Þjóðarbúskapurinn

Tölublað

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Blaðsíða 26

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Blaðsíða 26
24 var aftur af hvers konar verðhækkunum, hélzt framfærsluvísitalan næsta stöðug allt árið. Vísitala framfærslukostnaðar var 1. nóvem- ber 1971 1% hærri en hún hafði verið 1. nóvember 1970, en um 4% hærri en í desember 1970, þegar fyrstu áhrif verðstöðvunarað- gerðanna voru komin fram. Meðalbreyting vísitölu framfærslu- kostnaðar milli áranna 1970 og 1971 er metin 6.8%, en vísitala vöru og þjónustu rúmlega 7%. Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði hins vegar um 11.5%. Miðað við verðbreytingar vöru og þjónustu jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna á mann um u.þ.b. 15-16% á árinu 1971, eða heldur meira en árið áður. Með þessu var meira en búið að vinna upp þá rýrnun kaupmáttar tekna, sem varð á erfið- leikaárunum 1967 til 1969. Breytingar kauplags, tekna og verðlags 1969 til 1971. Á r s m e ð a 1 t ö 1 1969 1970 1971 % % % 1. Kauptaxtar launþega 12.8 24.4 18.5 2. Heildaratvinnutekjur einstaklinga 15.3 28.0 25.0 3. Framfærslukostnaður 21.6 13.2 6.8 4. Kaupmáttur kauptaxta (1/3) -7.3 9.9 11.0 5. Kaupmáttur heildar- atvinnutekna (2/3) -5 . 3 13.1 17.0 6. Ráðstöfunartekjur heimilanna 15.1 30.8 24.2 7. Verðlag vöru og þjónustu 24.0 14.3 7.2 8. Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna (6/7) -7 . 3 14.4 15.á Peningamál. 1 kjölfar vaxandi eftirspurnar og sterkra verðbólgu- áhrifa á árinu 1970 fylgdi veruleg peningaþensla það ár eins og árið á undan. Peningamagn í umferð jókst mjög ört 1969 eða um 37.4% að meðaltali (meðaltal hvers mánaðar yfir sama tíma árið áður), og hélzt sá öri vöxtur fyrri hluta ársins 1970. Hins

x

Þjóðarbúskapurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.