tekjuaukningu á síðari hluta árs en áður, eða allt að 39% £
peningum. 1 heild er því talið, að almennur vöruinnflutningur
geti numið um 17.650 m.kr. á árinu.
Sérstakur innflutingur er hins vegar talinn munu minnka
talsvert á þessu ári, en með sárstökum innflutningi er átt við
skip og flugvélar, vörur til rekstrar og framkvæmda £ Straums-
v£k, við Búrfell og við Sigöldu ásamt innflutningi á vegum
varnarliðsins. Gert er ráð fyrir, að innflutningur skipa og
flugvála nemi um 1.400 m.kr., sem er um 850 m.kr. minna en hin
afar miklu skipa- og flugválakaup s.l. árs. Hins vegar mun
innflutningur á vegum álversins f Straumsvfk aukast töluvert,
eða e.t.v. um 350 m.kr., og gæti £ heild numið um 1.770 m.kr.
Innflutningur vegna framkvæmda við Búrfell og Sigöldu er talinn
munu minnka um helming frá fyrra ári og nema um 130 m.kr.. í
heild er gert ráð fyrir, að sárstakur innflutningur muni nema
um 3.410 m.kr. á þessu ári.
Þótt e.t.v. megi ætla, að innflutningsspáin sá £ hærra
lagi, er það varla meira en svari þv£, sem útflutningur gæti
orðið slakari en spáð er. Að svo stöddu virðist þv£ ekki ástæða
til að endurskoða til neinna muna hugmyndir um viðskipta-
jafnaðarhalla ársins £ heild, þótt hann geti komið eitthvað
seinna fram en ætlað var. Spáin fyrir heildarinnflutning vöru
og þjónustu hljóðar þannig upp á 31.300 m.kr. fyrir árið allt.
Samkvæmt þv£, yrði halli á viðskiptajöfnuði um 4.770 m.kr..
Fyrstu fimm mánuði ársins er áætlaður halli á viðskiptajöfnuði
1.060 m.kr.. Gjaldeyrisstaðan f maflok var hins vegar 4.688 m.kr.
eða aðeins 68 m.kr. lægri en £ byrjun ársins, enda var nettó-
innstreymi erlends fjármagns um 992 m.kr. á þessum t£ma samkvæmt
bráðabirgðatölum Seðlabankans. Gjaldeyrisstaðan versnaði reyndar
mjög £ mafmánuði. sárstaklega, eða um 300-400 m.kr., en samkvæmt
sfðustu.-spám er búizt við rýrnun gjaldeyrisstöðunnar á árinu öllu um
1.000-1.200 m.kr., þrátt fyrir fjórfalt hærri viðskiptahalla-
spá, þar eð innstreymi erlends fjármagns verður mjög mikið á
árinu. í töflunni um innflutning hár að framan kemur fbam, að
spáð er fjármagnsinnstreymi um 3.565 m.kr. samanborið við
5.478 m.kr. £ fyrra. Spá Seðlabankans um greiðslujöfnuðinn f heild,
sem er samstæð spánum um útflutning, innflutning og fjármunamyndun,
sem lýst er hár að framan, fylgir hlr á eftir.