Þjóðarbúskapurinn - 01.07.1972, Qupperneq 22
20
Samneyzla er sá þáttur verömætaráðstöfunarinnar, sem mælir útgjöld
hins opinbera til kaupa á vörum og þjúnustu og er að langmestu
leyti laun opinberra starfsmanna. Árleg magnaukning samneyzlunnar
nam um og yfir 7% á árunum fyrir 1967. Efnahagsörðugleikarnir
1963 til 1969 settu þá mark sitt á þennan þátt ráðstöfunarinnar
eins og annað í þjóðarbúskapnum, enda þótt "lægðin" kæmi þar
eingöngu í ljós sem hægari vöxtur en verið hafði, en ekki sem
raunveruleg minnkun. Aukningin 1968 varð 2.7% og 2.2% árið 1969.
Árið 1970 jókst vöxturinn á ný og nam 4.5% það ár, en 1971 er
talið að vöxturinn hafi numið 6.4% að magni.
Einkaneyzla minnkaði að mun á árunum 1968 og 1969 eða um 5.1%
fyrra árið og 6.5% hið síðara. Á árunum 1970 og 1971 jókst einka-
neyzlan aftur verulega og er magnaukningin talin hafa numið a.m.k.
12.2% 1970 og um 15% 1971. Þessi mikla aukning verður þó að
sjálfsögðu að skoðast í ljósi þeirrar minnkunar, sem varð tvö fyrri
árin.
Nákvæmar tölur eru enn ekki tiltækar, en mjög lauslegar
áætlanir um aukningu einkaneyzlunnar 1971 miðað við 1970 hafa verið
gerðar. Benda þær til þess, að útgjöld neytenda til kaupa matar
og drykkjar hafi aukizt um 8%, fatnaðar o.þ.h. allt að 20%, varan-
legs neyzluvarnings annars en bíla allt að 10%, þá hafa bílakaup
aukizt um hvorki meira ná minna en 55-60%, útgjöld til húsnæðis
um 3 til 4% og loks hafa kaup á öðrum vörum og þjónustu aukizt um
12 til 15%. Allar þessar tölur eru miðaðar við fast verðlag. Það,
sem sker sig úr bæði árin 1970 og 1971, er mikil aukning bíla-
innflutningsins, sem varð sáralítill árið 1969. Þannig voru
fluttir inn 6.927 fólksbílar og jeppar 1971 samanborið við 4.533
árið 1970 og aðeins 982 árið 1969. 1 bílakaupum ársins 1971 gætir
án efa áhrifa uppsafnaðrar endurnýjunarþarfar frá fyrri árum.
Innflutningur, útflutningur, greiðSlujöfnuður■
Hinni miklu aukningu verðmætaráðstöfunar 1970 og 1971 fylgdi
að sjálfsögðu mikil aukning innflutnings. Á árinu 1970 jókst
almennur vöruinnflutningur um 32.4% að verðmæti. Mikil aukning
varð á innflutningi skipa eftir sáralítil skipakaup ársins á
undan.