Þjóðarbúskapurinn

Tölublað

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Blaðsíða 45

Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Blaðsíða 45
43 Peningamál■ Á fyrri árshelmingi 1972 jókst peningamagn £ umferð um 21.5%, sem er nokkru minni aukning en á sama tíma árið áður, er það hafði aukizt um 24.4%. Þessar tölur gefa þó ekki skýra mynd af peninga- þróuninni, þar eð umreiknað á ársgrundvöll hefur verið um að ræða verulegan samdrátt peningaþenslunnar frá því í nóvember á s.l. ári. Þannig nam ársaukningarhraði peningamagns röskum 23% í nóvember s.l., en rátt röskum 10% í júnf á þessu ári. Orsakir peningaþenslunnar á fyrri hluta 1972 má eingöngu rekja til útlánaaukningar bankakerfisins, en á sama tíma árið áður gætti enn £ all rfkum mæli peningasköpunar nettógjaldeyris- kaupa bankanna. Heildarútlán bankakerfisins á tfmabilinu janúar- júnf 1972 jukust um 3.925 millj. kr. eða 18.1%, en höfðu aukizt um 2.700 millj. kr. eða 15.8% á þessum tfma árið áður. Nettógjald- eyriseign bankanna minnkaði hins vegar um 388 millj. kr., en hafði aukizt um 651 millj. kr. á fyrri hluta 1971. Aukning spari- fjár hamlaði sem fyrr gegn aukinni peningaþenslu, en þó í minna mæli hlutfallslega en árið 1971. Þannig jókst sparifé um 1.044 millj. kr. eða 6.5% mánuðina janúar-júní 1972 miðað við 1.045 millj. kr. eða 7.8% aukningu árið áður. í þessu sambandi ber þó að hafa £ huga, að á fyrri hluta 1972 hefur ríkissjóður selt happdrættislán og spariskfrteini fyrir um það bil 250 millj. kr., en um slfka-sölu var ekki að ræða á sama tíma árið 1971. Má ætla, að verulegur hluti umræddrar skuldabráfasölu ríkisins hefði ella komið fram í aukinni sparifjármyndun hjá innlán6- stofnunum. Innstæðuaukning opinberra sjóða í vörzlu Seðlabankans verkaði einnig til aðhalds peningasköpuninni, en í mun minna mæli en 1971. Jukust innstæður þeirra um 340 millj. kr. fyrri hluta 1971, en 158 millj. kr. 1972. Staða rfkissjóðs gagnvart Seðlabankanum, sem hafði verspað mjög á árinu 1971, hélt áfram að versna á fyrri hluta 1972. f júnílok 1972 hafði staðan versnað alls um 1.780 millj. kr. frá áramótum, en hafði versnað um 929 millj. kr. á sama tfma 1971. Við mat þessara talna ber að hafa í huga árstíðabundna fjárþörf ríkissjóðs á fyrri hluta árs, þó svo að ofangreind stöðurýrnun sé mun meiri en útskýrt verði með árstíðasveiflu einni saman. Fyrirgreiðsla Seðlabankans gagnvart fjárfestingarlánasjóðum jókst

x

Þjóðarbúskapurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðarbúskapurinn
https://timarit.is/publication/1367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.